Morgunblaðið - 10.09.2002, Blaðsíða 3
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2002 B 3
Atli segir að að landsliðið hafi átíðum leikið ágætlega og nokk-
ur góð marktækifæri gefist. „Eiður
[Smári Guðjohnsen]
fékk nokkur góð
færi sem hann nýtir
á góðum degi. Hefði
það gerst hefði eng-
inn verið óánægður. Ríkharður
[Daðason] fékk einnig hálffæri sem
ekki tókst að nýta. Í heild fengum
við þrjá til fjóra möguleika á því að
skora, en því miður lánaðist ekki að
skora úr þeim, því fór sem fór.“
Fyrri hálfleikur var lengst af
ágætur hjá íslenska liðinu en í síðari
hálfleik tókst því ekki að fylgja því
eftir. Hvernig stóð á því?
„Fyrstu fimmtán til tuttugu mín-
úturnar í síðari hálfleik voru ágætar
en síðan náðu Ungverjarnir yfir-
höndinni, skora mark upp úr
skyndisókn og þá urðum við von-
sviknir. Um leið fóru við að láta
dómsgæsluna fara í skapið á okkur,
töpuðum rónni og hættum að leika
eins og ætlað var, létum kraft ráða
ferðinni of mikið á kostnað hugs-
unar og því tókst ekki að jafna.“
Ungverjarrnir voru grimmari en
íslenska liðið í síðari hálfleik, ekki
satt?
„Það er rétt, Ungverjarnir voru
ákveðnari í síðari hálfleik en í þeim
fyrri. Auk þess þá fengum við ekk-
ert gefið af dómara leiksins, sem
dæmdi vel. Öll vafaatriði féllu hins
vegar Ungverja megin og það skipt-
ir máli þegar dæmið er gert upp.
Með þessu er ég ekki að leita eftir
afsökun fyrir tapinu heldur benda á
hversu stutt getur verið á milli sig-
urs og ósigurs eftir því hvorum
megin vafaatriðin falla.“
Hvernig stóð á þessum mun sem
var á íslenska liðinu í fyrri hálfleik
og í þeim síðari, átti að gera eitt-
hvað annað í síðari hálfleik en í
þeim fyrri?
„Nei, alls ekki. Það var engin
ástæða til þess. Því má ekki gleyma
að á fyrstu 20 mínútum síðari hálf-
leiks fengum við tvö til þrjú góð
færi. Við erum hins vegar að þreifa
okkur áfram með aðrar áherslur í
leik liðsins. Fram að fyrra marki
Ungverjanna þá fannst mér við
leika eins og lagt var upp með, það
er að stöðva andstæðinginn fram-
arlega á vellinum, þetta kom okkur
kannski í koll þegar á leikinn leið.
En upp úr þessari leikaðferð þá
sköpuðust þau færi sem við fengum,
fyrst og fremst vegna þess að við
vorum að vinna boltann mjög fram-
arlega á vellinum. Við verðum að
nýta leiki sem þessa til þess að æfa
okkur í breyttum leik.“
Nú eftir leikinn er sagt að menn
eigi að taka það jákvæða með sér úr
þessum leik og nýta í þeim næsta.
Hver eru þessi jákvæðu atriði?
„Við vorum oft og tíðum með
mjög hugmyndaríkan sóknarleik.
Ég held að við höfum sjaldan séð
eins markvissa sóknaruppbyggingu
hjá íslenska liðinu og að þessu sinni.
Við vorum að opna svæði og leika
boltanum. Það tókst frábærlega vel
í fyrri hálfleik og á köflum í þeim
síðari.
Þegar við sóttum voru allir fjórir
sóknarmennirnir mjög framarlega á
vellinum, varnarmennirnir komu
einnig fram og reyndu að leika
knettinum. Síðan voru „síðustu“
sendingarnar slæmar og það er at-
riði sem verður að laga. Við verðum
hins vegar að sýna leikmönnum
traust til þess að bæta það atriði og
vera afslappaðri við það.
Fyrst og fremst þá finnst mér lið-
ið vera sterkara við uppbyggingu
sóknarinnar en nokkru sinni áður.“
Atli sagði ennfremur að hann
hefði verið ánægður með frammi-
stöðu Lárusar Orra Sigurðssonar í
stöðu miðvarðar. „Lárus var líklega
að leika einn sinn besta landsleik til
þessa. Þá kom Brynjar Björn
[Gunnarsson] á óvart í bakvarð-
arstöðunni.“
Er það markmið hjá þér nýta að
Brynjar í bakvarðarstöðuna í næstu
leikjum? „Ég vildi sjá hann í þessari
stöðu í leiknum vegna þess að hann
hefur svo mikinn drifkraft. Þegar
Brynjar fer af stað þá stöðvar hann
ekkert, í hlaupi upp völlinn með
boltann er Brynjar alveg óþreyt-
andi. Ef boltainn tapast þá er hann
fljótur að koma sér aftur í vörnina.
Ég er sannfærður um takist okkur
að nýta hann í þessa stöðu þá erum
við komnir með frábæran leikmann
til þess sem Brynjar er. “
Hvað þótti þér það versta í þess-
um leik?
„Fyrst og fremst hvað auðveldar
sendingar misfórust þegar leik-
menn voru ekki undir neinni pressu.
Þetta atriði verður að laga. Tíma-
setningar sendinga voru einnig
slakar og fyrir vikið vorum við oft
dæmdir rangstæðir. Þá verðum við
að koma í veg fyrir að fá á okkur
skyndisóknir, við eigum að beita
skyndisóknum, en verðum með öll-
um ráðum að forðast að fá þær á
okkur,“ sagði Atli Eðvaldsson,
landsliðsþjálfari.
Margt
jákvætt
í leik
okkar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Atli Eðvaldsson í samtali við fréttamenn eftir leikinn við Ungverja. Atli segir að þrátt fyrir von-
brigðin með tapið hafi margt gott verið við leik íslenska liðsins, en ýmislegt verði þó að bæta.
„AUÐVITAÐ eru það vonbrigði að tapa leiknum, ekki síst þar sem
við fengum færi til að skora og vinna, en það voru hins vegar Ung-
verjarnir sem nýttu sín færi en ekki við,“ sagði Atli Eðvaldsson,
landsliðsþjálfari í knattspyrnu, eftir að íslenska landsliðið tapaði,
2:0, fyrir því ungverska á laugardaginn á Laugardalsvelli.
Ívar
Benediktsson
skrifar