Morgunblaðið - 08.11.2003, Side 61

Morgunblaðið - 08.11.2003, Side 61
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2003 61 JIMMY White, einn þekktasti snók- erspilari heims, er á leið til Íslands. White kemur til landsins um næstu helgi og keppir mánudaginn 17. nóvember við tvo fremstu snóker- menn Íslands, þá Kristján Helgason og Jóhannes B. Jóhannesson, og finnska meistarann Jussi Tyrkko. Jimmy White er 41 árs og er í dag í 25. sæti heimslistans í snóker en var þar meðal fremstu manna um langt árabil. Hann hefur verið at- vinnumaður í 23 ár og er einhver vinsælasti snókerspilari allra tíma. White hefur verið með eindæmum óheppinn á stórmótum á ferli sínum en hann hefur sex sinnum tapað úr- slitaleik um heimsmeistaratitilinn. Hann á þó að baki níu sigra á stórum mótum. Jimmy White til Íslands Þetta er fyrri leikur liðanna og af-ar mikilvægur í baráttu liðanna um þriðja sætið í riðlinum sem gefur þátttökurétt í Evr- ópukeppni bikarhafa í handknattleik, því aðeins tvær efstu þjóðirnar komast í næstu umferð Meistaradeildarinnar og fjórða liðið í riðlinum fellur úr leik. „Við verðum að vinna með sem mest- um mun til þess að eiga einhver mörk upp á að hlaupa í síðari viðureigninni. Verði liðin jöfn að riðlakeppninni lok- inni skipta úrslit innbyrðis leikja máli um hvort liðið nær þriðja sætinu, en að því sæti stefnum við,“ segir Viggó sem hefur farið rækilega yfir and- stæðinga Hauka. Slær varnagla við fregnum af fjarveru Manaskov Frá því var greint í Morgunblaðinu í gær að sterkasti leikmaður Vardar, Pepe Manaskov, komi ekki með lið- inu hingað til lands, en Manaskov er lykilleikmaður liðsins og um leið leik- reyndasti maðurinn. Hann lék m.a. árum saman í Þýskalandi, en sneri heim fyrir nokkrum árum. „Ég tek öllum fréttum af því að Manaskov komi ekki með liðinu til landsins með fyrirvara og eins þeim fregnum að þrír eða fjórir leikmenn séu meiddir. Þetta lítur út fyrir að vera gamla júgóslavneska bragðið og ég slæ var- nagla við öllum fréttum af þessu tagi,“ segir Viggó sem er eldri en tvævetur í handknattleiknum. „Man- askov er algjör lykilmaður hjá Var- dar. Annars er liðið mjög jafnt með marga landsliðsmenn innan sinna raða, enda hefur það verið sterkasta lið Makedóníu undanfarin ár. Ég lít því á að þetta sé leikur sem getur far- ið á hvorn veginn sem er, sigurlík- urnar nokkuð jafnar hjá liðunum.“ Haukar hafa ekki leikið sem best í deildinni og bikarkeppninni hér heima á síðustu vikum. „Það býr mikið meira í Hauka-lið- inu en það hefur sýnt í síðustu leikj- um, það veit ég vel. Menn verða því að hrista af sér slenið fyrir jafn mik- ilvægan leik og þessi við Vardar er. Þetta er úrslitaleikur um þriðja sætið sem við höfum stefnt að,“ segir Viggó, sem telur að sjálfsögðu ekkert annað koma til greina en Haukasig- ur. Viggó segir lið Vardar vera skipað hávöxnum og sterkum leikmönnum. Þeir leika mikið 5/1 vörn og 3/2/1 vörn eins og títt er um félags- og landslið frá ríkjum fyrrverandi Júgó- slavíu. Einnig getur Vardar-liði leikið skammlaust 6/0 vörn þótt það grípi sjaldnar til þess ráðs. „Þá eru markverðir liðsins góðir. Aðalmarkvörðurinn er sagður meiddur en varamarkvörðurinn virð- ist ekkert vera síðri, eftir því sem næst verður komist, þannig að það verður ekkert gefið eftir á þeim bæn- um.“ Nauðsynlegt að stjórna leiknum frá fyrstu mínútu Vardar hefur leikið tvo leiki í Meistaradeildinni á þessari leiktíð og eftir úrslitum að dæma virðist vera mikill munur á leik þess heima eða heiman. Vardar stóð í Magdeburg og tapaði með tveimur mörkum á loka- sprettinum, 30:28. Næst lék liðið við Barcelona á Spáni og steinlá, 41:19. „Það er því mjög mikilvægt að geta brotið Makedóníumennina niður snemma leiks, þá gefast þeir fljótt upp. Þess vegna skipta fyrstu mín- útur leiksins mjög miklu máli fyrir okkur fyrir það sem gerist síðan þeg- ar á leikinn líður. Það má alls ekki hleypa leikmönnum Vardar inn í leik- inn og láta þá stjórna honum. Við verðum að taka völdin strax frá fyrstu mínútu, það er eitt lykilatrið- anna fyrir því að ná hagstæðum