Lesbók Morgunblaðsins - 29.11.1980, Qupperneq 5
I
hann kynnti tvo heiðursmenn fyrir mér.
Það var úti í Berlín 1938, að við
hittum á götu íslending, sem Eggert
þekkti. Hann sagði: „Má ég kynna fyrir
þér vin minn, Þórarin Jónsson tónskáld
frá Mjóafiröi, hérna Heiðbláa fjólan mín
fríða?“ Og 10 árum síðar hittum viö
annan listamann í veitingahúsi í Reykja-
vík. Þá sagði Eggert við mig: „Þetta er
vinur minn elskulegur, Siguröur skáld
frá Arnarvatni, Blessuð sértu sveitin
mínl“
Það mun hafa verið árið 1958 aö
Eggert tekur á leigu afar skemmtilega
risíbúð í nýlegu húsi á horni Háteigsveg-
ar og Lönguhlíöar. Þar var fagurt útsýni
til allra átta. Eggert vildi ólmur sýna mér
herlegheitin og við röltum því af stað. Er
við komum upp á tröppur hússins
staðnæmdist Eggert og tók að benda
mér á það markverðasta, sem fyrir
augun bar. „Þarna er Háteigur, þarna er
verið að reisa 4ra turna cathedral —
Háteigskirkju — þarna er Sjómanna-
skólinn og vatnsgeymirinn gamli.“ Svo
bendir hann í austurátt á kirkju Óháða
safnaðarins og segir brosandi: „Og
þarna er litla kirkjan hans Andrésar
skraddara." (Andrés klæðskerameistari
Andrésson var fyrsti formaður sóknar-
innar.)
Fyrsta flokks kontóristi
Það var á stríðsárunum, aö Eggert
brá sér til Bandaríkjanna. Var hann um
tíma í New York hjá vini sínum Fritz
Kjartanssyni síldarkaupmanni. Vinir
Fritz vissu, að hann var gáfaður, en
værukær og enginn kontóristi. Þegar
Eggert snéri heim til íslands spurði ég
hann frétta, m.a. um Fritz. „Hann hefur
það fínt, hefur kontór í Wall Street og
kemur þar svo sem einu sinni í viku til
að sénda telegrams og skrifa undir
tékka," sagði Eggert. Þetta var áreiöan-
lega að hann áliti einn angi hins Ijúfa lífs!
Meðal elztu og tryggustu vina Eggerts
var tvímælalaust Björn Ólafsson ráö-
herra. Þegar Björn var menntamálaráð-
herra, vildi Eggert leggja á ráðin hjá
honum í menningarmálunum. En Björn
var ekki leiðitamur og mislíkaði Eggert
þaö oft. Einu sinni kemur Eggert til mín
og er í leiðu skapi. Hann er að koma
ofan úr stjórnarráði frá Birni, og hafði
ráöherrann hafnaö einhverju þjóðráöi,
sem Eggert gaukaði að honum. Og nú
vandaði hann Birni ekki kveöjurnar. Og
eins og vant er, þegar hallað er á
sjálfstæðismenn, tók ég upp hanzkann
fyrir Björn. Ég sagði m.a. að ég sæi ekki
annað en að Björn væri fyrirmyndar
embættismaður. Þá segir Eggert: „Satt
er það að allt er í röö og reglu á
skrifborðinu hjá honum, hann svarar
bréfum á réttum tíma og afgreiöir menn,
sem eiga erindi við hann. Hann er sem
sé fyrsta flokks kontóristi, en ekki
stjórnmálamaður fyrir fimm aura!“
Aö endurtaka vegna
fjölda áskorana
Þaö var einhverju sinni á stríösárun-
um, aö Eggert kemur til mín og segir
mér þau tíðindi, að nú ætli hann aö
halda konsert og kveðja sönginn. Hann
sýndi mér söngskrá, sem hann hafði
sett saman og spurði, hvernig mér litist
á prógrammið. Ég sagði eins og var, að
mér litist illa á það, því þaö væri allt of
háfleygt og þungt. Ég sagði honum, að
ég vildi, aö hann syngi létt, falleg og
vinsæl lög, til að mynda Kaldalónslögin,
og svo auðvitað ítölsk lög. Lög sem
kæmu manni í gott skap og maður
flautaði ósjálfrátt, þegar út af konsertin-
um væri komiö. Eggert varð mjög hugsi,
en sag£i svo: „Þú ert the man in the
street, og kannski ætti maður einu sinni
að fara eftir því sem lýðurinn segir.“
Það verður síðan að ráði að næsta
dag boöum við til fundar við okkur í
stúdíói Eggerts hjá Hemco mann, sem
að vísu var ekki oröaður neitt sérstak-
lega við músík, en haföi hins vegar orö á
sér fyrir aö vera seigur viö að selja
aögöngumiða á konserta, Lárus Blöndal
bóksala.
