Vísir - 02.11.1978, Blaðsíða 4
4
Miövikudagur 1. nóvember 1978 VTSIR
Lesendur Vísis fá til lestrar umtalaða bók
Fyrsti kaflinn úr bókinni um Jackie birtist í Helgarblaðinu á laugardaginn
Visir hefur fengið einkarétt fyrir tsland til birtingar á efni Fjölmargt, sem fram kemur i bókinni hefur ekki komið
úr bókinni „Jackie Oh.” sem nýkomin er út i Bandarikjun- fram áður varðandi Jacqueline Kennedy Onassis og Kennedy
um. Bókin er i 22 köflum og verða þeir birtir nokkuð styttir i fyrrum Bandarikjaforseta, Onassis skipakóng og fleira þekkt
blaðinu næstu vikur. Fyrsti kaflinn mun birtast i Helgarblaði fólk. Ekki er að efa að efni bókarinnar mun vekja mikla at-
Vísis á laugardaginn en að jafnaði verða birtir þrir kaflar á hygli og umtal hér á landi ekki siður en i þeim löndum, þar
viku, á mánudögum, fimmtudögum og laugardögum. sem blöð hafa undanfarið birt efni hennar.
Kitty Kelley, höfundur bókarinnar um Jackie Kennedy Onassis:
„Sannfœrð um að lesendur
munu skilja Jackie betur
eftir að hafa lesið bókina"
Jacqueline Kennedy Onassis er stööugt I sviösljósinu. Þcssi mynd
var tekin fyrir um þaö bil þremur vikum, er hún ræddi viö rit-
höfundinn Norman Mailer i boöi sem haldiö var I New York I tengsl-
um við útgáfu nýs timarits um listir.
Margir neituðu að veita
upplýsingar.
Þaö er óvist aö Kitty Kelley
hafi gert sér grein fyrir þvi
hversu erfitt verkefni hún var
aö taka að sér þegar Tyle Stuart
útgefandi kom aö máli viö hana.
Hún hefur sjálf sagt aö þaö
fyrsta sem hún hafi orðiö aö'
venjast hafi veriö hljóðin þegar
simum var skellt á hana og þeg-
ar hurðum var lokað beint á
andlitiö á henni. Kelley haföi
samband við meira en 300 ein-
staklinga og segir þannig frá:
,,Ég komst að raun um þaö aö
bæöi vinir og óvinir Jackie ótt-
uöust aö fylgst væri meö þeim.
Ýmsir vinir hennar virtust
hræddir um að meö þvi aö tala
viö mig myndu þér velta úr
sessi hvort heldur i kerfinu eða
samkvæmislifinu.
Ein kona sagöi viö mig: „Ef
Jackie kemst aö þvi aö ég hef
rætt viö þig talar hún aldrei
framar viö mig.” — Ég komst
aö þvi að þessi kona haföi ekki
talaö við Jackie frá þvi 1968.”
óttinn við Kennedyfjöl-
skylduna
Höfundur hefur sagt aö ýmsir
hafi veriö tregir til að tala
vegna þess aö þeir töldu sig
skulda Jackie eða jafnvel aö
þeir ættu eitthvaö inni hjá
henni. Einnig hafi komið i ljós
hvilikt vald Kennedyfjölskyldan
hefur.
Maður sem ég haföi samband
við i einu af ráðuneytunum
sagöi: „Mér er alveg sama um
Jackie.Ég þoli hana ekki. Teddy
er hins vegar ennþá á lifi og á
meðan hann er þaö hvers vegna
ætti ég að segja nokkuð sem
gæti skaöaö sjálfan mig?”
Jackie skrifar ekki ævi-
sögu sjálf
Kelley er sannfærð um aö
Jackie muni aldrei sjálf skrifa
ævisögu sina.
„Hún hefur ekki nægilegan
sjálfsaga. Auk þess myndi hún
særa fjölda manna ef hún segöi
allt sem hún veit.”
Blaðamaður breska blaðsins
Daily Mail spuröi Kitty Kelley
hvort hún myndi sjálf. kjósa sér
Jackie'sem vinkonu.
