Morgunblaðið - 10.09.2002, Page 2
KNATTSPYRNA
2 B ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK
Í fyrsta riðli undankeppni EM átt-
ust við Slóvenía og Malta í Slóveníu.
Heimamenn unnu góðan sigur, 3:0,
og skoruðu Ermin Siljak og fyrirlið-
inn Sebastjan Cimerotic mörk Slóv-
ena en þeir komust yfir á 37. mínútu
er Darren Debono leikmaður Möltu
skoraði sjálfsmark.
FRAKKAR hófu titilvörn sína sem
ríkjandi Evrópumeistarar með
naumum sigri á Kýpur, 2:1, eftir að
hafa verið marki undir í fyrri hálf-
leik. Lið Ísraels lék ekki.
ÞAÐ bar mest á viðureign Norð-
manna og Dana í Ósló í öðrum riðli.
Jafntefli varð niðurstaðan í leik lið-
anna en bæði lið skoruðu tvö mörk.
John Carew jafnaði fyrir Norðmenn
í uppbótartíma en Jon Dahl Tom-
asson hafði komið Dönum í tvígang.
John Arne Riise jafnaði fyrir Norð-
menn í fyrra skiptið.
RÚMENAR gerðu fína ferð til
Bosníu og skoruðu þrjú mörk gegn
engu. Christian Chivu og Dorinel
Munteanu skoruðu á 8. og 10. mínútu
og Ioan Ganea bætti því þriðja við á
27. mínútu. Lúxemborg sat yfir.
MOLDAVÍA átti ekki möguleika
gegn Austurríkismönnum í Vín en
liðin eru í þriðja riðli. Andreas Her-
zog skoraði tvívegis úr vítaspyrnu á
fyrsta hálftíma leiksins en í báðum
tilvikum var Thomas Flogel felldur í
vítateignum. Hans Krankl stjórnaði
Austurríki í fyrsta opinbera leik sín-
um sem landsliðsþjálfari.
HOLLENDINGAR unnu Hvít-
Rússa örugglega á heimavelli, 3:0, en
Tékkar léku ekki í fyrstu umferð.
Það var eins og ungversku leik-mennirnir hefðu vaknað í
vondu skapi í blíðunni á Austur-
landi og þeir
spiluðu mjög fasta
og grófa knatt-
spyrnu. Íslenska
liðið sótti og skap-
aði sér nokkur góð færi sem yf-
irleitt komu eftir góðar fyrirgjafir
frá Skagamönnunum Hjálmi Dór
Hjálmssyni og Ellert Jóni Björns-
syni.
Á 30. mín var ungverskum leik-
manni vísað af leikvelli eftir nokk-
uð gróft brot.
Ungverjarnir hófu seinni hálf-
leikinn því einum færri. Á fyrstu
mínútunum var íslenska liðið hepp-
ið að fá ekki á sig mark þegar einn
sprækasti leikmaður Ungverja,
Szabics, átti hörkuskot í þverslána
af stuttu færi en á 14 mín. fékk
hann svo að líta sitt annað gula
spjald og voru því Ungverjarnir
níu það sem eftir lifði leiks. Um
miðjan hálfleikinn kom svo eina
mark leiksins þegar Grétar Rafn
Steinsson skoraði með góðu skoti
úr miðjum teignum eftir laglegt
spil upp miðjuna. Eftir það gerðist
fátt markvert en Íslendingar sóttu
en Ungverjarnir vörðust. Ungverj-
ar fengu dauðafæri þegar um tíu
mínútur voru til leiksloka en skutu
framhjá.
Ólafur Þórðarson, þjálfari ís-
lensku strákanna, sagðist eftir
leikinn vera sáttur við leik sinna
manna og vildi ekki taka neinn út
úr sem hefði spilað sérstaklega vel,
allir hefðu skilað sínu. „Ungverj-
arnir komu ekki inn á völlinn með
því hugarfari að skemmta áhorf-
endum, þeir léku óþarflega grófa
og leiðinlega knattspyrnu,“ sagði
Ólafur en hann var var sáttur við
baráttuna hjá strákunum og hann
væri alltaf ánægður með sigur.
Markaskorarinn Grétar Rafn
sagði að þetta hefði verið baráttu-
leikur og þannig væru landsleikir
alltaf, hvorugt liðið vildi tapa og
því einkenndust leikirnir af mikilli
baráttu. Nýir leikmenn hefðu kom-
ið inn í liðið og þeir hefðu staðið
sig vel.
Áhorfendur á Vilhjálmsvelli voru
um 700 og hafa sennilega verið
sáttir að sjá sigur í fyrsta lands-
leiknum sem leikinn er á vellinum
þó að íslensku strákarnir hefðu
kannski átt að nýta betur þá yf-
irburði sem þeir höfðu í leiknum.
