Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.1982, Blaðsíða 15
Húsgögn á markaðnum
Útskorin
húsgögn
halda alltaí
velli
"XL '
ÍK 1 B M
WBhajpm [j| .
í húsgagnaþáttum þessum, sem
hófu göngu sína í sumar, hafa verið
kynnt nýtízkuleg húsgögn og einnig
hefðbundin, — en báðir þessir
flokkar skiptast í margar undirdeild-
ir.
í síðasta þætti voru til dæmis
kynntir enskir stólar og sófar með
hefðbundinni vattstungu. Annað —
og trúlega ennþá hefðbundnara, eru
svo útskorin húsgögn. Raunar má
alveg fullyrða að þau eigi sér lengsta
sögu ails þess, sem fæst á húsgagn-
amarkaði og nægir að benda á út-
skurð forfeðra okkar, víkinganna.
Sá þráður hefur aldrei slitnað. En
nú á dögum vélvæöingar í húsgagna-
iðnaði eru handskornir munir
sjaldgæf fyrirbæri. Það er einfald-
lega of seinvirk aðferð i fjöldafram-
lciðslunni. Þeir framleiðendur eru
þó tU, sem hafa haldið sínu striki í
handskurði á tréverki — og þeir
hafa átt sinn kaupendahóp ekki síð-
ur en aðrir.
Handskorin húsgögn hafa verið
fáanleg á husgagnamarkaði hér síð-
asta áratuginn og ugglaust Iengur.
Mesta úrvalið hefur verið frá Wood
Bros í Englandi; kallað Old Charm.
Lengi vel voru þessi Old Charm-
húsgögn seld í Húsgagnaverzluninni
Dúnu, sem hefur nú hætt smásölu,
en búðin er áfram í Síðumúla 23 og
hefur Húsgagnaverzlunin Víðir tekið
við henni og selur Old Charm áfram.
Þarna er um margt að velja; eink-
um skápa af ýmsum gerðum og
borðstofuhúsgögn. En einnig fjöl-
breytt úrval af smáborðum og stól-
um, jafnvel bar og hjónarúm með
himni.
Hér verður látið nægja að kynna
boröstofu, sem er svo klassísk, að
hún gæti verið úr búi langafa og
langömmu. Þetta eru eikarhúsgögn í
ævagömlum stíl, en eikin er öll
massíf og hægt að fá hana bæsaða
með tvennskonar blæbrigðum. Borð-
stofuboröið er hægt að lengja uppi
2,65 m; það er á útskornum súlufót-
um og með þverslá. Verðið á því er
kr. 13.450.
Stólarnir eru úr samskonar eik
með útskurði og yfirdekkt meö
nautsleðri. Verðið er 4.950 kr. stykk-
ið, en armstólarnir kosta kr. 6.450.
Ýmsar gerðir borðstofuskápa eru fá-
anlegar með, en skápur eins og sá
sem sést á myndinni kostar kr.
23.600. Allt borðstofusettið kostar
því kr. 70.140.
Húsgagnaverzlunin Heimilið hf. á
Sogavegi 188 hefur um árabil haft á
boðstólum útskorin húsgögn, innflutt
frá Belgíu. Væntanlega verður svo
áfram; þar á meðal þetta útskorna og
virðulcga borðstofusett, sem er að
segja má klassískt í þá veru, að annar
skápurinn er hár og með gleri í hurð-
um, en hinn á breiddina og hugsaður
sem góð hirzla fyrir það sem heyrir til
borðstofu. Borðið er sporöskjulagað
og undirstrikar þær mjúku línur, sem
víöa koma fyrir, t.d. í öllum fótum.
Trúlega er þó ekki hægt að heimfæra
þetta uppá neinn ákveðinn stíl.
Efnið er eik, sem allsstaðar er
massíf nema í borplötunni og um út-
skuröinn er það að segja, að hann er
að vcrulegu leyti vélunninn, en að lok-
um yfirfarinn með handverkfærum.
Sumt er raunar þess eðlis, t.d. skreyt-
ingarnar efst á skápnum, að þar verð-
ur einungis að handskera. Áklæðið á
stólnum er pluss.
í fuliri stærð er borðið 2,30 m á
lengd og er þá rúmgott fyrir 10
manns. Það kostar eitt sér kr. 10.600.
Stólarnir eru á kr. 2.100 stykkið,
glerskápurinn á kr. 10.150, en aðal-
skápurinn er á kr. 23.600. Hann fæst
einnig styttri. Eins og sjá má á inn-
felldu myndinni, fæst sami skápur
cinnig með yfirstykki, þar sem hægt
er að raða diskum samkvæmt gamalli
hefð. Hann kostar kr. 34.300.
Allt settið, sem á myndinni sést:
Borð, 6 stólar og skáparnir tveir, kost-
ar samtals kr. 56.950.
r i