Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 21.11.1996, Qupperneq 10

Helgarpósturinn - 21.11.1996, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 2L NÓVEMBER1996 HELGARPÓSTURINN Útgefandi: Lesmál ehf. Framkvæmdastjóri: Árni Björn Ómarsson Ritstjóri: Páll Vilhjálmsson Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi hf. Minni karlmenn, meiri menn Karlmennskan er karlmönnum til trafala þegar þeir mæta því andstreymi að skilja við barnsmóður sína og standa frammi fyrir þeim veruleika að geta ekki stjórnað sjálfir umgengni við af- kvæmi sín. Frumstæðar hugmyndir um karlmennsku gera karl- mönnum erfitt með að laga sig að þeirri stöðu að eiga samskipti við börnin fyrir milligöngu barnsmóðurinnar. Alltof oft brennur það við að karlmenn taki versta kostinn, sem er að láta börnin sín lönd og leið. í Helgarpóstinum í dag er fjallað um fráskilda feður og hvernig þeir rækja skyldur sínar. Hlutskipti þeirra er að fá samveru við börnin sín skammtaða og það reynist mörgum þeirra ofviða. Ein- faldasti útvegurinn er iðulega sá að gefa börnin upp á bátinn. Þriðjungur skilnaðarbarna sér föður sinn sjaldan eða aldrei og hjá tæplega helmingnum er engin regla á umgengninni milli föður og barna. Sumir vilja kenna því um að móðirin fær alla jafna forræði barna við skilnað eða slit sambúðar. Það er hæpin skoðun. í ljósi menningarlegrar og félagslegrar stöðu kvenna er óhugsandi að karlar standi jafnfætis konum í forræðisdeilum — þótt finna megi tilvik þar sem forræðið sé betur komið hjá föður en móður. Rót vandans liggur í hugmyndaheimi karla þar sem skylda og ábyrgð eru framandi hugtök en þess meira áberandi er sjálftekt- arhugsun sem brýst fram í aumingjalegri heimtufrekju. Þegar karlinn fær ekki sínu framgengt lyppast hann niður og kennir öll- um öðrum en sjálfum sér um eigið volæði. íslenskum karlmönn- um er sérstaklega hætt við lágkúru af þessu tagi vegna landlægs agaleysis. íslenska karlmennskan er ekki hert í stáli og föður- landsást, hún fleytir sér á rembingi og útúrboruhætti. Ekki fyrr en karlmenn axla þá ábyrgð sem þeim er á herðar lögð, m.a. með því að sinna börnunum, er hægt að ljá máls á að þeir fái aukin réttindi í forræðismálum. Það er ekki undir neinum öðrum en karlmönnum sjálfum komið að gera þær breytingar sem þarf tii. Meðal nauðsynlegra breytinga er að draga úr fárán- lega löngum vinnutíma, enn eitt birtingarform séríslenskrar karl- mennsku, og leggja meiri rækt við lífsgildi þroskaðrar menningar- þjóðar. Aferðin er Alþýðubandalagsins, orðræðan AlþýðufLokksins Alþýðubandalag og Alþýðuflokkur, ásamt Þjóðvaka og Kvenna- lista, leggja drög að frekara samstarfi sín á milli með skipulögðum fundum. Meðal ungliða þessara stjórnmálafiokka eru uppi áform um sameiginlegan vettvang og fulltrúar forystu flokkanna hittust í vikunni til að bera saman bækur sínar. Fulltrúar A-flokkanna komu úr sveitarstjórnum og er það í samræmi við hugmyndir Margrétar Frímannsdóttur, formanns Alþýðubandalagsins, sem í vor lagði til að flokkarnir skyldu freista þess að ná málefnalegri samstöðu meðal ungliðahreyfinga, í verkalýðshreyfingunni og meðal sveitarstjórnarmanna. En sé aðferðafræðin komin frá Alþýðubandalaginu er tungutak- ið frá Alþýðuflokknum. Yfirstandandi viðræður eru á forsendum jafnaðarmanna, líkt og Reykjavíkurlistinn, til að mynda, var stofn- aður sem stjórnmálaafl félagshyggjufólks. Orð hafa þýðingu og jafnaðarstefnan hér á landi er svo nátengd Alþýðuflokknum að ekki verður sundur skilið. Ólíkt flestum sam- bærilegum flokknum í nágrannalöndunum, sem höfðu þjóðfélags- legt forræði um áratugaskeið eftir seinna stríð, var gullöld Al- þýðuflokksins þegar hann var í ríkisstjórnarsamstarfi