Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1937, Qupperneq 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
407
Jólciscigci
Eftir
Kristmcinn Quðmundsson
Jólanótt — Ijósin voru sloknuð
víðast hvar, og það var dimt
yfir bænum, skýjaður himinn,
þokusúld. Draugalegt hrimhljóð
frá Gróttu, stormur í aðsigi, en
logn í borginni. Fólk var lagst
til hvíldar eftir hátíð kvöldsins;
aðeins næturvörðurinn ungi reik-
aði hljóður um votar og eyðileg-
ar göturnar. Götuljósin lýstu
dauft eins og þau værú líka að
sofna, það sýndust vera hringir
um þau í úðaþokunni; og asfalt-
ið gljáði svart, göturnar líktust
myrkum gljúfrum. Næturverðin-
um unga fanst hann vera á ferli
um heim þar sem alt líf var löngu
liðið undir lok. Hann hafði reynt
að hressa sig upp og hrista af
sjer töfra þessarar þögulu og
drungalegu nætur, þá vímu dauða
og kyrðar sem fylgdi henni, en
honum tókst það aðeins í svip.
Friður og eyðileiki miðsvetrar-
myrkursins var í hlóði hans og
taugum; sól og dagur var svo
órafjarlægt — hafði nokkurntíma
verið surnar ? Alt umhverfið var
svo lífssnautt og húmað, eins og
skuggabygð á rústum löngu lið-
innar veraldar.
Þó var ókyrð og fjálgleiki í
huga hans, óljós ótti, raunakend
eftirvænting. — Síðastliðnar tvær
nætur hafði veðrið verið eins og
nú, brimgnauð frá nesjum, en
lygn vætumóða hjer við sundin.
Og það hafði skeð nokkuð und-
anfarnar nætur. Ur dimmu ríki
vetrarnæturinnar hafði gestur
vitjað bæjarins, þögul og ein-
kennileg kona, sem virtist heyra
myrkrinu til.
Næturvörðurinn ungi var að
hugsa um þessa konu. — Klukkan
var langt gengin tvö fyrstu nótt-
ina, þegar hann mætti henni. Það
var eins og hún leystist út úr
myrkrinu alt í einu, og það fór
hrollur um hann, honum fanst þá
þegar eitthvað annarlegt við hana.
Hún gekk svo undarlega, álút,
og horfði niður fyrir fætur sjer,
eins og hún væri að leita að ein-
hverju. Og svo riðaði hún dálít-
ið, eins og hún væri undir áhrif-
um víns. Þegar hún fór fram hjá
honum á gangstjettinni sá hann
að fötin hennar voru vot; hún
hafði heldur enga yfirhöfn og hár
hennar fjell laust niður um herð-
arnar. Það var rennandi vott líka.
Alt látbragð hennar lýsti einhverj-
um óskiljanlegum dapurleika og
umkomuleysi; það var eins og hún
vissi ekkert hvað hún ætti af sjer
að gera.
Hann ætlaði að stöðva hana og
liafa tal af henni, en hann kom
ekki upp nokkru orði; það var
kominn eins og einhver doði í
hann allan, eins og hann rjeði
ekki fullkomlega gerðum sínum
lengur.
— Næturvörðurinn ungi var
djarfnr maður og laus við draum-
hyggju. En einmitt þessvegna var
hann máske miður við því búinn
að mæta hinu óvænta. í fyrsta
sinn kendi hann á þessari stundu
lamandi ótta, en jafnframt sárs-
aukablandinnar sælutilfinningar,
eins og einhver, sem hann hafði
þráð lengi, hefði birst honum í
svip. Hvert smávægi í útliti henn-
ar festist honum í minni: Hún
var grönn, í síðum dökkum kjól;
andlitið hvítt, náfölt, en ungt og
barnslegt; vangasvipurinn eins og
á marmaramynd eftir fornaldar-
meistara, þýður, hreinn, sveipað-
vrr yndisþokka, — en með blæ
óhuggandi vonleysis. —
Hann fylgdi henni eins og í
draumi. — Hún kom frá höfninni
og hjelt upp Pósthússtræti.
Það er ekki langt að dómkirkj-
unni, en honum fanst þau vera
Kristmann Guðmundsson.
óratíma á leiðinni þangað. — Hún
nam staðar við tröppurnar fyrir
framan kirkjudyrnar, lyfti ekki
höfði, stóð þar hreyfingarlaus eins
og hún hefði gleymt sjer. — Hann
staðnæmdist líka, þögull og ráð-
þrota. Kirkjan reis yfir þeim, há
og myrk í þokunni eins og í
dauðra manna gröf. Hann vissi að
það var skylda hans að tala til
hennar, þessarar undarlegu ó-
kunnu konu, krefjast skýringar
á þessu ferðalagi hennar, og bjóða
henni liðsinni sitt ef þess þurfti
með. En það var eins og munni
hans væri lokað af ósýnilegri
hönd, hann kom ekki upp nokkru
orði. Svo beið hann hljóður með-
an hún stóð þarna við kirkju-
tröppurnar, — hve lengi það var
vissi hann ekki; máske aðeins
nokkrar mínútur? — Alt í einu
sá hann að hendur hennar lyftust
lítið eitt, báðar í einu, og jafn-
framt tók hún eitt skref fram
eins og hún vildi halda áfram
upp tröppurnar. Þetta endurtók
sig nokkrum sinnum, en í livert
skifti sigu hendur hennar niður
aftur og hún hörfaði til baka.
En þessar hreyfingar voru svo
vonleysislegar og hikandi, eins og