Naumur
sigur – en
sanngjarn
VEÐURGUÐIRNIR skörtuðu sínu fegursta þegar landsleikur U -21
árs landsliða Íslands og Ungverjalands hófst á Vilhjálmsvelli á Eg-
ilsstöðum síðastliðinn laugardag. Veður til að leika knattspyrnu
gerist ekki betra. Leikurinn var nokkuð fjörugur á köflum og en það
voru íslensku strákarnir sem höfðu yfirhöndina allan leikinn þó að
Ungverjarnir ættu tvær til þrjár hættulegar skyndisóknir í hvorum
hálfleik. Grétar Rafn Steinsson skoraði eina mark leiksins í síðari
hálfleik og þar við sat í fyrsta opinbera landsleiknum sem fram fór á
Egilsstöðum.
Jóhann G.
Gunnarsson
skrifar
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Haraldur Guðmundsson, varnarmaðurinn sterki í liði Keflvíkinga, sækir hér að einum leikmanna
Ungverja í landsleik Íslands og Ungverjalands skipuð leikmönnum 21 árs og yngri á Vilhjálmsvelli
á Egilsstöðum á laugardaginn. Íslendingar unnu verðskuldaðan sigur, 1:0, í harðri viðureign.
GUÐMUNDUR Viðar Mete, varn-
armaður íslenska 21 árs liðsins, var
næstum því á heimavelli í leiknum
gegn Ungverjum á Egilsstöðum á
laugardaginn. Guðmundur Viðar er
fæddur og uppalinn á Eskifirði og
spilaði með Austra í yngri flokkun-
um en hann hefur búið í Svíþjóð frá
10 ára aldri og leikur þar með topp-
liði Malmö í úrvalsdeildinni. Hann
lék á laugardaginn sinn fyrsta op-
inbera knattspyrnuleik á Austur-
landi frá því hann flutti til Svíþjóðar
fyrir ellefu árum síðan.
Óli Fossberg, kunnasti knatt-
spyrnudómari Austfjarða um langt
árabil, er afi Guðmundar og mætti að
sjálfsögðu til að fylgjast með dótt-
ursyni sínum á Egilsstöðum.
Ekki séð hann áður í
landsliðstreyjunni
„Það var stórkostlegt að fá að sjá
strákinn í landsleik hérna fyrir aust-
an og ég mun búa lengi að því. Hann
dvaldi hjá okkur á Eskifirði í sólar-
hring áður en hann fór til móts við
liðið. Guðmundur hefur spilað á
þriðja tug landsleikja fyrir yngri
landslið Íslands en ég hef ekki haft
tækifæri til að sjá hann í landsliðs-
peysunni fyrr en nú, og það var svo
sannarlega tími til kominn. Ég hef
hinsvegar farið tvisvar til Svíþjóðar
til að fylgjast með honum þar og í
bæði skiptin flakkaði ég um landið í
nokkrar vikur og sá hann í mörgum
leikjum með Malmö. Þó Guðmundur
hafi búið svona lengi í Svíþjóð er
hann mikill Íslendingur. Svíarnir
lögðu hart að honum að gerast
sænskur ríkisborgari til að geta not-
að hann í sín yngri landslið, en hann
vildi það alls ekki, hjá honum kom
ekki annað til greina en að leika fyrir
Íslands hönd,“ sagði Óli í samtali við
Morgunblaðið.
Kærkomið fyrir Austfirðinga
að fá þennan leik
Hann sagði að leikurinn á Egils-
stöðum hefði verið kærkominn við-
burður fyrir austfirska knattspyrnu-
áhugamenn. „Það var frábært að fá
þennan landsleik hingað austur, ekki
síst vegna þess að það voru þrír
Austfirðingar í liðinu, Guðmundur,
Ármann frá Hornafirði og Valþór frá
Neskaupstað, og það kom fjöldi
manns á leikinn af fjörðunum til að
fylgjast með þeim og þessum við-
burði. Þetta var stór stund fyrir okk-
ur Austfirðinga,“ sagði Óli Fossberg.
Hann dæmdi knattspyrnuleiki
fyrir austan og víðar um land frá
1968 til 1984 og sinnti eftirlitsstörf-
um fyrir KSÍ um árabil eftir það.
Kom
að sjá
dóttur-
soninn
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Guðmundur Viðar Mete ásamt afa sínum, Óla Fossberg, fyrir 21 árs landsleikinn á Egilsstöðum á
laugardaginn. Óli sá þar dóttursoninn spila í landsliðsbúningnum í fyrsta skipti.