Vísir - 14.04.1980, Page 6
Formaður Sklðasambands
íslands, Sæmundur Oskarsson,
ritar hinn 10. þessa mánaöar
grein i Visi og Dagblaðiö. Að
minni hyggju er geinin svo
fyrirlitleg, þegar haft er i huga
að hér er um að ræða leiðtoga
ungs fólks, að ekki er hægt með
nokkru móti að láta henni -
osvarað.
Það hefur lengi verið vitaö að
samband landsliðsmanna og
formanns stjórnar Skiða-
sambandsins hefur ekki verið
upp á það besta og nægir i þvi
sambandi að visa til siðasta
Skiðaþings.
Tilefni fyrrnefndrar blaða-
greinar mun hinsvegar vera
blaðaviðtöl við Hauk Jóhanns-
son, núverandi Islandsmeistara
I stórsvigi, og Sigurð Jónsson,
Islandsmeistara i svigi. 1 þess-
um blaðaviðtölum er ekki tiund-
að af hverju óánægja þeirra
stafar. Hins vegar lýsir
Sigurður þvi yfir, að hann muni
ekki keppa á vegum Skiða-
sambandsins meðan áöur-
nefndur greinarhöfundur er
formaður þess.
Aður en lengra er haldið, er
rétt að fram komi, að undirrit-
aður er mágur Sigurðar Jóns-
sonar og að Siguröur býr á
heimili undirritaðs, þegar
Sigurður er hérlendis, þar sem
foreldrar hans eru búsettir
erlendis. Þar að auki er málið
mér skylt vegna þess að á
nýloknu Skiðaþingi á Akureyri
var ég kœinn i stjórn Skiða-
sambandsins.
Til fróðleiks vil ég upplýsa, að
kvöldið áður en hin dæmalausa
grein formannsins birtist I Visi
og Dagblaöinu var fyrsti
stjórnarfundur nýkjörinnar
stjórnar. A þessum fundi voru
mættir sex stjórnarmeðlimir,
auk formanns, sem sá ekki
ástæðu til að segja þeim frá
umræddri grein, sem hann
undirritaði þó sem formaður
SKl. Ef til vill segir þessi
framkoma meira en mörg orð.
Um leið og ég nú ræði nokkur
atriði úr grein Sæmundar
Óskarssonar sem blaöamaður
Dagblaðsins gefur yfirskriftina
„Landsliösmenn sakaöir um
fylleri”, en sem er þó fyrst og
fremst sviviröilegur rógur um
Sigurð Jónsson, mun ég drepa á
nokkur atriöi úr ferli Sigurðar
sem skföamanns.
Sæmundursegir: „Aldrei fyrr
hefur sá afburöa efnilegi skiða-
maður Sigurður Jónsson fengið
annaö eins tækifæri til að þróa
hæfileika sina á erlendri grund.
1 allan fyrravetur var hann
kostaður af SKl til að æfa og
keppa meðsænska landsliðinu”.
Vill Sæmundur með þessu
segja, aö honum sé ókunnugt
um, að eftir Ólympíuleikana
1976 þar sem Sigurður Jónsson
náði góðum árangri, býöst hon-
um fyrir milligöngu Þóris Jóns-
sonar, fyrrverandi formanns
SKÍ, og Hákonar Ólafssonar
þáverandi formanns, að æfa og
keppa með sænska landsliðinu.
Hóf hann þær æfingar haustið
1976.
Þann vetur tók Sigurður þátt í
mörgum mótum með sænska
landsliðinu. A mörgum þessara
móta náði hann mjög athyglis-
verðum árangri og má i þvi
sambandi nefna sigur á tveim
sterkum FIA mótum, annað var
haldið i Frakklandi en hitt I
Noregi. A þessum tima var
Sigurður álitinn einn af 2 lfk-
legustu sigurvegurum á
Evrópumeistaramóti unglinga,
sem fór fram i Júgóslaviu.
Aðeins einn keppenda þar var
með betri FIS punkta en
Sigurður og það var Búlgarinn
Popangelov, sem i dag er einn
besti svigmaður heims.
Nokkrum dögum fyrir keppn-
ina meiddist Sigurður illa i baki
oggat þar af leiðandi ekki tekið
þátt i þessu móti.