úr- slitum,“ segir Viggó, en vill lítið gefa upp hvernig hann hyggst taka á Vardar-liðinu. „Ég tel mig vita vel að hverju við göngum á sunnudagskvöldið. Það er hins vegar nauðsynlegt að eiga ein- hver leynivopn sem maður gefur ekk- ert alltof mikið upp, þau koma í ljós. En fyrst og fremst finnst mér þessi leikur snúa að okkur sjálfum frekar en andstæðingunum. Ef við hrökkv- um í gang óttast ég það ekki við náum ekki góðum úrslitum. Við verðum fyrst og fremst að láta verkin tala,“ segir Viggó. Allir leikmenn Hauka eru klárir í slaginn fyrir viðureignina. Nú end- urheimtir liðið Aleksandr Shamkuts sem verið hefur frá um tíma vegna meiðsla. „Það styrkir okkur og stækkar hópinn að fá Shamkuts inn. Það kvartar enginn yfir meiðslum núna. Fyrst og fremst hefur andlega hliðin verið veik í liðinu í síðustu leikj- um en við verðum að kippa því í liðinn og ég trú ekki öðru en hún verði í lagi þegar á hólminn verður komið,“ segir Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka. Morgunblaðið/Þorkell Þorkell Magnússon, hornamaður Hauka, hefur hér brugðið sér inn á línuna í Evrópuleik gegn portúgalska liðinu Aveiro og skorar. Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, um viðureignina gegn Vardar Við verðum að láta verkin tala „EFTIR að hafa farið yfir Vardar-liðið af myndböndum er greinilegt að það getur leikið mjög misjafnlega ... Það getur leikið afar vel en á milli fallið niður á lægra plan þar sem ekkert gengur upp,“ segir Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, um væntanlega mótherja liðsins, Vardar frá Skopje, en liðin mætast í Meistaradeild Evrópu í hand- knattleik í íþróttahúsinu á Ásvöllum í Hafnarfirði kl. 20 annaðkvöld. Ívar Benediktsson skrifar  INDRIÐI Sigurðsson lék allan leikinn í vörn Genk þegar lið hans gerði jafntefli, 1:1, við Gent á úti- velli í belgísku 1. deildinni í knatt- spyrnu í gærkvöld. Genk er í öðru sæti deildarinnar, fimm stigum á eftir Anderlecht sem á einn leik til góða. Standard Liege er í þriðja sætinu, tveimur stigum á eftir Genk.  ÓLAFUR Stefánsson verður í eldlínunni á morgun þegar lið hans Ciudad Real mætir þýsku meistur- unum Lemgo í A-riðli Meistara- deildar Evrópu í handknattleik. Leikurinn fer fram á heimavelli Ciudad sem hefur unnið tvo fyrstu leiki sína í keppninni. Lemgo hefur einnig unnið tvo fyrstu leiki sína.  SIGFÚS Sigurðsson verður með Magdeburg í dag sem leikur við Barcelona í B-riðli Meistaradeild- arinnar. Leikurinn fer fram í Bördelandhalle í Magdeburg. Langt er síðan uppselt varð á leik- inn en Bördelandhalle tekur 8.000 manns í sæti.  DÓMARAR leiks Hauka ogVard- ar Skopje í Meistaradeild Evrópu í handknattleik á Ásvöllum á morg- un koma frá Slóvakíu. Eftirlitsmað- urinn kemur aftur á móti frá Dan- mörku.  HERMANN Hreiðarsson verður örugglega í liði Charlton sem tekur á móti Fulham í Lundúnaslag í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Síðasta mánudag voru sjö spor saumuð í augnabrún og augn- lok Hermanns í leikhléi þegar Charlton mætti Birmingham, en það háir honum ekki að ráði.  HÁSINARMEIÐSLI varnar- mannsins Franks Sinclairs eru al- varlegri en talið var í fyrstu og nú er ljóst að hann verður frá keppni í a.m.k. sex vikur. Þetta er talsvert áfall fyrir Leicester sem er í bar- áttu á meðal neðstu liða í ensku úr- valsdeildinni í knattspyrnu.  GERARD Houllier, knattspyrnu- stjóri Liverpool, vonast til þess að Michael Owen verði orðinn það góður af meiðslum í ökkla að hann geti tekið þátt í viðureigninni við Manchester United á Anfield á morgun. Owen gat ekki leikið með Liverpool gegn Steaua Búkarest á fimmudagskvöldið.  NEWCASTLE United á bæði knattspyrnustjóra og leikmann októbermánaðar í ensku úrvals- deildinni. Bobby Robson, hinn sjö- tugi stjóri félagsins, og Alan Shear- er, hinn 33 ára gamli markaskorari, hlutu þessa titla en Newcastle vann alla deildaleiki sína í mánuðinum, eitt liða í deildinni, og Shearer skoraði fjögur mörk og er annar markahæsti leikmaður deildarinnar í vetur með 9 mörk. FÓLK

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.