Alþýðublaðið - 22.04.1989, Page 6
6
Laugardagur 22. apríl 1989
BILASTÆÐASJOÐUR
Velkomin á Bakkastæði
Bakkastæði er tölvustýrt. Gjaldskylda er frá 09.30-19.00 mánud.-
föstud. Ókeypis er frá kl. 19.00-07.30 og um helgar, ýta verður þó á
hnapp og taka segulmiða til að opna innhlið og nota síðar við úthlið.
Setja verður miðann í aflesarann áður en ekið er að úthliði til að opna
slána.
Gjaldið er 30 kr. fyrir fyrstu klukkustundina, en síðan 10 kr. fyrir hverj-
ar byrjaðar 20 mínútur. Miðaaflesari við varðskýli tekur við þrem
myntstærðum, 5 kr., 10 kr., og 50 kr., og getur gefið til baka. Týnist
segulmiði skal ýtt á hnappinn „týndur miði“ og verður þá að greiða
450 kr. til að fá nýtt segulkort og til að komast út sé vörður ekki á
stæðinu.
Mánaðarkort eru seld i varðskýli á 3000 kr., og verður hægt að kaupa
þau til fleiri mánaða í senn. Skilatrygging mánaðarkorts er 1000 kr.
Aðeins er ekið inn á stæðið frá Kalkofnsvegi og út í Tryggvagötu.
Leiðarvísir um gang mála
1. Ökumaður ýtir á hnapp vð innaksturshliðið og tekur segulmiða.
Hliðið opnast, ökumaður velur sér stæði og geymir miðann á sér.
2. Ökumaður kemur til baka að sækja bílinn, gengur að miðaaflesar-
anum við varðskýlið og setur miðann í miðaraufina. Aflesarinn
stimplar áfallið gjald. Okumaður greiðir gjaldið í sjálfsalann og
fær þá segulmiðann sinn aftur. Ef kvittun óskast skal ýtt á viðeig-
andi hnapp. Hefur ökumaður þá 10 mínútur til að komast út. Segul-
miðinn er settur í opnunarraufina sem gleypir hann og hliðið opn-
ast. Veröi menn lengur en 10 mínútur, þarf aö greiða 10 kr. viðbót-
argjald.
Gatnamálastjóri
MATARPAKKINN
MARS '88—APRÍL '89
Hér birtist verðkönnun Aiþýðublaðsins eftir nokkurt hlé. Matar-
pakkinn er samsettur úr ýmsu því sem telja má að meðalfjölskylda
kaupi á tilteknu tímabiii. I samanburði verður að gæta þess að ekki
þarf í ölium tilvikum að standast á magn það sem stuðst er við og
einingar eins og þær sem hægt er að kaupa úr búð.
MARS ‘88 APRÍL ‘89 HÆKKUN
Hagkaup 4.487.60 5.892.35 31.3%
Mikligarður 4.493.20 5.898.85 31.3%
KÁ 4.990.10 6.148.45 23.2%
Höfn 4.745.95 61.57.85 29.7%
Samtals 18.716.85 24.097.50 28.7%
Verðbólgan á fullt?
Gifurlegar hækkanir hafa orð-
ið á matarpakkanum, sem við
styðjumst við. Frá því í mars í
fyrra hefur vöruverð hækkað um
31,3%. Það er miklu meiri hækk-
anir en opinberar tölur mæla.
Verð var kannað í stærstu versl-
unum Reykjavíkur vikuna 11.-17.
apríl. Matarpakkinn okkar hefur
hækkað nákvæmlega jafnmikið í
Hagkaupi og Miklagarði frá því í
mars í fyrra. Hækkunin sem er
31,3% er miklu hærri en Hagstof-
an hefur mælt hækkanir á mat-
vöru í vísitölu
framfærslukostnaðar. Sam-
kvæmt könnunum Hagstofunnar
eru matvörur 21,4% dýrari í byrj-
un apríl sl. en þær voru í mars
1988.
