Dagblaðið - 24.04.1978, Side 11
ÖRLÖG ALDO MORO
— f resturinn sem mannræningjarnir gáfu stjórnvöldum rann út fyrir tveimur
sólarhringum. — Panamastjórn býðst til að taka við föngum sem sleppt
yrði í skiptum fyrir Moro
þjóðunum. Varnarmálaráðherra
haliu. Attilio Ruffini. lagði áherzlu á
það að ekki væri hægt að semja við
ræningjana og Enrico Berlinguer leið-
togi kommúnista studdi hann og sagði
aðslikt rnyndi veikja lýðræðið.
Þrátt fyrir þetta verða þær raddir
sem krefjast samninga sifellt háværari.
Upphaflega komu þær kröfur frá fjöl-
skyldu Moros, en þær hafa fengið
stuðning frá verkalýðsleiðtogum.
menntamönnum og jafnvel ntikilsmet-
andi kristilegum demókrötum.
Ekki hafa borizt nein opinber við-
brögð frá itölsku stjórninni við tilboði
Panamastjórnar um að taka við vinstri
öfgamönnum. sem sleppt yrði i
skiptum fyrir Moro. Leiðtogi Pananta-
stjórnar. Omar Torrijos. kom þessum
skilaboðum til itölsku stjórnarinnar i
gennum sendiherra sinn i Róm. en
bætti jafnframt við að „hann væri þvi
aðeins reiðubúinn að taka við föngun-
um. að lifi Moros yrði þyrmt.
Rauðu herdeildirnar hafa enn ekki
tilgreint hvaða 300 fanga þær óska aö
fá i skiptum fyrir Moro. en liklegast er
að efstir á lista séu Curcio'og aðrir
félagar'herdeildanna sem eru í haldi i
Tórinó. ítölsk blöð greindu frá þvi nú
um helgina að Curcio og félagar hans
vildu ekki losna i skiptum fyrir Moro.
heldur vildu þeir halda áfrant baráttu
sinni úr fangelsinu.
Allt er enn á huldu um örlög Moros.
Ekkert hefur heyrzt frá Rauðu her-
deildunum á ítaliu nú um helgina og
ítalir vita því enn ekki hvort Aldo
Moro er lífs eða liðinn. en nú eru tveir
sólarhringar liðnir frá þvi að frestur sá
sem skæruliðarnir gáfu stjórnvöldum
rann út. Þar hótuðu skæruliðarnir að
„að Ijóst lægi fyrir hvað gera þyrfti.
Að bjarga lífi Aldo Moros.”
Stjómin neitaði hins vegar samn-
ingaviðræðum. en hélt þó opnum
möguleikum á sambandi við ræningj-
ana i gegnum fulltrúa kirkjunnar.
Benigno Zaccagnini, ritari Kristilega
demókrataflokksins og vinur Moros.
sem fékk örvæniingarfullt bréf Moros
á fimmtudag, þar sem Moro biður
fyrir lifi sínu. sagði að stjórnin reyndi
að finna leið til þess að frelsa Moro og
taldi helzt að nota fulltrúa kirkjunnar
til þess.
Páll páfi hefur beðið Moro griða og
sömu óskir hafa komið frá alþjóða-
stofnunum. eins og t.d. Sameinuðu
taka Moro af lifi. ef ekki yrðu hafnar
samningaviðræður um fangaskipti.
þar sem skipt yrði á Moro og kom-
múniskum föngum i ítölskum fang-
elsum.
ítalska stjórnin valdi milligöngu-
menn frá rómverskkaþólsku kirkjunni.
til þess að taka við skilaboðum frá
skæruliðunum. en engin boð hafa bor-
izt.
Stjórn kristilegra demókrata hefur
neitað samningaviðræðum undir kúg-
unum mannræningja og hefur ótvi-
ræðan stuðning italska Kommúnista-
flokksins í því efni. En sósialistar
gengu eins langt og unnt var i þvi
skyni að korna á viðræðum við ræn-
ingjana. Leiðtogi sósialista Bettino
Craxi sagði i tilkynningu, þar sem
hann gagnrýndi stjórnina harðlega.
Omar Torrijos leiðtogi Panamastjörnar hefur boðizt til að taka við föngum sem sleppt vrði I skiptum fvrir Aldo Moro en
mannræningjarnir kröfðust þess að 300 föngum vrði sleppt.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. APRIL 1978.
Erlendar
fréttir
EKKERT VITAÐ UM
REUTER
Færri fórust
í áætlunar-
flugi en áður
en stóraukn-
ing manntjóns
í leiguf lugi
— mest munarum
f lugslysið á
Kanaríeyjum
Flug á árinu 1977 krafðist fleiri
mannslífaen 1976. Munaði þar mest um
flugslysið sem varð á Tenerife eyju er
tvær júmbóþotur skullu saman. Þessar
þotur voru báðar i leiguflugi og'lækkaði
þvi öryggið sem reiknað er út með leigu-
flugi verulega. Á hinn bóginn varðáætl-
unarflug öruggara en 630 manns fórust
með slíku flugi í fyrra sem er ólíkl minna
en 1976. þegar 1187 létu lifið.
