Dagblaðið - 24.04.1978, Side 32
r
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. APRÍL 1978.
Gert er ráfl fyrír svipuflu veflrí i dag
og var í gœr. Hœg austanátt verflur
um allt land. Sunnan og austanlands
verflur þó skýjafl, en bjart á Vestur-
landi og á vestanverflu Norfluriandi.
í morgun kl. 6 var 1 stig og skýjafl í
Reykjavík. Gufuskálar 2 stig og
skýjafl. Galtorviti 1 stig og lóttskýjafl.
Akureyrí 2 stig og skýjafl. Raufarhöfn
2 stig og alskýjað. Dalatangi 1 stig og
léttskýjað. Höfn 2 stig og léttskýjafl.
Vestmannaeyjar 4 stig og alskýjað.
Þórshöfn í Fœreyjum 4 stig og skýj-
afl. Kaupmannahöfn 6 stig og alskýj-^
afl. Osló 4 stig og rígning. London 8>
stig og léttskýjafl. Hamborg 4 stig og
þoka. Madrid 7 stig og lóttskýjafl.
Lissabon 9 stig og lóttskýjað. New
York 13 stig og skýjafl.
Hið íslenzka
náttúrufræðrfélag
Fræðslufundur verður mánudag 24. apríl kl. 20.30 í
stofu I0I í Arnastofnun — Páll Einarsson flytur
erindi um jarðskjálftaspár —.
Kvenfélag Hreyfils
Fundur verður haldinn i Hreyfilshúsinu þriðjudaginn
25.-apríl kl. 20.30. Áriðandi mál á dagskfá. .
KFUKAD
Afmælisfundur félagsins verður þriðjudaginn 25. april
kl. 8.30 að Amtmannsstíg 2 B. Inntaka nýrra
meðlima. Fjölbreytt dagskrá og veitingar. Miðarseldir
í félagshúsinu til mánudags 24. apríl. allar konur vel-
komnar.
Kvenfélagið Seltjörn
Munið afmælisfundinn þriðjudaginn 25. april.
skemmtiatriöi söngur, Svala Nilsen syngur við undir-
leik Carls Billich. —
Fram — konur
Fundur verður haldinn i Framheimilinu mánudaginn
24. apríl kl. 20.30. Stundvíslega.
Iðjafélag
verksmiðjufólks
Iðja, félag verksmiðjufólks, heldur áriðandi félagsfund
I Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu mánudaginn 24. april
kl. 5 slðdegis. Dagskrá: l. Kjaramálin. 2. Heimild til
verkfallsboðunar. Trúnarmenn á vinnustöðum eru
eindregið hvattir til að mæta á fundinn. Félagar fjöl-
mennið og mætið stundvislega. Sýniö félagsskirteini
við innganginn.
Læra það sem þær vildu helzt aldrei þurfa að nota
Það cr vonandi að ungu stúlkurnar og
pilturinn á myndinni þurfi aldrei að
notfæra scr þekkingu sína á að slökkva
eld i framtíðarstarfi sinu. Þarna eru til-
vonandi flugfreyjur, sem eru á nám-
skeiði, að læra til slökkviaðferða hjá
slökkviliðinu á Reykjavíkurflugvelli. I
hópnum voru sextán stúlkur og einn
piltur sem öll eru að búa sig undir flug-
freyjustörf. DB-mynd Sveinn Þormóðs-
son. A.Bj.
Félag kaþólskra
leikmanna
efnir annað kvöld kl. 8.30 til fundar i Stigahlið 63.
Þar verður rætt um fyrirhugaðar framkvæmdir í
Landakoti og i Breiðholti. Þessi fundur er aðeins fyrir
félagsmenn.
Kvenfélag Hreyfils
Fundur verður i Hreyfilshúsinu þriðjudaginn 25. april
kl. 8.30. Áriðandi mál á dagskrá. Stjórifm.
Aðalfundur
Byggingarfélags
alþýðu,
Reykjavík, veröur haldinn þriðjudaginn 25. april 1978
að Hótel Sögu, Átthagasal, og hefst kl. 8.30. Venjuleg
aöalfundarstörf.
Aðalfundur félags
matreiðslumanna
verður baldinn mánudaginn 24. apríl að Óðinsgötu 7.
Reykjavík kl. I4.30. Fundarefni: I. Venjuleg aðal
fundarstörf. 2. Lagabreytingar. 3. önnur mál. Reikn-
ingar félagsins liggja frammi á skrifstofunni fyrir
félagsmenn. Mætið vel ogstundvislega.
