Vísir - 21.07.1970, Blaðsíða 7

Vísir - 21.07.1970, Blaðsíða 7
VISIR . Þriöjudagur 21. júii iír/0. Það er ekki einleikið með veiði- doðann í Þingvallavatni. — „Er hann rikinu að kenna?“ spyr áhugamaður um silungsveiði. □ Veiðidoðinn í Þing- vallavatni ríkinu að kenna? Áhugamaður um silungsveiði sem raunar kallar sig Jakob ær legan, hringdi eftirfarandi orð- sendingu til blaðsins: „Nú eru menn í veiðihug, líka þeir sem ekki hafa efni á að fara í lax. Ég hef á undanförn- um sumrum oft skroppið í vötn in hérna í nágrenninu og keypt þar ódýr veiðileyfi. Þetta hafa margir notfært sér og oft haft nokkra silunga upp úr krafsinu. Nú fór ég á dögunum með stöngina mína austur að Þingvöllum sem oftar og hugs- aði mér gott til glóöarinnar, blíð skaparveður var en ekki mikil sól, gott veiðiveður. — En viti menn, þa-rna dorgaði ég allan daginn án þess svo mikið að verða var. Hverju sætir þetta? Hér áður, þegar ég var þarna hafðj ég prýðilega veiði. Er ekki ríkiö búið að eyðileggja veiðina f vatninu með virkjununum? — Ég man það til dæmis, þegar Hrafallsvirkjunin var byggð, þá var mýið drepið gjörsamlega nið » ur með skordýraeitri og hefurj kannski ekki náð sér fyllilegaj síðan. Þar með auðvitað dregið • úr lífsmöguleikum fisksins íj vatninu. Auk þess hefur yfir- • borð vatnsins breytzt við virkj- • animar. Nú er ég sízt að amastj við virkjununum. En væri ekki • hægt að bæta þetta upp? Er ekki 2 siðferðiieg skylda ríkisins aðj koma upp öfiugu silungseldi við • vatnið og sleppa í það seyðumj til þess að ná aftur upp veið- • inni? Mætti ekki nota til þess • eitthvað af því fé, sem fec til • reksturs hinnar umdeildu laxa-« eidisstöðvar í Kollafirði?“ J Jakob æriegur. • □ Hreint land — fagurt j land — ekki S alls staðar j Það þarf að herða eftirlit með"* hreinlæti og hreinlætisaðstöðu* úti á landsbyggðinni, ef „HreintJ land — fagurt land” herferðin á • að bera einhvern árangur. ÉgJ sting upp á því, að herferöinni» verði beint að „sjoppuósóman- • um“. Ruslafötur með loki bæðij inna-n- og utandyra við hverja • sjoppu — annars verði hennij lokað. Það getur enginn farið • þess á leit við ferðamanninn að • hann hafi ruslafötuna með sérj að 'heiman ef aðeins er um helg • arferð að ræða eins og þá er ég J fór í um siðustu helgi. Komið J var við í einni sjoppu á leiðinni* og keyptar pylsur — engin rusla J fata var sjáanleg til þess að» stinga pylsubréfinu í, eftir að J þessi „matvara“ hafðj verið inn • byrt. Einnig mætti benda sjoppu • eigendum á það að kenna starfsj fólki sínu almennt hreinlæti, • sem er m.a. í þvi fólgið aðj stinga ekki þumalfingrinum íj pylsubrauður til að „opna“ þaðo fyrir pylsuna — eins og gerðist J í þessu tiifeHi. • Helgarferðalangur. • □ Nöldurskjóður J Karl úr vesturbænum sendi • okkur tóninn: J „Hvemig er j>að eiginlegaj með þessi árans dagblöð sem út • koma hérlendis. Það er eins ogj ekkert dagbiað telji sig standa • undir nafni nema það haldi úti* eirthverjum lesendadálki. Öll J biöðin eru full af velvököndum • landförum, bæjarpóstum og les-J endur-hafa-orðið-mönnum, Get- • úr það verið að fólk nenni endaj laust að skrifa þessum dagblöðj um og kvarta undan einhverj- • um fjáranum? J Min skoðun er sú, að það séu» heldur innan tómar sálir sem • þanig nenna að þenja sig á J prenti dag eftir dag — því ef-* laust er