Vísir - 07.08.1970, Síða 2
SiÐÆ'N
7
Ráðherrar flytja
Reginald Maudling, innanríkis-
ráöherra Breta er nú fluttur I
aðra af tveimur átta herbergja í-
búðum sem eru í Whitehall, Lon-
don. 1 Admirality house, White-
hall eru tvær ráðherraíbúðir og
fær Maudling þá sem fyrrum
varnamálaráðherra, Denis Heal-
ey hafði.
Healey og fjölskylda eru flutt
i einbýlishús sitt í Highgate,
London.
Maudling er þegar búinn að
leigja út íbúð sína sem hann
áður bjó í og sagði að hann von
aðist til að geta gert leigusamn-
ing til margra ára. Enn er ekki
ákveðiö hvaða ráöherra hljóti
hina ibúðina í Admirality house,
en hús þetta er 185 ára gamalt
og hefur nýlega verið endur-
byggt og viðgert fyrir £140.000.
QDDDDDDDDD
77 ÁRA GAMALLOG ENN VINSÆLL
— „mestu múli skiptir oð veru kótur"
Jimmy Durante er bandarísk-
ur skemmtikraftur og að sögn
óhemju fjörugur karl. Hann þeyt
ist um sviðið þvert og endilangt
dansar. Kannski er það ekki neitt
sérstakiega forvitnilegt, Banda-
ríkin eru fuli af alls konar brand
arakörium sem troða upp á sviöi
miklu athyglisverðara, að Jimmy
Durante er orðinn 77 ára gam-
all og lætur aldurinn ekkert á
sig fá.
segir hann, „ég held enn sama
starfsþrekinu og þegar ég var
fimmtugur unglingur. Og hvers
vegna ætti ég að vera að hætta
og fara á eftirlaun núna, þegar
ég stend á hátindi ferils míns?“
Og Jimmy gefur öllum sem
vilja upplýsingar um hvemigviö
halda beri æskunni: „Reynið bara
að láta ekkert fara í taugamar
á ykkur. Hvaö gerir það til þó
manni mistakist eitt kvöldiö?
Maður lofar sjálfum sér bara að
gera betur næst! Ég er alltaf að
gera hræðileg mistök — en ég
fæ aidrei magaverk þeirra vegna.
Ég segi bara: Til helvítis með
það allt saman. Þetta verður allt
í lagi á morgun. Og ég er aldrei
þreyttur, vegna þess að ég nýt
þess sem ég geri. Margt fólk fer
til vinnu á hverjum morgni en
hatar starf sitt eða brauöstrit
yfirleitt. Það fólk getur aldrei
náð árangri. Maður verður nefni
lega að njóta þess sem maður
gerir“, segir Jimmy Durante og
slær með krepptum hnefa í loft
ið orðum sínum til áherzlu!
og segir brandara, syngur og og skemmta fólki, en hitt er „Ég er sko komungur enn þá“,
Jimmy Durante í sviðsljósinu: Með honum er Eddie Jackson, gamall félagi hans í skemmti-
iðnaðinum. Durante er þarna að syngja á nætur klúbb f Chicago.
„Styttir upp kl. 6“
George Sullivan, borgarstjóri i
Anchorage í Aláska átti að vera
gestgjafi í veizlu einni sem hefj
ast átti kl. 7 síðdegis. Til veizl-
unnar áttu að koma ýmsir stjóm
málamenn og var fyrirhugað að
veizian yrði haldin utanhúss.
Allan daginn áður en veizlan
hófst, rigndi stöðugt og var tal
að um að fresta veizlunni. Er sá
möguleiki var borinn undir borg
arstjórann svaraði hann aðeins:
„Það styttir upp klukkan sex“.
Og sjá — klukkan sex var orðið
skafheiðríkt.
YÍSINDAMAÐUR TÓKST Á
HENDUR LSD-„FERÐALAG“
— boðar s'iðan unglingum skaðsemi fiknilyfja
□DDDDDDDDD
Ráðizt á söngkonu
Anita Lindblom, sænska söng-
konan sem er í útlegð 1 Frakk-
landi vegna skattamála varð fyr-
ir árás á veitingahúsinu „Raspút
ín“ í París nýlega. Negrakona
réðst að henni vopnuð með hníf
og hótaði að rista ancllit hennar
f smátt. En Aníta Lindblom hafði
aðeins sötrað ávaxtasafa allt
kvöldið á „Raspútín" og senni-
legt er að það hafi bjargað henni,
því hún rétti þeirri svörtu nokkra
vel útlátna löðrunga, unz hún lá
i gólfinu. Sú með hnífinn dró
Anítu þó með sér f góifið og
náði að rispa annan fótlegg henn
ar.
