Helgarpósturinn - 21.11.1996, Síða 7

Helgarpósturinn - 21.11.1996, Síða 7
7 FIMMTUDAGUR ZL NÓVEMBER1996 Hagkaupsveldið í hnotskurn Eignarhaldsfélagið Hof sf. er móðurfyrirtæki Hagkaups. Það var stofnað fyrir fimm árum og er alfarið í eigu afkomenda Pálma Jónsson- ar, stofnanda Hagkaups. Eigendurnir eru; Jón- ína, Sigurður Gísli, Jón, Ingibjörg og Lilja Pálmabörn. Hof sf. á hlut í fjölda fyrirtækja og hafði á síðasta ári um 304 milljóna hagnað. Án efa vó þar þyngst velta Hagkaups, sem nam rúmlega 10 milljörðum. Önnur dótturfyrirtæki og félög Hofs sf. eru að einhverju leyti í eigu Hofs. Hagkaup — blönduð verslun Ikea — húsgögn Þyrping — fasteignir Þor — fjárfesting Baugur— innkaup, dreifing Þarfaþing — viðhald, verktakar Álfheimar — Kosta Boda Ferskar kjötvörur — kjötvinnsla Bónus — verslun Þórsbrunnur — vatnsútflutningur Jari — fasteignir Futura — Dóminós-pizzur Höfn — kjötvörur Loðskinn — sútun Orkan — olíuverslun Drífá Sigfúsdóttir, formaöur Neytendasamtakanna Svar við kalli tímans Eg tel að sú þróun sem hefur átt sér stað hjá Hagkaup sé neytendum til góðs. Það er krafa neytenda að hafa aðgang að hvers konar vörum, svo sem lyfjum eða gleraugum, á góðu verði. í fljótu bragði virðist því ekki neitt óeðlilegt við aukið vöruúrval. Það kerfi sem var við lýði hjá lyfjaversl- unum var til dæmis löngu úrelt og það var kominn tími á að fleiri fengju leyfi til þess að reka lyfjaverslanir en hafði tíðkast fram til þess. Lyfja- fræðingar starfa í öllum þess- um nýju lyfjaverslunum, svo fagmennskan er á sínum stað. Það sama á við um sölu á gler- augum. Ég held því að það skref sem Hagkaup hefur tekið sé óumflýjanlegt og svar við kalli tímans," sagði Drífa Sig- fúsdóttir, formaður Neytenda- samtakanna. Drífa sagði greinilegt að nokkrar breytingar væru fram- undan í verslunarrekstri hér á landi eins og hefði sýnt sig er- lendis undanfarin ár. „Hinn ís- lenski markaður er smár og því slæmt ef einn aðili verður of ráðandi og samkeppnin lítil. í augnablikinu er því ekki til að dreifa á þessum sviðum sem ég nefndi hér á undan. Það verður líka að skoða ummæli hagsmunaaðila um útvíkkun Hagkaups í ljósi stöðu þeirra." ión G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar • • Oll samkeppni af hinu góða Oll samkeppni er af hinu góða. Þess vegna er það hið besta mál er verslanir auka vöruúrval sitt og keppa á sem flestum sviðum verslun- ar, eins og í sölu lyfja og gler- augna. Skiptir þá ekki máli hvort sú verslun heitir Hag- kaup eða eitthvað annað. Hag- kaup hefur frá fyrstu tíð selt fleiri vörur en matvörur og má í því sambandi nefna hina víð- frægu Hagkaupssloppa," sagði Jón G. Hauksson, rit- stjóri Frjálsrar verslunar. Hann sagði að Hagkaup væri brautryðjandi í lágu vöruverði hérlendis. Fyrirtæk- ið hefði hins vegar breyst í tímans rás og legði nú meiri áherslu á aukna þjónustu, margar vörutegundir og lang- an afgreiðslutíma. „Þótt Bón- us, sem er svonefnd afsláttar- verslun, sé nú sú matvöru- verslun sem býður lægsta vöruverðið hefur Hagkaup ekki gleymt uppruna sínum og er enn í dag að skerpa sam- keppnina. Sumir hafa haft áhyggjur af því að Hagkaup sé orðið of stórt og ráðandi á markaðinum — of mikið veldi. Það er vissulega risi á mark- aðinum. En ekkert fyrirtæki verður stórt af sjálfu sér. Það er stórt vegna þess að fólk vill skipta við það.“ Edda Sverrisdóttir, formaður Samtaka Laugavegar og nágrennis Þrengt að kaupmönnum úr öllum áttum Pað er vissulega athyglis- vert hvernig Hagkaup tekst að selja vörur á eins lágu verði og raun ber vitni. Ástæð- an kann að vera sú að þeir hafa selt árstíðabundnar vörur, svo sem eins og bíldekk á vorin og haustin og bækur fyrir jólin, en þess á milli þjónusta þeir við- skiptavini sína lítið. En það er auðvitað viðskiptavinarins að ákveða hvort hann vill kaupa vöru hjá Hagkaup og fá litla þjónustu eða versla við sér- verslanir þar sem þjónustan er eins góð og hugsast getur,“ sagði Edda