í stúdíóinu ræddum við málið frá
ýmsum hliðum, og kom þá fram sú
hugmynd, að bezt væri aö hafa
skemmtunina í kabarettformi, þar sem
ýmsir listamenn kæmu fram, en aöal
númerið yröi að sjálfsögðu söngur
Eggerts með undirleik bróður hans,
Sigvalda Kaldalóns.
Þegar ég stakk upp á því, að einn af
elztu og beztu vinum Eggerts, Vilhjálmur
Þ. Gíslason flytti formálsorö, varð Egg-
ert aö oröi: „Á ég nú líka að lofa
aumingja Vilhjálmi aö vera meö og flytja
prologus?"
Það er skemmst frá því aö segja, að
Eggert kvaddi sönginn í lönó. Var það
mikil og góð skemmtun, húsið troðfullt
og stemningin gífurleg. Hápunkturinn
var, þegar Eggert söng síðasta lagið —
Good Bye — og yfirgaf senuna áöur en
seinustu tónarnir voru hljóðnaöir. Þá
ætlaði allt um koll aö keyra af fögnuöi.
Daginn eftir hittumst viö í Austur-
stræti. Er viö höfðum rabbað þar
nokkuð saman, brýtur Eggert upp á því,
aö sennilega hafi nú ekki allir komizt á
konsertinn, sem viljað hafa, og réttast
væri að efna til annarrar skemmtunar.
Ég minnti hann þá á í stríönistón, aö
hann væri búinn aö kveðja sönginn, og
vinir hans treystu því, aö hann stæði við
það! Þá sagði Eggert og brosti sínu
breiöa brosi:
„Þið variö ykkur ekki á því, þessir
andskotar, að það er alltaf hægt aö
endurtaka vegna fjölda áskorana!"
Ég gæti sagt ykkur margar fleiri sögur
af vini mínum, en einhvern tíma verður
að segja amen. Samt get ég ekki stillt
mig um að klykkja út meö þessari sögu:
Svo Ijónin geti nagað
hnúturnar í friði
Það var á fundi hjá okkur í Lions-
klúbbnum Þór. Eggert er heiöursgestur
og ætlar að lesa upp úr verkum sínum.
Karl forstjóri í Björnsbakaríi er formaður
og stýrir fundi. Það var mjög jafn-skjótt,
að formaöur býður Eggert velkominn og
gefur honum oröið og þjónarnir Ijúka
viö að bera á borö baunir og saltkjöt,
girnilegt mjög, enda sprengidagur.
Menn eru svangir og taka hraustlega til
matar síns. Þegar Eggert er tæplega
hálfnaður með sitt mál, er svo komið, aö
varla heyrist í honum fyrir glamri í
diskum, hnífapörum, kjamsi og smjatti í
mönnum. Eggert er að sjálfsögðu orö-
inn öskureiður, en er þó stilltur vel.
Hann snýr sér virðulega aö formannin-
um, tekur ofan gleraugun, hneigir sig og
segir: „Herra formaður, nú skal ég fella
lesturinn í bili, svo Ijónin geti nagað
hnúturnar í friöi!“
Silfurbrúðkaup Lelju og Eggerts Stef-
ánssonar. Veizla á Nýja-Garði.
Á myndina vantar marga veizlugesti, t.d. Halldór Laxness
og frú, Vilhjáim Þ. Gíslason og frú, Agnar Koefod og frú,
Ingibjörgu á Reykjum, Björn Pétursson og sjálfan
brúögumann, en málverk af honum (eftir Gunnlaug
Blöndal) hangir á milli glugganna.
1. Þórdts Andrésdóttir 15. Luðvig Hjálmtýsson
Z Gunnar A. Jónsson 16. Krístjana Pétursdóttir
3. Snæbjöm Kaldalóns 17. Jón Bjamason
4.? 18. Jón Gunnlaugsson
5. Dr. Gunnlaugur Þórðarson 19. Herdts Þorvaldsdóttir
6. Einar Amalds 20. Páll ísólfsson
7. Magnús Helgason 21. Frú Gunnlaugs Blöndal
8. Hjörteifur Elíassson 22. Eyja Amakis
9. Dr. Gunnar Thoroddsen 23. Gunnlaugur Blöndal
10. Margrél Kaldalóns 24. Hafliði Helgason
11. Lelja Stefánsson 25. Fjóla Ólafsdóttir
12. Dr. Halldór Hansen 26.?
13. Selma Kaldalóns 14, Gudlaug ekkja Bjama frá Vogi 27. Vala Thoroddsen
©