Vísir - 14.04.1980, Side 15
GYLFI Kristjánsson, blaöa-
maöur Vísis á Polar Cup i
Noregi, skrifar i morgun:
Pétur Guömundsson,
risinn I islenska landsliöinu,
gerBi þaö ekki endasleppt á
NM sem lauk hér i Osló i
gærkvöldi. Hann hlaut þrjú
einstaklingsverölaun aö
mótinu loknu.
Hann skoraöi flest stig
allra eða 100, sem gera 25
stig aö meðaltali i leik. Hann
hirti langflest fráköst eöa 44
og þriöju verölaun hans
voru fyrirvita hittni, en
hann fékk alls 31 skot og hitti
úr 28 þeirra sem gerir um
90% hittni, sem er frábært.
Einhverra hluta vegna
voru ekki veitt verölaun
besta leikmanni mótsins til
handa, en flestir voru
sammála um, aö Pétur heföi
boriö höfuö og heröar yfir
alla aöra leikmenn i þess
orös fyllstu merkingu.
Pétur vakti mikla athygli
hér vegna hæöar sinnar og
getu og eftir úrslitaleikinn i
norska meistaramótinu i
minni-bolta varhann fenginn
til aö afhenda verölaunin viö
mikla hriíningu áhorfenda
og eins strákanna, en alls
tóku um 8000 strákar þátti
mótinu.
gk/sk.
..Ég er sloltur
af dessum hópi
Hann hefur verið isiandi tii sóma”,
sagði Einar Bollason hiállari eltir HM
Gylfi Kristjánsson, blaöamaöur
VIsis á Polar Cup I Noregi, iskrifar
i norgun:
„Þaö var slæmt fyrir okkur, að
sænski dómarinn, sem átti aö
dæma leikinn okkar gegn Finn-
landi, skyldi meiöast. Þa var ekki
um annaö aö ræöa en aö sam-
þykkja Norömanninn sem dóm-
ara leiksins og eftir þaö vissum
viö hvernig þetta myndi fara”,
sagöi Einar Bollason, landsliös-
þjálfari, eftir leikinn gegn Finn-
um.
„Þetta var einkum og sér I lagi
sárgrætilegt, þegar þaö er haft i
huga, aö viö vorum að vinna
muninn upp og leikur okkar var
aö batna.mjög mikiö, þegar hann
tók til sinna ráöa.
„Þetta er besta landsliö sem ég
hef haft undir höndum. Liöið er
búiö aö spila þrjá leiki á 22 klst.
og það er hvergi aö finna þreytu i
liöinu. Þaö er ekki hægt aö kenna
þreytu um hvernig fór. Liöiö er i
toppúthaldi og menn voru í fullu
fjöri síöustu minúturnar gegn
Finnunum.
Andinn í liöinu er mjög góöur og
þetta er einn mest samstillti
Iþróttahópur, sem ég hef veriö
meö. Ég er mjög stoltur af þess-
um hópi. Þeir hafa veriö Islandi
til sóma hér á þessu Noröur-
landamóti”, sagöi Einar Bolla-
son.
— gk/sk.
Siiuröun
bætti sig i
Siguröur Einarsson, Ar- 9
manni, 17 ára gamall spjót- ■"
kastari, sem dvelst um R
þessar mundir i Bandarikj- *
unum viö æfingar, bætti 9
árangur sinn verulega í gær- *
kvöldi. Hann þeytti spjótinu M
73,52 metra, sem er rúmum
tveimur metrum betri 9
árangur en hann átti fyrir.
Greinilegt aö þar er mikiö a
efni á ferö. —SK. H
í Arnór og ;
■ Asgeir á i
i skotskóm i
Ekkert heyrt
I itölunum"
segir Péiur Guðmundsson
Gvlfi Kristjánsson, blaöamaöur
Visis á Polar Cup i Noregi, skrifar
i morgun:
„Þaðkom margtfram I þessum
leik, sem sýnir framfarir. Liðiö
veröur betra og betra með hverj-
um leik”, sagöi Pétur Guömunds-
son eftir leikinn gegn Finnlandi.
Hann var siöan spuröur um Ital-
ina, sem ætluðu aö fylgjast meö
honum á mótinu og gera honum
tilboö, ef þeim litist á hann.
„Ég hef ekkert heyrt ennþá.