„Ég er ekki viss. Ég met mik-
ils kimnigáfu hennar og hún er
stórkostleg móöir. A sama tima
veit hún vel af þvi hver hún er
og hvaða völd og áhrif hún hefur
og aö hún getur kvalið lifiö úr
óvinum sinum...”
Höfundur bókarinnar Jackie
Oh! hefur sagt um bókina:
„Kennedy forseti sagöi einu
sinni. „Versti óvinur sannleik-
ans er oft ekki lygin, hvort sem
hún er sögö visvitandi eöa ekki
heldur goösögnin sem er þrúg-
andi og óraunveruleg.” í bók-
inni um frú Onassis hef ég reynt
aö fara frá goðsögninni til raun-
veruleikans.”
Samúð með Jackie
Það er augljóst viö lestur
bókarinnar um Jackie að höf-
undur er ekki visvitandi aö særa
eöa móöga þá er hlut eiga aö
máli heldur aö vinna sem blaða-
maöur viö að draga upp sanna
mynd af þeim sem koma viö
sögu. 1 viötali viö Daily Mail
sagöi höfundur á dögunum um
þetta atriði:
„Ég leitast viö aö draga fram
ýmsar hliöar á hinn sérstæöa
lifshlaupi Jackie sem hingað til
hefur ekki verið rætt um. Ég er
sannfærö um að lesendur munu
finna til ákveöinnar samúöar
með henni og skilja Jackie bet-
ur. Sjálf sé ég hana i allt ööru
ljósi eftir aö hafa skrifaö bók-
ina.”
Kitty Kelley segir frá gifur-
legri peningaeyðslu Jackie i
Hvlta húsinu án þess þó aö bera
sinar eigin skoðanir á borö fyrir
lesendur.
Siöar i bókinni eftir moröiö á
Kennedy forseta segir hún frá
þvi hvernig niöurbrotin ekkjan
bar höfuöiö hátt og fór aö lifa
sjálfstæöu lifi.
1 bókinni er ekkert undan-
dregiö og þaö viröist boröliggj-
andi að mótmæli munu heyrast
allt upp i æöstu valdastofnanir
Bandarikjanna.
Kitty Keller, höfundur bókarinnar um Jackie hefur starfaö sem
blaöamaöur á stórblaöinu Washington Post og tók nýlega viö störf-
um sem ritstjóri sunnudagsfylgirits blaösins.
Kitty Kelley er höfundur bókarinnar um Jackie Onassis sem vak-
iö hefur athygli um allan heim. 1 bókinni er nákvæmar skýrt frá Hfi
þessarar heimsþekktu konu en nokkru sinni hefur áöur veriö gert.
Kitty Kelley var eitt ár aö grafast fyrir um fortfö forsetafrúarinn-
ar fyrrverandi og 1U hennar atmennt. Höfundurinn hóf feril sinn
sem blaöamaöur hjá Thc Washington Post. Nýlega var hún gerö rit-
stjóri sunnudagsfylgirits Washington Post. 1 millitlöinni hefur hún
starfaö hjá ýmsum biööum þar á meöal The New York Times og
Newsweck.
Kunnug
Washington
lif inu
Kitty Kelley hefur búiö i
Washington D.C. i 12 ár og
starfaði meöal annars sem
blaöafulltrúi hjá Eugene J.
MacCarthy öldungardeildar-
þingmanni i 4 ár.
A blaðamannaferli sinum hef-
ur hún skrifaö mikið um þaö
sem hefur átt sér staö i Hvita
húsinu og bak viö tjöldin I
Washington. Hún hefur kynnst
ýmsum af þeim sem þekkja
Jacqueline Kennedy Onassis.
Margir þeir sem hafa ætlö
neitað að veita viötöl hafa látið
tilleiöast aö ræöa viö Kelley.
Ýmsir kunningjar Kennedy-
fólksins ræddu viö hana og
leyföu aö nöfn þeirra yröu notuö
i bókinni aðrir veittu upplýsing-
ar gegn þvi aö nafni þeirra yröi
haldið leyndu.