Sverrisdóttir, for- maður Laugavegssamtakanna. „Ef viðskiptavinir vilja ann- ars vegar fá góða og vandaða þjónustu og ganga að sinni gleraugnaverslun, dekkjaversl- un eða bókabúð allt árið munu þeir velja það. Ef þeir vilja hins vegar tína vörur úr hillum án aðstoðar geta þeir gert það líka. Því er ekki að neita að það er þrengt að kaupmönnum úr öllum áttum og það verður æ erfiðara að stunda verslunar- rekstur. Bóksalar sem selja bækur allt árið hafa kvartað í gegnum árin eftir að stór aðili eins og Hagkaup hóf jólabók- sölu og finnst súrt í broti að slíkur aðili skuli fleyta rjómann. En það má ekki gleymast að samkeppni er af hinu góða — ef hún fer fram á heiðarlegan hátt. Mér finnst Hagkaup ekki vera aðalógnun- in við verslanir í landinu — miklu fremur verslunarferðir íslendinga á erlenda grund. Fjármagnið fer þá úr landi, en með því að versla við Hagkaup eða aðrar verslanir hér heima styrkjum við innlenda verslun og iðnað.“ Vilhjálmur Egilsson, formaður efnahags- og viðskipta- nefndar Alþingis og framkvæmdastjóri Verslunarráðs Utþensla á erlendri grund Eg hef engar áhyggjur af þeim breytingum sem eiga sér stað með tilkomu Hag- kaups á lyfja- og gleraugna- markaðinn. Þeir koma inn á markaðinn á jafnréttisgrund- vellli og ekkert sem bendir til þess þeir muni á einhvern hátt ná til sín stórum hluta mark- aðarins með aðgerðum sínum. Hagkaup hefur selt matvöru í áratugi en þeir eru ekki eina matvöruverslun landsins. Það eru komnar aðrar keðjur sem þrífast prýðilega í samkeppni við þá,“ sagði Vilhjálmur Eg- ilsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis og framkvæmdastjóri Verslunar- ráðs. Hann sagði að íslenski markaðurinn væri það stór að hann gæti borið mismunandi vörur og verð. „Sumir vilja fremur borga lágt verð fyrir vöruna og hirða lítt um þjón- ustuna. Aðrir vilja fá betri þjónustu og borga þarafleið- andi hærra verð. Ég sé því ekki neina hættu á að Hag- kaup yfirtaki alla gleraugna- sölu eða aðra verslun í land- inu. Það er mun merkilegra að fylgjast með útþenslu fyrir- tækisins á erlendum vett- vangi; bæði með opnun skyndibitastaða og útflutningi vatns. Slík starfsemi er til góðs fyrir íslenskt samfélag." StakkaskiptiHagkaups Janúar 1993 Futura hf., sem rekur Dóminós-pizzur, stofn- að af Skúla Þorvaldssyni, Siguijóni Sighvats- syni og Hagkaup með jafnri eignaraðild. um umfram það sem mismunur í magni gefur tilefni til. Niðurstaða þessa máls er talin munu marka stefnu samkeppnisyfirvalda í öðrum sambærilegum málum. Mars 1993 Baugur sf. stofnað utan um innkaup og dreif- ingu Hagkaups og Bónuss. Mars 1993 Hagkaup/Hof leigir húsnæði Miklagarðs. September 1993 Hagkaupsmenn flytja til landsins 2,5 tonn af soðinni danskri skinku og soðnum hamborgar- hrygg. Hyggst fyrirtækið bjóða kjötið á innan við þriðjungi þess verðs sem neytendur greiða fyrir það íslenska. Tollyfirvöld stöðva afhend- ingu kjötsins og óska eftir áliti hins opinbera. Afhending kjötsins er skömmu síðar bönnuð og fer Hagkaup fram á skaðabótakröfu á hend- ur ríkissjóði upp á 1,5 milljónir króna. Október 1993 Hagkaup hefur sölu á Levi’s-gallabuxum og býður þær á mun lægra verði en verslunin Faco, sem hefur einkarétt á sölu á Levi’s-fatn- aði. Levi Strauss á Norðurlöndum fær sett lög- bann á söluna og segir vöruna falsaða. Galla- buxurnar eru teknar úr hillum Hagkaups og innsiglaðar og Levi Strauss höfðar mál á hend- ur fyrirtækinu. Nóvember 1993 Titringur meðal blómasölumanna vegna sölu Hagkaups á blómum. Blómaframleiðendur og - seljendur segja það rangt að Hagkaup selji ódýrustu blómin. Nóvember 1993 Hagkaup, Bónus og Jakub A. Dul Jacobsen, eigandi Rúmfatalagersins, nema land í Færeyj- um og opna tvær Bónusverslanir í Þórshöfn og Runavík. Færeyingar taka verslununum fagn- andi og langar biðraðir mynduðust við af- greiðslukassana fyrsta daginn. Jakub gerir ráð fyrir um 500 milljóna veltu hjá fyrirtækinu í Þórshöfn og um 300 milljóna veltu í Runavik að