□□□□□□□□□□
Lokað vegna hávaða
Einhver þekktasti skemmtistað
ur eða réltara sagt sælkerastaður
í París, Café de la Pair, var að
loka um daginn. Staðurinn hafði
opiö fram til síðustu mánaða-
móta, en lokaði þá fyrir fullt og
allt a. m. k. í þessum húsakynn
um, vegna þess „að hávaðinn í
nágrenninu var orðinn óþolandi"
að þvi er vertinn segir.
Þetta er í fyrsta sinn sem de
la Paix lokar síðan árið 1880.
Lambert Dolphin frá Polo Alto,
Kalifomíu er fyrrverandi geim-
vfsindamaður, en hann hætti
geimrannsóknum til þess að geta
helgað sig algjörlega fræðslustarf
semi meðal ungs fólks. Dolphin
er mjög áfram um að leiða ungl
ingum í ljós hættu sem stafar
af notkun eiturlyfja.
Og eiturlyfjahættan er nokkuð er
þessi 38 ára gamli vísindamaður
kannast við. Hann varð einn
hinna fyrstu meðal vísindamanna
í heiminum til að fara „f LSD
ferð“ árið 1963. Hann segir aö
það hafi tekið sig heilt ár að ná
sér að fullu eftir þá tilraun. ,
Síðan það var, hefur Dolphin
miðlað þúsundum unglinga af
reynslu sinni. Hann ferðast mik
iö um og hefur nú predikað yf-
ir börnum f meira en 50 gagn-
fræðaskólum það sem af er þessu
ári.
Dolphin hefur sagt í blaðaviðtöi
um að LSD-„ferðin“, hafi verið
„ferð sem ég aldrei mun gleyma.
Hún var á víxl bæði fögur og
hryllileg. Ég fann sjálfan mig og
týndi sjálfum mér. Myndir töl-
uðu við mig — hlutar líkama
míns hurfu. Ég bragðaði hljóma
og ég heyrði liti.
Allt þetta og meira til gerð-
ist á minni fyrstu og síðustu LSD
„ferð“. Ég tók inn skammt af
hinu svokallaða LSD-25 sem
álitið er mjög áhrifamikið og
hættulegt eiturlyf. Það var f jan
úar árið 1963 sem þetta gerðist,
áður en hippamenningin tók að
blómgast, áður en mikið var vit
að um fíknilyf. Það var líka áð-
ur en LSD varö ólöglegt.
Ég tókst „ferðina" á hendur að
allega af venjulegri forvitni vfs-
indamanns, en ég var, er þetta
átti sér staö, vísindamaöur við
Stanford Research f Kalifomíu."
Dolphin segir svo að hannhafi
skroppiö f túrinn undir eftirliti
tveggja ungra vísindamanna og
hafi heill dagur farið í að velt-
ast um f heimi ofskynjana. Og
lengi á eftir voru áhrifin frá
LSD-25 skammtinum að koma yf
ir hann. Stundum var eins og
einhver vera utan úr himingeimn
um skipaði honum að gera eitt-
hvað: „Stökktu ofan af þakbrún-
inni — þig hefir alltaf langað
til að geta flogið."
Loksins tókst Dolphin — að
því hann sjálfur segir — að
losna undan áhrifum og þá tók
hann sér langt frí til að jafna
sig að fullu og ná sálarjafnvægi.
Síðan þetta var hefir hann ferð
azt um og skýrt unglingum frá
reynslu sinni.
Lambert Dolphin fór í LSD-„ferð“. Hann segir að skammturinn
sem hann tók hafi kostað 500 dollara, en hins vegar hafi gjald
það, er hann hafi orðið að greiða tilfinningalega, verið marg-
falt hærra. Myndin er tekin á biaðamannafundi sem hann hélt
efíir að hann hafði náð sér sftir „ferðina“.