íslensk króna rýrnað um
fjórðung gagnvart dollar
Á þessu tímabili hefur gengi ís-
lensku krónunnar breyst mjög
mikið. í marsbyrjun í fyrra var
gengið fellt hressilega. Bandarísk-
ur dollar var eftir það skráður á
39.50 ísl. kr. og þýskt mark á 23.41
krónur. Vöruverð hækkaði mjög
mikið í kjölfar gengisfellingarinn-
ar. Það kom skýrt fram í verð-
könnun Alþýðublaðsins í maí og
júlí.
í dag greiðum við 20-35%
meira fyrir erlendan gjaldmiðil en
fyrir einu ári. I gær var skráð
gengi Bandaríkjadals 52.47 ísl. kr.
og hafði hækkað um tæp 33%
eða skorið fjórða part af íslensku
krónunni. Fyrir 1 þýskt mark
þurfti í gær að borga 28.42 ísl. kr.
eða 21,4% meira. Hækkun þýska
marksins jafngildir hækkun verðs
á matvælum eins og vísitala fram-
færslukostnaðar segir til um.
Miklu minna faest___________
fyrir kaupið
Kaupmáttur greidds timakaups
hefur stórlega lækkað miðað við
verðhækkanir matarpakkans
okkar. í mars í fyrra tók það fisk-
vinnslukonuna 23.71 klst. að
vinna fyrir matarpakkanum, eins
og hann kostaði að meðaltali úr
verslunum fjórum, en í dag tekur
það hana 28.52 klst. Miðað er við
tímakaup sérhæfðs fiskvinnslu-
fólks og gert ráð fyrir því að sá
(sú) sett) vann í mars í fyrra hafi
hækkað um launaþrep vegna
starfsreynslu.
smmMmsnúmD
; lumjJSíAMM
Skrifstofur Sambands íslenskra samvinnufélaga í Reykjavík hafa nú verið
fluttar af Sölvhólsgötu 4 í nýja Sambandshúsið á Kirkjusandi.
Deildirnar sem um er að ræða eru: Búvörudeild 3. næð
Fjárhagsdeild 4. hæð
Sjávarafurðadeild 4. hæð
Forstjóraskrifstofa 5. hæð
í næsta mánuði flytur Skipadeild frá Lindargötu 9a
og verðurá 1. og 2. hæð Sambandshússins.
Verslunardeild er áfram I Holtagörðum og Búnaðardeild í Ármúla 3.
Símanúmer skiptiborðs Sambandsins er69 81 OO.
Sérstakt símanúmer Sjávarafurðadeildar er69 82 OO.
^ SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
SAMBANDSHÚSINU KIRKJUSANDI 105 REYKJAVIK
Mars 1988 April 1988
Pakkinn kostar að meðaltali kr. 4679.21 kr. 6029.53
Hversu langan tímatekur að vinna fyrir pakkanum 23,71 klst. 28,52 klst.
BHMR-maðurinn þyrfti
32% kauphækkun___________
Samkvæmt kjarakönnunum
hafa eiginlegar launabreytingar
orðið meiri hjá fólki í Alþýðu-
sambandi íslands en hjá starfs-
fólki hjá ríkinu, sem fylgir taxta
háskólamanna.
Vegna deilna háskólamanna
við ríkið er fróðlegt að rýna í tölur
um mögulega kauphækkun
þeirra, ef miðað er við starfsfólk
í BHMR haldi óbreyttum launum
að loknum samningum nú miðað
við kjörin eins og þau voru í mars
í fyrra. BSRB-samningarnir sem
samþykktir voru í gær gilda út
nóvembermánuð. Ef gert er ráð
fyrir því að samningar BHMR
giltu til jafn langs tima lítur dæm-
ið þannig út:
Launabreytingar hjá kennara
með háskólamenntun
(Laun í mars 1988: 100)
Launaflokkur laun i mars 1988: laun i apríl 1989
144. 4. þrep: 100
144. 5. þrep: 108.7
A-.f
Verðbreytingar í Hagkaup og Miklagarði
(Verðiag í mars 1988: 100)
Verð á matarpakka
í nóv 1989
i mars 1988 i apríl 1989 (10% hækkun)
Verölag:
(Miöað við Hagkaup
og Miklagarð) 100 131.3 144.43