við Sjálf- stæðisflokkinn á sjöunda áratugnum. Jafnaðarstefnan hefur aldrei náð nema takmörkuðu fylgi hér á landi og hún er ekki heppilegur gunnfáni nýrra stjórnmálasam- taka. Jafnaðarstefnan var róttæk og framsækin þegar efnahags- legur ójöfnuður var mesta deiluefni stjórnmálanna. Núna er jafn- aðarstefnan eins og gömul frænka sem öllum getur þótt vænt um, enda er hún komin að fótum fram. Helgarpósturinn Borgartúni 27, 105 Reykjavík Sími: 552-2211 Bréfasími: 552-2311 Bein númer: Ritstjórn: 552-4666, símbréf: 552-2311, fréttaskotið: 552-1900, tæknideild: 552-4777, auglýsingadeild: 552-4888, símboði (augl.) 846-3332, dreifing: 552-4999. Netfang: hp@this.is Áskrift kostar kr. 800 á mánuði et greitt er með greiðslukorti, en annars kr. 900. OPINBERA MALRÆKT ^ J^| Þorgeir Þorgeirson ú er búið að gera afmæli Jónasar Hallgrímssonar að degi íslenskrar tungu. Aumingja Jónas. Af fúsum og frjálsum vilja tók hann þátt í því fyrir rösk- lega hálfri annarri öld að end- urnýja íslenska tungu. En þeir Fjölnismenn urðu raunar ekki vinsælir af því tiltæki fyrr en löngu seinna, þegar þeir voru allir dánir og lærisveinar þeirra, hreintungumenn, orðn- ir að nýju próblemi, sem virtist um tíma vera að gera út af við tungumálið (svona eins og þegar læknar eru að drepa sjúklinga sína með lærdómi og kórréttum meðalagjöfum). Og nú virðist ríkisstjórnin hafa falið Jónasi heitnum að annast nýjar tungulækningar upp úr gröf sinni (svona eins og þegar farið er með dauð- vona sjúkling til lækningamið- ils ef spítölunum hefur hvorki tekist að lækna hann né drepa). Ég hef líklega minnst á það áður að öll opinber stefna gagnvart tungumálinu, hversu vel sem hún annars er meint, fer fyrr eða seinna að minna á umhyggju sem örvasa gamal- menni eða sjúklingi er jafnað- arlega sýnd. Og menn líta upp og spyrja: Er tungumálið þá svona ör- vasa? Viss hrörnunareinkenni nú- tíma íslensku blasa við hverj- um þeim sem hefur augu sín opin. Ekki síst hjá mörgum þeirra sem hafa vinnu sína af því að rita málið. Og — það sem verra er — fólkið sem bera ætti daglega ábyrgð á rýni og umfjöllun hins ritaða máls er að bregðast okkur — skoðum bara umsagnir bók- menntasérfræðinga í dagblöð- unum (sérlega þær „jákvæðu" og „vinsamlegu"). Einhverra hluta vegna eru kröfur þessa fólks til atvinnurithöfunda komnar niður fyrir lágmark. Það glamrar að vísu eitt- hvert tómahijóð smápening- anna í orðum þessa fólks, en spurningin sem heiðvirður les- andi situr uppi með að loknum lestrinum er bara þessi: Geta verið til nokkrar hugsanainni- stæður fyrir svona endalausri logndrífu hrósyrða og skjalls? Og svarið er oftast nær neit- andi. (Gæti líka verið neytandi). Því satt að segja minna um- sagnir um bækur meir og meir á vanalegan auglýsingatexta utan á morgunkornspakka. Og tungumál deyja heldur ekki alveg með sama hætti og fólkið sem talar þau og skrifar. Nær væri að segja að tungumál deyi úr því fólki sem talar þau og skrifar. íslensk tunga er nú í vanda stödd. Það steðjar margt að henni. Vaxandi borgarsamfé- lag virðist ætla að hafa sömu áhrif hér og það hafði annars staðar á Norðurlöndum fyrir margt löngu. Beygingarkerfi málsins virðist hafa tilhneig- ingu til einföldunar, stefnir lík- lega á þriggja falla kerfi eins og í dönsku, norsku og sænsku (og furðu mörg orð fá nú eign- arfallsendinguna -u, a.m.k. í sjónvarpsfréttum). Gæti það verið lögmál að einfalt samfé- lag skapaði flókið tungumál en flókið samfélag þurfi aftur á móti einfalt tungumál? Og sjálf gullnáma málsins, myndlíkingarnar og orðtökin, „Og svo mikið er þó víst að þeir sem stöðugt eru að hugsa um það að „vera in“ með ritverk sín þeir „verða out“ þar sem rættværi um frjóa