884 létu lifið í 38 slysum í leiguflugi
en 300 i 29 slysum 1976. Munar þama
þeim rúmum 500 manns sem létust i
Tenerife slysinu.
Auðugekkja hvarf
afQueenElizabeth
Ekki verða neinar frekari aðgerðir af
hálfu brezku lögreglunnar vegna hvarfs
auðugrar svisstieskrar ekkju af farþega-
skipinu Queen Elizabeth II, en hún
hvarf af skipinu i Kyrrahafi fyrir tæpum
mánuði. Farþegaskipið kom til Bret-
lands nú unt helgina. Lögreglan sagði að
réttarhöld hefðu verið haldin vegna
málsins i San-Francisco í Bandarikjun-
um og ekkert benli til þess að um glæp
hefði verið að ræða. Hin auðuga ekkja
hét Carla Bodmer og var 69 ára að aldri.
Hún hvarf af skipinu skömmu eftir að
það fór frá Honolulu.
Þessi snjóhviti apaungi fannst I fjöllunum I láiwan fyrir fimni mánuöum. Banaa-
ríkjamaóur bauðst til aö kaupa þetta fimmtán tommu kríli fvrir 40 þúsund doll-
ara, en eigandinn vildi ekki selja. Möguleikarnir á aó albinói, eða hvítingi af
macaco apategund, fæðist er einn á móti hundrað þúsund að sögn dýrafræðinga.
Haig óhress
vegna f restunar
nifteinda-
sprengjunnar
Alexander Haig hershöfðingi.
yfirmaður hersveita NATO. sagði
í gær að meðferð Carters Banda-
rikjaforseta á nifteindamálinu
hefði valdið nokkrum óþægindum
fyrir aðildarriki Norður-Atlams-
hafsbandalagsins.
En hann bætti þvi við að leið-
togar aðildarríkjanna gerðu sér
grein fyrir þvi að ákvörðun
Carters um að fresta framleiðslu
sprengjunnar væri pólitisk en ekki
hemaðarleg og gerð til þess að
þvinga Sovétrikin til frekari _af-
vopnunarviðræðna.
Nifteindasprengjan eyðir lifi
en ekki mamtvirkjum og er hún
aðallega hugsuð gegn skriðdreka-
sveitum Sovétmanna i hugsanlegri
árás á Evrópurikin. Haig sagði að
ef Carter myndi endanlega koma
i veg fyrir framleiðslu sprengj-
unnar, réði bandalagið yfir öðrum
vopnum gegn skriðdrekasveitun-
um.
Haig hershjöfðingi bætti þvi við
að ef fram héldi sem horfði þá yrði
þess ekki langt að bíða að Varsjár-
bandalagið ttæöi yfirburðum á
kjamorkuvopnasviðinu eins og
öðrum sviðum hernaðar.
V-þýzkirskæruliðar
vissu um fyrirhugað
rán Aldo Moro og voru
jafnvel með í ráðum
skjöl fundust hjá handteknum
skæruliða
Nú telur vestur-þýzka lögreglan ntjög
líklegt að vestur-þýzkir skæruliðar hafi
vitað um ránið á Aldo Moro fyrrum for-
sætisráðherra ítala áður en honum var
rænt og hafi jafnvel verið með í ráðum.
Lögreglan telur sig hafa ntjög góðar
sannanir fyrir þvi að nokkrir úr Baader-
Meinhof hreyfingunni þýzku hafi jafn-
vel.skipt meginmáli i ráninu. Fundizt
hafa skjöl hjá einunt skæruliða hreyf-
ingarinnar þar sent minnzt er á rniklar
aðgerðir sem fyrirhugaðar séu á Ítalíu.
Skæruliði þessi var handtekinn i aesem-
ber en þann 16. niarz var Aldo Moro
rænt.
Aðfcrðir þær sem notaðar voru við
ránið á Moro cru einnig mjög likar þeim
sem viðhafðar voru er Hanns-Marlin
Schleyer var ræm i fyrra.
Þrír skærullðar Baader-Meinhol'
hreyfingarinnar sem verið hafa á flótta
undan lögreglunni cru taldir hafa leikið
stór hlutverk i ráni Moros. Læknir einn.
Margt er mjög líkt með ráni Aldo
Moros og Hanns-Martin Schleyers.
sem einnig hefur verið á flótta, er siðan
talinn liafa gefið Moro lyf til þess að
gera hann auðveldari viðfangs i haldinu.