Vísir - 02.11.1978, Síða 5
VISIR Fimmtudagur 2. nóvember 1978
5
Ólympíuskákmótið:
ísland vann
Venesúela
i 6. umferð
Islenska karlasveitin
sigraði Venesúela með
þrem vinningum gegn
einum i sjöttu umferð
ólympiuskákmótsins i
gærkvöldi. Er sveitin
þvi komin með 15 vinn-
inga en Rússar i efsta
sæti með 16,5 vinninga
og biðskák.
Rússarnir tefldu við Ungverja
og vann Spassky skák sina gegn
Portisch, Petrosjan geröi jafn-
tefli við Ribli. Polugayevski
gerði jafntefli við Sax og skák
Vaganian og Csom fór i biö.
Bandarlkin unnu England 2,5-
0,5 en ein skák fór i bið. Eng-
lendingar voru i efsta sæti með
Rússum en i gærkvöldi vann
Lein skákina við Keen, Kavalek
og Miles gerðu jafntefli en
Tarjan vann Mestel. Brown og
Stean gerðu jafntefli.
Af öðrum úrslitum má nefna
að Júgóslavía vann Sviss 2,5-0,5
og ein i bið. Gligoric og Kortsnoj
gerðu jafntefli. Búlgarir hafa
tvo vinninga á móti einum við
Kúbumenn úr umferðinni I gær
og ein skák fór i biö.
Viðureign V-Þjóðverja og
Svia endaði 1,5-1,5 og ein skák i
bið. Astralir unnu Noreg með
2.5- 1,5 og Kina vann Austurriki
2.5- 0,5 og ein i bið.
Pólverjar tefldu viö Filipsey-
inga og er staðan 2-1 Pólverjum
i hag en ein skák fór í biö. Fær-
eyingar unnu Luxemborgara
2,5-0,5 og ein biöskák.
Kvennasveitin okkar tapaði á
öllum borðum i fimmtu umferð
þegar hún mætti bandarisku
sveitinni og var með fjóra vinn-
inga eftir þá umferð. 1 sjöttu
umferð tapaði sveitin gegn Dön-
um 2,5-0,5 og er þvi með 4,5
vinninga. —SG
„Erum löngu
byrjaðir
að starfa"
— segir formaður fjárveitinganefndar
,,Viö höfum á undanförnum
vikum haft til meðferðar ein-
staka þættiúr fjárlagafrum-
varpinu, þannig að við erum
löngu byrjaðir að starfa, þótt
frumvarpið sé nú fyrst að koma
fram I heild”, sagði Geir
Gunnarsson, formaður fjárveit-
inganefndar Alþingis, I viðtali
við VIsi daginn sem frumvarpið
var lagt fram.
Geir sagði að timinn væri
samt sem áður naumur, og það
gæti komiö niöur á þvl aö ekki
væri unnt aö fara sem skyldi i
einstaka þætti frumvarpsins.
Stefnt væri að þvi að ljúka af-
greiðslu fjárlaga fyrir jól, og
það yrði gert. Hins vegar kvaöst
hann vera þeirrar skoðunar, aö
miða ætti fjárlagaárið fremur
við 1. mars, þar sem þinginu og
nefndum þess veittist þá betri
timi til undirbúnings fjárlaga.
—GBG
Geir Gunnarsson, formaður
fjárveitinganefndar.
Á að vera 5% en ekki 50%
í grein á blaöslðu 23 í VIsi i
gær sem ber yfirskriftina „Stór
hluti kemur aftur i rikiskassann
ef skipt er við innlenda aöila,”
er i upphafi siðustu málsheildar
sú villa aö þar stendur: ,,...
minna en 50% af heildarinn-
kaupum opinberra geira sér-
hvers lands I Efnahagsbanda-
laginu, gerö utan landsteina
rikjanna þegar á heildina er
litið”. Þarna átti að standa 5%
en ekki 50%.
—JM
5 ára drengur fyrir
bíl á gangbraut
Fimm ára drengur varð fyrir meiddur, en lögreglan i Kópa-
bfl á Nýbýlavegi I Kópavogi i vogi hvetur ökumenn og vegfar-
gærdag, rétt fyrir klukkan tvö. endur til að fara varlega I um-
Drengurinn var að fara yfir ferðinni, nú þegar dimmt er
gangbraut. Hann slapp litið orðið og oft slæmt skyggni. EA
7 ára drengur beið bana
Banaslys varð skammt frá
bænum Uröarteigi i Berunes-
hreppi siöastiiðinn mánudag.
Sjö ára drengur beið bana, þeg-
ar hann kastaöist af dráttarvéi
og lenti undir henni. Vegkantur
hafði gefið sig undan þunga
dráttarvélarinnar og um ieið
kastaðist drengurinn af vélinni.
Sjúkraflugvél var send frá
Egiisstöðum til Djúpavogs, en
litli drengurinn var látinn, áður
en hann komst undir iæknis
hendur.
—EA
SKEMMDAR
HLJÓM-
lOiur ?
Það hefur lengi valdiö mörgun hljómplötueigandanum heilabrotum hvers vegna nýjar hljómplöt-
ur missa fljótlega hljómgæöin. Astæðurnar fyrir þvl geta verið nokkrar, en sú sem vegur þyngst á
metunum er léleg hljóðdós (pick-up) og slitin nál. Hljóðdósin og náiin eru þeir hlutir plötuspil-
arans sem ráða úrslitum um hijómgæði og endingartfma hljómplötunnar.
Ef þú heldur að plötuspilari þinn sé orðinn lélegur og það sé tfmabært að fá sér nýjan, veistu þá aö
ný hljóðdós getur gert hann sem nýjan?
Annaö mikilvægt atriði i meðferö á hljómplötum er hreinsun þeirra. Nauösyniegt er að rétt
hreinsiefni séu notuð og rétt handbrögö viö höfö. Hreinar piötur og góö hljómdós tryggja besta
fáanlegan hljómburð. Komdu með plötuspllarann til okkar og vlö munum aðstoða þig við að velja
bestu hljómdósina fyrir plötuspilarann þinn.
Veitum allar tæknilegar upplýsingar um hvers konar hljómtæki.
Full búð af
V
Póstsendum um land allt
Cooper
4 snið í gróf-
riffluðu og fín-
riffluðu flaueli
eik
STRANDGÖTU31 Simi:53534