hugsun." • er að glatast. Líkingar sínar og orðtök dró tungumálið yfirleitt af atvinnuháttum og verklagi sem fátt fólk innan við sextugt (nema kannski Gyrðir Elías- son) hefur nokkra persónulega reynslu af. Samt er verið að halda í þessa eiginleika máls- ins með „kunnáttusemi" og „lærdómi", en lítil viðleitni uppi höfð til að skapa nýjar og nærtækari líkingar. Og afleið- ingin verður sú að unga fólkið talar og skrifar málið eins og bara útlendingar sem hafa að vísu lært það en aldrei lifað með því sætt og súrt. Þannig verður íslenska smám saman eins og annað tungumái íslendinga án þess að þeir eignist þó formlega neina höfuðtungu. En enskan bíður álengdar. Einföld, þolinmóð og brúkleg. Við þessar aðstæður má reikna með því að andalækn- ingar Jónasar sáluga dugi harla skammt. Ég þekki einkennilegan mann, rithöfund, sem heldur því fram að vandi íslenskrar tungu sé — auk þess sem áður var talið — af lögfræðilegum toga og spretti af úreltri meið- yrðalöggjöf sem hefur vaidið almennri skoðanahræðslu (eins og hann orðar þetta) þannig að nú fari það saman að yngra fólk missi sambandið við sjálfar uppsprettur tung- unnar en haldi þó sambandinu við sálarástand forfeðranna sem voru kaghýddir langt fram í ætt (eins og Þorsteinn Er- lingsson orðaði þetta). Og markaðsvæðingin gerir varla nema auka á þennan ótta. Almenna ritskoðun virðist því ekki þurfa hér. Og svo mikið er þó víst að þeir sem stöðugt eru að hugsa um það að „vera in“ með rit- verk sín þeir „verða out“ þar sem rætt væri um frjóa hugs- un. Það er misbrúk á tungumáli að nota það til að halda uppi skoðanaleysi. Rannsóknir hafa, trúi ég, leitt það í ljós að sjálfsritskoð- unin í „löndum sósíalismans“ hefur valdið almennri úrkynj- un tungumálanna. Áður hafði verið sýnt fram á þetta með Þriðja ríki Hitlers. Nú má enginn halda að ég sé að vanþakka það sem vel er gert við íslenska tungu. Síst sæti það á mér nú. En mig lang- aði samt til að nota tækifærið og benda á það að mál eru oft fjölþættari en svo að þau verði afgreidd f hátíðarræðu. Best þætti mér ef þessi orð gætu leitt það af sér að ríkis- valdið sparaði framvegis sak- sóknara sinn í málefnum skrif- andi fólks og færði hegningar- lögin í það nútímahorf að al- mennt þætti á það hættandi að skrifa einmitt það sem höfund- inum býr í brjósti. Jafnvel um opinbera embættismenn. Það væri líka málrækt. Frá lesendum ■ Maður hafði samband og furð- aöi sig á því aö Morgunblaðið skyldi hafa lagt heilt Reykjavíkur- bréf undir deilur blaðsins viö Sverri Ólafsson myndlistar- mann vegna greinar sem Bjöm V. Ólafsson skrifaði í Morgun- blaðið en sagði síöan aö Sverrir bæri ábyrgð á. Morgunblaðið krefst opinberrar rannsóknar á málinu og þótti viðkomandi full- langt gengiö. ■ Lesandi spuröi hvort ekki væri ástæöa til að fjalla um samskipti fíkniefnalögreglunnar og tollgæsl- unnar, en þau munu vera með stirðasta móti. ■ Verðstríð apótekanna var hug- leikiö konu sem taldi þaö sýna aö álagning lyfjaverslana væri fram úr öllu hófl. Niðurgreiðsla apó- teka til sjúklinga væri aöeins til þess fallin að auka lyfjaneyslu. ■ Athygli okkar var vakin á því að læknar virðast gefa út vottorð og rukka fyrir þau í eigin nafni þótt íkvöld brenn ég í skinninu að skapa heiminn. þeir gefi vottorðið út vegna starfa á sjúkrahúsi þar sem þeir eru væntanlega á fullum launum. En hálfnað er verk þá hafið er. Horfumst í augu. Leiðrétting Tvær villur slæddust inn í Ijóð Þorsteins frá Hamri, Sköpun heimsins, sem við birtum í síðustu bókmenntagetraun. Ljóðið birtist hér aftur. /mannlegri viðleitni Mest að gera á morgun: munar um lítið handtak. nóttin fer öll f efnisflutninga.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.