Aðalfundir
Samvinnutrygginga g.t.. Liftryggingafélagsins And-
vöku og Endurtryggingafélags Samvinnutrygginga
hf.. verða haldnir fimnitudaginn I. júni nk. að Bifröst
i Borgarfirði, og hefjast kl. 10 f.h.
Dagskrá samkvæmt samþykktum félaganna.
FUF — Reykjavfk:
Almennur borgarafundur um efnahagsmál verður
haldinn að Hótel Borg þriðjudaginn 25. apríl kl. 20.30
stundvíslega. Frummælendur: Ásmundur Stefánsson,
Baldur Guðlaugsson og Guðmundur G. Þórarinsson.
Að afloknum framsöguræðum verða frjálsar um-
ræður. Væntanlegir þátttakendur i frjájsum
umræðum eru beðnir að athuga að ræðutimi verður
takmarkaður við 10 minútur. Fundarstjórar: Bjöm
LindalogGylfí Kristinsson.
Kópavogur
Fulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna
í Kópavogi
heldur fund mánudaginn 24. april kl. 20.30 að Hamra-
borg I. 3. hæð. Fundarefni: I. Framboðsniál.
Afgretðsla á tillögu kjörnefndar um breytingar á
skipan .'ramboðslista vegna bæjarstjórnarkosninganna
i Kópavogi. 2. önnur mál.
Hvöt, félag
sjálfstæðiskvenna
i Reykjavík efnir til fundar i Valhöll viö Háaleitis-
braut 1, mánudaginn 24. april kl. 20.30. Fundarefni:
Hvað hefur sjálfstæðisstefnan fram .yfir aörar stjórn-
málastefnur? Frummælandi Friórik Sophusson. fram-
kvæmdastjóri. Allt sjálfstæðisfólk velkomið.
Veðrið
Ásgeir Bjarnason framkvæmdastjóri
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
kl. 3 í dag. Ungur vann hann hjá föður
sínum á Húsavík en er kreppan lamaði
starfsemi föður hans fluttist hann til
Reykjavíkur og fór að vinna hjá
Eimskipafélagi Islands. Er Sparisjóður
Reykjavikur og nágrennis var stofnaður
réðst hann sem framkvæmdastjóri við
sjóðinn og gegndi því starfi i fjölda ára
og enn lengur var hann í stjórn sjóðsins.
Upp úr striðinu réðst hann til starfa sem
forstjóri við Vinnufatagerð Islands, þar
sem hann starfaði um áratuga skeið.
ásamt fyrirtækjum, sem voru vinnufata-
gerðinni tengd og hann var meðeigandi
að. Hann var kvæntur Rósu Finnboga-
dóttur frá Vestmannaeyjum og eign-
uðust þau þrjú börn, sem öll komust
upp.
Jón Níelsson Framnesvegi 18, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju kl. 1.30 i
dag.
Bragi Haukur Kristjánsson, Mýrargötu
14, verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju kl. 10.30 á morgun.
Karl Jónsson frá Mörk verður jarðsung-
inn frá Frikirkjunni i morgun kl. 1.30.
Elisabet M. Jónasdóttir verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju kl. 1.30 á
morgun.
Framsóknarfélögin
í Hafnarfirði
Fjórða spilakvöldið verður þann 25. april kl. 20.30.
Hver hlýtur sólarlandaferðina úr þriggja kvölda
keppninni? Ávarp flytur Markús Á. Einarsson.
Sýningu Gísla
í Norræna húsinu
að Ijúka
Málverkasýningu Gísla Sigurðssonar í Norræna
húsinu lýkur í dag, mánudag. Aðsókn að sýningunni
hefur verið góð en hún er opin frá kl. 14—22 daglega.
Gæludýrasýning
í Laugardalshöll 7. mai 1978. óskað er eftir
sýningardýrum. Þeir sem hafa áhuga á að sýna dýrin
sín vinsamlegast hringi- í eftirtalin simanúmer:
76620,42580,38675,25825 eða 43286.
Ásgrímssafn
Bergstaðastræti 74. er opiö sunnudaga, þriðjudaga og
fimmtudaga frá kl. 1:30—4. Aðgangur ókeypis.
Kvenarmbandsúr
Fundizt hefur kvenarmbandsúr i Ármúla i
aprilbyrjun. Eigandi getur vitjað úrsins i sima 71061.
Ritstjórn
SÍÐUMÚLA 12-
Simi
27022
Völuskrín
Barnavinafélagið Sumargjöf hefur flutt verzlun sina,
Völuskrin, að Klapparstig 26. Verzlunin býður
viðskiptavinum sinum úrval góðra leikfanga i
rúmgóðri verzlun.