Það er þó ekki alveg aö marka þvi
að ég reikna með aö umboös-
maöur minn i Bandarikjunum
heyri i þeim fyrst. Þaö má alveg
koma fram hér”, sagöi Pétur,„aö
ég skrifa ekki undir neina samn-
inga nema þaö sé alveg ljóst.aö ég
fái aö taka þátt i þeim landsleikj-
um, sem Island mun leika I fram-
tiöinni”.
— gk/sk.
Aðelns sigup
gegn Færeyjum
- á NL-mótl unglinga i handknaitieik
lslendinga höfnuöu I 5. sæti á
Norðurlandamóti unglinga f
handknattleik sem var háö I
Finnlandi um helgina.
Sviar uröu Noröurlanda-
meistarar eftirharöa keppni viö
Dani. Þjóðirnar hlutu jafnmörg
stig, en Sviar voru meö betra
markahlutfall og titillinn varö
þvi þeirra.
Fyrsti leikur Islands i keppn-
inni var gegn Svfum og sigruöu
Sviar meö nokkrumyfirburöum
21:16, eftir að staöan 1 leikhléi
hafði verið 13:6. Þeir Páll Olafs-
son og Erlendur Davíösson voru
markhæstir í leiknum, skoruðu
fjögur mörk hvor.
Þvi næst var leikiö gegn Norð-
mönnum og tapaöist sá leikur
einnig 30 : 27 og var staðan 17:12
I hálfleik. Páll Ólafsson var
markhæstur i þeim leik meö 7
mörk.
Islendingar náöu siöan aöeins
jafntefli gegn Finnlandi á
laugardaginn 27:27,en ísland
haföi tvö mörk yfir i leikhléi
15:13. Og enn var Páll mark-
hæstur meö 7 mörk.
Næst var leikiö gegn Dönum
og sigruöu Danir 25:19 og var
danskurinn meö þriggja marka
forskot I leikhléi. Hans
Guömundsson var markhæstur
með 7 mörk.
Siöasti leikurinn hjá islensku
piltunum vargegn Færeyingum
og skar sá leikup úr um það
hvort liöið hafnaöi I neðsta sæt-
inu. fsland sigraöi meö miklum
yfirburöum 42:19, en staöan i
leikhléi var 21:8.
Þetta veröur aö teljast frekar
slakurárangur hjá piltunum, en
það ber þó að hafa i huga að
markakóngur 1. deildarkeppn-
innarhérheima i vetur Kristján
Arason, gat ekki leikiö meö
liöinu vegna meiösla og hefur
þaö eflaust veikt liöiö mikiö.
Sviar unnu mótiö eins og áöur
sagöi. Þeir sigruöu Dani I
úrslitaleik 23:18.
— SK
IFrá Kristjáni Bernburg, frétta-
ritara VIsis f Belgfu:
I— Islensku knattspyrnumenn-
irnir i belgisku 1. deildinni voru
j heldur betur i sviösljósinu meö
' liöum sinum i leikjunum i gær.
Asgeir Sigurvinson skoraöi þá
'mj'ög gott mark, þegar
1 Standard Liege sigraöi Lierse á
heimavelli sfnum 5:2. Var þaö
jfyrsta mark leiksins, sem As-
geir skoraöi, en hann var mjög
jvirkur f öllum leiknum.
, Arnór Guðjohnsen var hetja
jLokerien sem sigraði CS
■ Bruges 2:1. Lokeren var undir
1:0 en Arnór, sem átti mjög m
góöan leik, sá um aö jafna metin 9
og svo aö skora sigurmarkiö B
skömmu siöar. 9
'I
Staöan hjá efstu liöunum f 1. ™
deildinni 1 Belgiu er nú þannig, S
aö FC Bruges er i efsta sætinu ®
meö 45 stig. Þá kemur Standard X
Liege meö 43, siöan RWD *
Molenbeek meö 42, en Lokeren X
er nú komiö i 4. sætiö meö 39 stig *
— þrem stigum meira en Ander-1
lecht, sem er i 5. sætinu þessa ®
stundina...
^DI Ugca 6.1. LiUKClCH Val uuuu
-klp —
m3
LEITID EKKI LANGT
YFIR SKAMMT
4
TOPPMERKI Á SAMA STAÐ
NY
Teclinics
Panasonic
4 MITSUBISHI
ÆW ELECTRIC
SJÓNVÓRP
MYNDSEOULBÖND
HLJÓMTÆKI
ATH:
ffullkomin viðgerðarþjónusta á staðnum
JRPIS
Lœkjargötu 2 - Box 396 - Simor: 27193 og 27133