Næsta sumar lenti Sigurður i
slysi, sem olli þvi, að sumar-
æfingar fóru forgörðum. Skiða-
æfingar hófust svo ekki að gagni
fyrr en um miðjan desember
með sænska landsliðinu og æfði
Sigurður með þvi fram að
Heimsmeistaramótinu 1978.
Þar náði hann besta árangri,
sem islenskur skiðamaður hefur
náð, það er 13. sæti i svigi.
Ég tel nauösynlegt aö rifja
þessi atriöi upp, þar sem
Sæmundur Óskarsson virðist
ekki þekkja þessa sögu, þaö er,
árin áður en hann tók við
forystu Skíðasambandsins.
Hins vegar ætla ég honum að
kanna fjárútlát Sklða-
sambandsins fyrir Sigurð á
þessum árum. Kostnaöinn þá
báru að stórum hluta
velgjörðarmenn hans á Isafirði,
faðirhans og aö sjálfsögðu hann
sjálfur.
Vegna ummæla Sæmundar
um kostnaö Skiðasambandsins
vegna veru Sigurðar með
sænska landsliðinu væri fróðlegt
að fá upplýst, hvaða tekjur
Skiðasambandið (Sklðasjóður)
hefur haft vegna árangurs
Sigurðará tveimur fyrrgreinum
árum, áður en Sæmundur tók
við formannssætinu. Þá vil ég
minna Sæmund á, að langflestar
flugferðir Sigurðar hefur SKI
ekki þurft að greiða.
Sæmundur Óskarsson skrif-
ar: „I tveimur utanlandsferð-
um af þremur, sem formaður-
inn hefur verið fararstjóri
landsiiðsins I, hefur hann þurft
að ávita piltana fyrir meðferð
áfengra drykkja”. Og i lok
þessara ásakana segir
neðanmcds
Ingvar Einarsson, sem nú
hefur sagt sig úr stjórn
Skíðasambandsins,
skrifar hér grein þar sem
hann svarar ásökunum
Sæmundar óskarssonar í
garð Sigurðar Jónssonar
skíðakappa.
Sæmundur: „Sigurður Jónsson
hefur á sér sér sérstakt orð i
þessum efnum”.
Fyrri fullyrðingu Sæmundar
er ekki hægt að skilja á annan
veg en þann, að landsliðsmenn
hafi neytt áfengra drykkja i
þessum tveimur ferðum. Seinni
fullyrðingin, sem beinist
eingöngu að Sigurði, er slik
aðdróttun, að maður veröur
orðlaus. Þarna er Sæmundur
Óskarsson, prófessor og uppal-
andi, kominn út á hálan ís og
væri fróðlegt að vita, hvað lög-
fræðingur segði um slika ásök-
un. Þarna er Sæmundur óbeint
að segja að Sigurður sé mjög
óreglusamur, alla vega er erfitt
fyrir fólk að skilja setninguna á
annan veg.
Það er ekki á minu færi aö
sanna i blaöagrein, aö
Sæmundur fari meö rangt mál,
til þess þyrftu aö fara fram
vitnaleiðslur. Ég er þess full-
viss, að landsliðsmenn sjálfir
munu hrekja fyrri fullyrðing-
una, og ég vil i þvi sambandi
minna Sæmund á fund, sem
haldinn var meö skiðamönnum.
Aburðum á Sigurð er ef til vill
best að svara með þvi að
sklrskota til sænska landsliðs-
ins. A fundi með skiðamönnum,
sem haldinn var á Akureyri um
páskana, var þeirri spurningu
beint til Sæmundar, hvort
Svlamir hefðu haft eitthvaö út á
Sigurð að setja I sambandi við
hegðun eða annað. Svar
Sæmundar var skýrt: NEI.
Nú má spyrja: Heldur nokkur
hugsandi maður, að Sigurður
Jónsson hafi getað æft og keppt
með sænska landsliðinu I fjóra
vetur ef hann hefur verið slikur
óreglumaður sem Sæmundur
vill vera láta? Svari hv.er fyrir
sig.