Minningarkort
Sjúkrahússsjóðs
Höfðakaupstaðar,
Skagaströnd,
fást hjá eftirtöldum aðilum. Reykjavík: Blindavina-
félagí íslands. Ingólfsstræti 16, Sigriði Ólafsdóttur,
sim> 10915. Grindavik: Birnu Sverrisdóttur, simi
8433. Guðlaugi Óskarssyni skipstjóra, Túngögu 16.
Skagaströnd: Önnu Asper, Elisabetu Árnadóttur og
Soffiu.Lárusdóttur.
Minningarkort
Styrktarfélags
vangefinna
fást á eftirtöldum stöðum: Bókabúð Braga. Verzlana
höllinni, bókaverzlun Snæbjarnar. Hafnarstræti. og á
skrifstofu félagsins. Skrifstofan tekur á móti samúðar-
kveðjum simleiðis i sima 15941 og getur þá innheimi
upphæðina i giró.
Blaðinu hefur svo sannarlega borizt ástarbréf til
fósturjarðarinnar frá Japan. Er það Ryou Maeda,
sem sendi okkur mjög sterklega orðað bréf þar sem
hann segist elska Island og íbúa þess og biður okkur
að hjálpa sér við að finna íslenzkan pennavin. Helztu
áhugamál hans eru: hestamennska. skiðaiþróttir og
bókmenntir. Einnig biður hann tilvonandi pennavin
sinn að skrifa á ensku og senda sér mynd ef
mögulegi er. Og hér kemur svo heimilisfangið:
Ryou Maeda
Kami-machi, l-ku
663—105, Matsuzaki
Togo-cho, Tohaku-gun
Tottori-ken
689—07JAPAN
GENGISSKRANING
NR. 69 — 18. apríl 1978
Eining Kl. 12.00 Kaup Sala
1 Bandaríkjadoliar 254.70 255.30*
1 Steríingspund 469.80 471.00*
1 Kanadadollar 223.00 223.60*
100 Danskar krónur 4519.80 4530.80*
100 Norskar krónur 4735.70 4746.90*
100 Sænskar krónur 5536.30 5540.40*
100 Finnsk mörk 6074.40 6088.70*
100 Franskir frankar 5532.40 5545.50*
100 Belg. frankar 798.60 800.50*
100 Svissn. frankar 13307.20 13338.60*
100 Gyllini 11632.80 11660.20*
100 V-Þýzk mörk 12415.90 12445.20*
100 Lirur 29.60 29.67*
100 Austurr. Sch. 1725.00 1729.38*
100 Escudos 613.10 614.50*
100 Pesetar 317.80 318.60*
100 Yen 114.56 114.77*
* Breyting frá siðustu skráningu.
Fyrirlestur í
Norræna húsinu
Þriðjudaginn 25. april kl. 20.30 flytur sænska tón-
skáldið Ake Hermanson erindi sem hann nefnir
„Verket och upphovsmannens identitet”, i samkomu-
sal Norræna hússins. Áke Hermanson dvelst hér á
landi i þrjár vikur i boði Norræna hússins. Öllum er
heimill aðgangur aö fyrirlestrinum.
Norræna húsið
Dagana 21,—28. apríl verður Robert Egevang,
safnvörður við Þjóðminjasafniðdanska. hér i boði Ár-
bæjarsafns og Þjóðminjasanfs Islands. Hann vinnur
að húsvernd og hefur stjórnað mörgum rannsóknum i
bæjum þar sem unnið hefur verið að skipulagi sem
miðar að vcrndun gamalla hverfa.
Robert Egevang heldur fyrirlestur i Norræna hús-
inu laugardaginn 22. april kl. .15.00. Fyrirjesturinn
neínist „Gode boliger i gamle huse —, bevaring og
sancring i ældre stadsmilieu i Danmark."
H&ppármUl
Nú siendur yfir sala happdrættismiða
til ágóða fyrir byggingu nýs sjómanna-
heimilis Færeyinga á horni Skipholts ög
Brautarholts. Búið er að steypa plötu
hússins og stendur til að slá upp fyrir
því. Vinningarnir eru þrír og er sá fyrsti
Chevrolet Nova árgerð 1978. Annar og
þriðji vinningur eru ferðir fyrir tvo
ásamt bifreið með Smyrli til Færeyja.
Heildarverðmæti vinninga er 3.462.800
kr. Dregið verður 8. september 1978.
Allar upplýsingar veitir Justa Mor-
tensen í sima 38247.
Það skal tekið fram að i Færeyska
sjómannaheimilið eru allir velkomnir,
hvort sem þeir eru Færeyingar eða ekki.