þetta mest sama fólkið, J sömu nöldurskjóðurnar, ætla ég* að segja, sem hamrar stanzlaust# geðvonzku sina inn á siður dagj biaðanna. Það virðast engin tak- • mörk fyrir því, hvað fólk geturj verið nöldursamt og hundleiðin* legt. I Ég vil vera í góðu skapi —J einkum þegar sólin skín. Ég hef« aidrei skrifað bréf til velvak-, anda bæjarpósts eða land-» fara — heldur ekki til lesendur-J hafa-orðið. J Kringur“.» HRINGIÐ I S(MA 1-16-60 KL13-15 FÁAR FRÍSTUNDIR TIL LISTIÐKUNAR — jbegar sinna þarf á 3. hundrað Islendingum á sólskinseynni Jónas Guðvarðarson heitir ungur íslendingur búsettur á- samt fjölskyldu sinni suður í Miöjaröarhafi á ey þeirri, sem hvaö kunnust er íslendingum, •— Mallorka. Jónas er listmálari og tók sig upp fyrir 3 árum á- samt konu og þrem börnum og hélt suður til Barcelona til að læra við listaskóla þar í borg. Síðan fékk hann þann starfa fyrir ferðaskrifstofuna Sunnu að leiðbeina Islendingum á Mall orka og hafa þau hjónin Dóra og Jónas siðan haft yfirumsjón með móttöku ferðamanna þar. „Auðvitað er starf mitt hér ekki það alira bezta sem hugs- azt getur, eigi maður að ástunda llstir“, sagöi Jónas, sem í sum ar sér um móttöku a.m.k. 2000 íslendinga sem fljúga suður á bóginn í leit að sólskini, fögru landsiagi, fornum minjum, næt urlffi, glensi og gamni. Sunna hefur fjóra starfsmenn á skrifstofu sinni í Palma, höfuð borg Mallorka og veitir ekkj af. Starf þessa fólks er mjög mikið og vandasamt, enda mörg vanda málin sem leysa þarf úr. í síðustu viku hófst fyrir alvöru feröamannastraumurinn til Mall orka með flugvél Air Viking, og næstu vikurnar verður fiogið vikulega með farþegana. Jónas Guövarðarson starfaði sem skrifstofustjóri fyrir nokkr um árum hjá sölunefnd varnar- liðseigna í Reykjavík, en stund aði einnig listmálun I fristund- um. Það var því mikið stökk | að fara utan með fjöiskylduna í til náms í ókunnu landi, — erfið j ákvörðun. Samstillt og samtaka ’ hélt fjölskyldan þó á mót ævin týrunum, — og er nú góðri j reynslu ríkari. Ekki kváðust þau Jónas og Dóra hafa ákveðið um framtíðina, hvort þau flyttu aft ur til Hafnarfjarðar, þar sero þau eiga sér snoturt einbýlishús, eða héldu áfram störfum og námi á Mallorka en synir þeirra tveir stunda nám á Mallorka en dóttirin, sem er elzt hefur að undanförnu starfað hjá banda- rískri fjölskyldu í nágrenni Genfar. — JBP ÞJÓNUSTA MÁNUD. TIL FÖSTUDAGS. Listiðkun er erfið fyrir mann, sem ábyrgur er gagnvart alit a 300 isl. ferðamönnum, sem dvelja munu í sumar suður á Malloiit — en alls er reiknað meö a. m. k. 2000 ísl. gestum á eynni. - Hér er Jónas Guðvarðsson með Kristsmynd, sem haim heft unnið við í frístundum, en úr þessu verður vart um frístund að ræða. (Ljósmynd: JBF ÚTB0Ð Sé hringt fyrir kl. 16, sœkjum við gegn vœgu gjaldi, smóauglýsingar ó tímanum 16—18. Staðgreiðsla. VÍSIR Tilboð óskast í smíði og fullnaðarfrágang eft- irtalinna húsa: 1. Póst- og símahús á Egilsstöðum, seinni áfangi. 2. Hús pósts og síma og Landsbanka íslands í Grindavík. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Síma- tæknideildar, á 4. hæð í Landssímahúsinu í Reykjavík, gegn 5.000 króna skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama staö, þriðjudag- inn 11. ágúst 1970 kl. 11 árdegis. Póst- og símamálastjómin.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.