ári. Desember 1993 Desember 1994 Afsláttartilboð Hagkaups og Bónuss á bókum fyrir jólin veldur gríðarlegum samdrætti í veltu að áliti bókaverslana. Bóksalar segja að með sama áframhaldi muni þeir sjá fram á erfiða tíma í rekstri. Þá vekur undrun að fyrirtækin, sem að stórum hluta eru í eigu sömu aðilanna, skuli heyja verðstríð sín á milli í sölu á bókum. Teitur Gústafsson, formaður Félags bóka- og ritfangaverslana, segir að Hagkaup og Bónus selji bækurnar eingöngu í auglýsingaskyni til þess að laða fólk að verslunum sínum og fá það til að kaupa aðra vöru. Óskar Magnússon, for- stjóri Hagkaups, segir að hér sé um sjálfstæð fyrirtæki að ræða og það ríki fullkomin sam- keppni milli þeirra. Hann vísar því ennfremur á bug að verið sé að gera út af við smærri bók- sala heldur verði um aukna bóksölu að ræða. Maí 1995 Þórsbrunnur, dótturfélag Hofs sf., gerir samning um dreifingu á íslensku vatni um öll Bandaríkin. Gert er ráð fyrir að fyrirtækið selji fimm milljónir vatnslítra. Nóvember 1995 Orkan hf., sem er í eigu dótturfélags Hofs sf., eignarhaldsfélags Jóhannesar í Bónus og olíu- félagsins Skeljungs, opnar þrjár bensínstöðvar í Reykjavík og býður 4-5 króna lægra verð en almennt gerist á bensínstöðvum. Febrúar 1996 Óskar Magnússon, forstjóri Hagkaups, segir það rangt að fyrirtækið stundi þá viðskipta- hætti að verðleggja ákveðnar vörutegundir undir kostnaðarverði, eins og talsmenn dag- vörukaupmanna halda stíft fram. Hann segir tíma til kominn að fjölmiðlar hætti að láta menn komast upp með að fara fram með órök- studdar dylgjur og birta þær gagnrýnislaust. Júlí 1996 Hagkaup svarar herraversluninni Dressmann með tilboðum á jakkafötum. Verðstríðið milli Hagkaups, KEA-Nettó og Bónuss heldur áfram. Vöruverðið á Akureyri það lægsta á landinu og Vilhjálmur Ingi Áma- son, formaður Neytendafélags Akureyrar, segir að fjölmargar vörutegundir séu seldar undir kostnaðarverði. Ágúst 1994 Ikea opnar verslun sína í Holtagörðum. Ágúst 1994 Iðnrekendur kvarta undan viðskiptaháttum Baugs hf. og vilja að Samkeppnisráð hefji rann- sókn á markaðsstöðu Hagkaups og Bónuss. Iðnrekendur halda því fram að Baugur setji birgjum sínum kröfu um óeðlilega mikil afslátt- arkjör af vörum, einhliða reglur um afgreiðsiu- tíma, þátttöku í flutningskostnaði og fleira. Þá telja iðnrekendur að fyrirtækin tvö selji ein- stakar vörur án álagningar eða jafnvel undir kostnaðarverði. Jóhannes í Bónus segist ekki kannast við kvartanir framleiðenda. Nóvember 1994 Landbúnaðarráðuneytið óskar eftir áliti Sam- keppnisstofnunar á því hvaða úrræði það hef- ur til að stöðva það sem ráðuneytið nefnir óheilbrigða viðskiptahætti á kartöflumarkaðin- um. Stofnunin hefur umfangsmikla athugun á því hvort Hagkaup og Bónus njóti óeðlilega hagstæðra kjara hjá innflytjendum og heildsöl- Ágúst 1996 Hagkaup íhugar að opna 2.000 fermetra verslun í Borgarholti í Grafarvogi. September 1996 Hagkaupsmenn segjast á næstunni munu opna lyfjaverslun í verslun fyrirtækisins í Skeif- unni og bjóða hagstæðasta verðið á markaðin- um. Opnun verslunarinnar veldur titringi með- al lyfsala. Nóvember 1996 Óskar Magnússon, forstjóri Hagkaups, segir að Lyfjaeftirlitið hafi lagt stein í götu fyrirtæk- isins vegna undirbúnings nýrrar lyfjaverslunar. Segir hann að mörg skilyrði hafi verið sett sem mætti telja til geðþóttaákvarðana Lyfjaeftirlits- ins þar sem það hafi í afgreiðslu sinni á málinu fylgt drögum að reglugerð sem enn væru ekki samþykkt. Guðrún Eyjólfsdóttir, forstöðumað- ur Lyfjaeftirlitsins, segir gagnrýni Óskars benda til lítillar þekkingar hans á lyfjum, lyfja- dreifingu og þeim regium sem þar gilda. Nóvember 1996 Stöð 2 flytur frétt þess efnis að Hagkaup hafi velt þeim kosti fyrir sér að stofna nýtt krítar- kortafyrirtæki ásamt öðrum fyrirtækjum. Þau sem nefnd hafa verið til sögunnar eru Flugleið- ir, olíufélögin þrjú, Bykó, Húsasmiðjan og Bón- us.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.