Dagblaðið - 24.04.1978, Page 3
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 24. APRlL 1978.
3
Farmurvörubíla
dreifistá göturnar:
Ekkert
eftirlit?
Máfurinn ætlar nú lika að éta upp tuglalilið við tjörnina. — UB-mvnd: Hörður.
KRÍUNA í HÓLMANN
— Máfinn burt!
Hraðbréf frá lesanda:
Allir fylgjast nú af ánægju með hin-
um ýmsu velkomnu vorboðum. Krók-
usar skjóta upp kollum, brum er að
birtast á trjám og runnum og svo kom
lóan, eins og hennar er von og visa.
Þvi var það að sá er skrifar. hélt niður
að tjörn þann fimmtánda, ölvaður af
vorkomunni. En vei. er ekki
andsk.... máfurinn búinn að leggja
undir sig hólmann og gerir þaðan
skæruliðaárásir á étandi endurnar og
rænir þær fæðunni. Ekki verður
heldur langt að fara i gómsæta, dún-
mjúka andarungana þegar þar að
kentur. Held ég að væri ráð að ryðja
hólmann svo krian gæti orpið á sínum
gantla stað og þá e.t.v. haldið máfin-
um frá.
Pétur Guðmundsson skrifar:
Ég vil beina þeirri fyrirspurn lil lög-
reglustjóra. hvort ekkert sé gcrt til að
sjá lil að vörubifreiðar hafi hlífðarborð
aftan á palli þegar ekið er nteð grjót.
’ Það kom fyrir mig um helgina. þegar
ég ók Krísuvíkurleið. að ntargir
vörubílar kontu þá leið í halarófu nieð
piramita af grjóti. Konti hnykkur á
bilana er stórhætta á slysi þegar
grjótið hrynur af. Oft skilja þessir
bilar eftir sig grjótslóð, sem skapar
mikla hættu á vegununt svo og á
götunt borgarinnar.
Mér var sagl fyrir nokkrunt árum
að þetia væri ólöglegt en ég sé ekkert
gert tilaðhindra það.
Það er okkur mikil ánægja að geta nú boðið hin margreyndu
og viöfrægu SKIL-rafmagnshandverkfæri.
SKIL verksmiöjurnar voru stofnaðar i Chicago i Bandarikjunum árið 1924 til framleiðslu
á nýrri einkaleyfisuppfinningu, rafknúinni hjólsög, hinni heimsfrægu SKIL-sög,
sem viðbrugðið var fyrir gæði. Siðan hafa verið framleidd mörg verkfæri og gerðar margar
nýjar uppgötvanir á rannsóknarstofu SKIL verksmiðjanna, sem hafa gert
SKIL handverkfærin heimsfræg og eftirsótt.
SKIL borvélar meö stiglausum hraðabreyti eru
gæddár þeim kosti, að þvi meir sem þú þrýstir á
gikkinn, þvi hraðar snýst borinn. Þannig færðu rétta
hraðann fyrir það verkefni sem þú ert að vinna,
hvort sem þú ert að bora i flisar, stein, tré eða annað.
SKIL borvélar eru fallega hannaöar, kraftmiklar, og
auðvelt er að tengja við þær marga fylgihluti. Auk
borvéla framleiðir SKIL af sömu alúð og vandvirkni,
stingsagir, stórviðarsagir, hefla, slipivélar og fræs-
ara auk hinna heimsfrægu hjólsaga.
SKIL rafmagnshandverkfæri svara fyllstu kröfum
nútimans og henta jafnt leikmönnum sem atvinnu-
mönnum.
Póstsendum myndlista ef óskað er.
ÞEIR SEM VILJA VÖNDUÐ VERKFÆRI.VELJA S/(/L
Einkaumboð á Islandi fyrir SKIL rafmagnshandverkfæri:
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Hvernig leggst
sumarið í þig?
Birgir Lúðvfksson deildarstjóri: Bara
vel. Ég vona að veðrið verði svipað og
það hefur verið undanfarna daga, svipað
og það var á sumardaginn fyrsta.
Spurning
dagsins
Guðmundur Arngrímsson verzlunar-
ntaður: Ágætlega. Veörið er gott og mér
er sagt að það sé góðs viti ef frýs saman
vetur og sumar eins og núna gerði.
Gissur Símonarson húsasmiður: Ágæt-
lega. Sumarið verður gott framan af,
það er i maí og júni en ætli það rigni ekki
nteira i júli og ágúst.
Ingi Lövdal, vinnur hjá Reykjavikur-
borg: Vel. Veðrið er svo afskaplega gott
núna.
Jón Bergsson lyfjafræðingur: Nú, ágæt-
lega. Veðrið er mjög gott og það boðar
gott ef f rýs saman sumar og vetur.
Rútur Snorrason vinnur i Reykjafelli:
Bara vel. Ég vona að veðrið verði eins
gott og á suntardaginn fyrsta.