Vísir - 01.11.1978, Blaðsíða 8

Vísir - 01.11.1978, Blaðsíða 8
8 fólk Kjóllinn rifnaði Söngkonan Dolly Par- ton var nýlega útnefnd besti skemmtikraftur ársins á stórri hátíð i Nashville, sem kölluð er „Grand Ole Opry". At- höfnin þótti all-söguleg. Á meðan Dolly sat úti í sal og beið eftir út- nefningunni tókst svo til aðkjóll hennarsem þótti all-skrautlegur/ rifnaði að framan. Söngkonan sem að sjálfsögðu þurfti upp á svið, greip með sér svarta kápu og hélt henni fyrir framan sig, svo gatið á kjólnum sæ- ist ekki. Meðfylgjandi mynd var tekin á meðan hún stóð á sviðinu. Með henni á myndinni, til hægri er söngvarinn Johnny Cash. ÞAULÆFDUR I HLUTVERKINU Tuttugu og sjö ár eru liðin frá því leikarinn Yul Brynner rakaði af sér hvert einasta hár á höfðinu. Það var árið 1951 og Brynner sem þá var lítt þekktur, tók að sér hlutverk i verki Rod- gers og Hammerstein, „The King and I". Verk- ið sló I gegn á Broad- way. Og nú er leikarinn aftur kominn að upp- hafspunktinum. Hann leikur nú sama hlutverk á Broadway, þvi verkið hefur verið sett í gang á ný. Leikarinn sköllótti hef ur í millitíðinni leikið þetta sama hlutverk, — sem reyndar er aðal- hlutverkið, — í kvik- mynd. Það var árið 1955, og mótleikari hans var Deborah Kerr. Á næsta ári stendur svo til að setja verkið upp í Lond- on og að sjálfsögðu verður Yul Brynner i aðalhlutverkinu þá. Umsjón: Edda Andrésdóttir Miðvikudagur 1. nóvember 1978 Og kom aö hliöinu um leiö og tveir komu út þess á móti honum. Bara aö nann kæmist nú inn sem John Shea SJ> í Þú viröist' Ég hitti mömmu þina og htín vildi fá aö vita hve miklu lengur ég ætlaöi aö láta þig vinna tlti fyrir letingja eins og mig. MI92 Bvlls t

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.