Síðastliðið haust, þegar búið
var að fella niður 2 landsliðsæf-
ingar, sem fyrirhugaðar voru
fyrir Olympíuleikana, var
Sigurður svo óánægður með
undirbúninginn að hann hringdi
sjálfur, án nokkurra afskipta
SKI, til sænska Skiðasambands-
ins og spurði hvort hann mætti
koma út og vera á æfingu með
þeim I októbermánuði, en
ekkert slíkt hafði verið ákveðið
fyrirfram.
Svariö sem hann fékk var
þetta: Þú getur fengið aö vera
með okkur hvenær sem er, hvar
sem er og eins lengi og þú vilt.
Sigurður var siðan með Svlun-
um I þrjár vikur á æfingu i októ-
ber siðastliðnum og borgaði
allan kostnað úr eigin vasa.
Þetta sýnir vel hugarþel
Svianna til Sigurðar.
Það er min skoðun, að hafi
landsliðsmenn brotið svo frek-
lega af sér eins og Sæmundur
heldur fram, þá hafi átt að
koma hreint fram og visa þeim
úr landsliðinu. En jafnframt tel
ég, að komi slik vandamál upp,
sé það skylda þeirra, sem
stjórna, að hafa samband við
aðstandendur og skýra málin
fyrir þeim áður en ákvörðun um
brottvisun er tekin.
Meðan Sigurður hefur búið
hjá mér hefur Sæmundur aldrei
rætt viö fjölskylduna um að ein-
hver hegðunarvandamál væri
viðaöetja. Þaðer vissulega rétt
að margir unnendur skiða-
Iþróttarinnar hafa lagt fram
„mikið og óeigingjarnt starf og
fjárframlög” I þágu iþrótt-
arinnar og skiðalandsliðsins.
Ég er ekki I neinum vafa um,
að Sæmundur Óskarsson er einn
af þessum mönnum og ber að
þakka hans störf. En hafa þau
ekki fyrst og fremst byggst á
metnaði hans og áhuga fyrir
þessari iþróttagrein, eða sömu
forsendum og hjá þeim, sem
skara fram úr i Iþróttinni?
Gerir Sæmundur sér ekki fulla
grein fyrir þvi, hvað þessir
unglingarhafa lagt á sig til þess
að verða liötækir i landslið?
Til fróðleiks ætla ég að birta
skrá yfir æfingar Sigurðar
haustið 1978, en hann æfði þá
með sænska landsliðinu.
Astæðan fyrir þvl, að ég vel sér-
staklega þetta tímabil, eru stað-
hæfingar, sem koma fram I
grein Sæmundar. Þar segir
meðal annars:
„Sigurður stóð varla niður
nokkra braut i fyrravetur og
kenndi sklðum sinum
um’V Þessi skrif Sæmundar
sýna vel að minu mati hversu
litla innsýn hann hefur I Iþrótt-
ina sem keppnisgrein.
Æfingar Sigurðar haustið 19 8:
Júni: æfd 23 þaraf 16d á sklöum
Júll: æfd 16
Agúst æfd 23 þar af 10 d á sklðum
Sept: æfd 22 þar af 15 d á sklöum
Okt: æfd 24 þar af 33 d á sklöum
Nóv: æfd is þar af 12 d á skíöum
Des: æfd 24 þar af 18 d á sktðum
samtals 150 d 93 d
Af þessu má sjá að árangur-
inn 1 fyrravetur stafaði ekki af
æfingaleysi og hér má bæta við,
að þegar um timatöku var að
ræða hjá sænska landsliðinu á
æfingum á þessum tima, var
Sigurður yfirleitt i þriðja sæti,
aðeins Stenmark og Stig Strand
á undan. Þaö skyldi þó ekki vera
að árangurinn hafi aö einhverju
leyti veriö skiðunum að kenna.
Fróðlegt væri að bera saman
fyrrnefnda æfingaskrá og
æfingar landsliðsins á þessum
vetri.
Að lokum visa ég til yfirlýs-
ingar Skiðaráðs ísafjarðar I
dagblöðum og bið Sæmund
Óskarsson að hugleiða, hvort
hann hafi nú ekki með niðskrif-
um sínum um Sigurð Jónsson og
fleiri landsliðsmenn eyðilagt
sitt óeigingjarna starf fýrir
skiðaiþróttina á liðnum árum.
SKíðaráft ísaflarðar svarar sæmundi óskarssynl
Sæmundur æltl að s|á söma
sinn I að blðjast afsðkunar
Sæmundur Óskarsson, for-
maður S.K.I. skrifaði grein i
Dagblaðið og Visi þann 10.
april, þar sem hann ræðst að
skiðalandsliðinu, og þá sérstak-
lega einum landsliðsmanni, Sig-
urði Jónssyni frá tsafirði. Um
þessi skrif viljum við segja
þetta:
A nýloknu skíðaþingi nú um
páskana ásakaði stjórn S.K.I.
aðildarhéruð og skiðamenn
fyrir að birta ágreining okkar i
dagblöðunum, það leysti ekki
vandamál, það sundraði kröft-
um okkar, og veikti stöðu
heildarsamtakanna. Nú
bregður svo við, að formaður
S.K.I., Sæmundur Óskarsson,
skrifar þá ósvifnustu grein, sem
lengi hefur sést á prenti. Þessa
grein skrifar hann án samráðs
við aðra stjórnarmenn sam-
bandsins.
Það má segja, að með þessari
grein sýni hann öðrum stjórnar-
mönnum sambandsins slika
litilsvirðingu, að ekki veröur við
unað, einnig birtir Sæmundur
almenningi hug sinn til lands-
liðsmanna og þá sérstaklega til
Sigurðar Jónssonar, þviað þessi
grein er ekkert annað en dylgjur
og hrein lygi. Það er okkur
verulegt áhyggjuefni, að við
stjórnvöl Skiðasambandsins
skuli vera maður svo ómerki-
legur og illa innrættur, sem Sæ-
mundur óskarsson lýsir sér
best með þessum skrifum. Við
höfum þvi ákveðiöið I samráði
við okkar mann i aðalstjórn
S.K.I., Ingvar Einarsson, að
hann segi sig úr stjórninni. Um
þá ástæðu, er Sæmundur telur
vera fyrir þvi, að Sigurði hafi
ekki gengið eins vel siöastliöna
tvo vetur og stefnt hafi verið að,
er algjör fásinna.og uppspuni.
Sæmundur hefði átt að láta
reiðina renna aðeins af sér, áður
en hann greip penna i hönd, þvi
aðhann veit miklu betur sjálfur.
Sæmundurætti að hugleiða það,
að árangur Sigurðar hefur ekki
veriö eins góður eftir að hann
tók við stjórn S.K.l.,þvi að Sæ-
mundur hefur lagt miklu meira
uppúr þvi að ná peningum út úr
sklðafyrirtækjum út á nafn
Sigurðar heldur en að hann
fengi þá æfingu, sem hann þyrfti
og hefur Sæmundur viljað hafa
Sigurð eins og eitt peð á tafl-
borði sinu, en það er einmitt
það, sem Sigurður hefur ekki
viljað við una.
Skiðaráö Isafjarðar neitar þvl
harðlega, að samskipti okkar og
Sigurðar séu ekki i góðu lagi,
eins og Sæmundur vill gefa I
skyn. Við viljum koma því á
framfæri, að við eigum Sigurði
mikið að þakka, og stuðning
sem við höfum veitt honum,
höfum við fengið rikulega til
baka með góðum árangri hans
erlendis sem innanlands.auk að-
stoðar hans hér heima. Sklða-
iþróttin I heild á honum einnig
mjög mikið að þakka.
Aldrei hefur Islendingur náð
öðrum eins árangri erlendis og
enginn hefur auglýst skiða-
iþróttina meira en hann.
Að lokum viljum við beina
þeim tilmælum til Sæmundar
Óskarssonar, að hann sjái sóma
sinn i þvi að biðja viðeigandi
aðila afsökunar opinberlega.
Skiðaráð Isafjarðar.
, Hreinn Pálsson,
Hafsteinn Sigurösson,
Garðar Gunnarsson,
Eh'as Sveinsson,
Davið Höskuldsson,
Guðjón Höskuldsson,
Samúel Gústafsson.
Siguröur Jónsson, sklðakappi.