Lesbók Morgunblaðsins - 01.06.2002, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 01.06.2002, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 1. JÚNÍ 2002 3 H ér á landi tekur nám til stúdentsprófs að jafnaði 14 ár, þar af 10 í grunn- skóla og 4 í framhalds- skóla. Þeir sem hefja skólagöngu á sjötta ald- ursári og fylgja straumn- um ljúka því stúdentsprófi á tuttugasta ári. Í flestum nágrannalöndum okkar, beggja vegna Atlantshafs, mun al- gengast að menn ljúki námi sem veitir rétt til inngöngu í háskóla á átjánda eða nítjánda aldursári. Af þessu skyldu menn þó ekki álykta að íslenskir nemendur séu einu eða tveimur árum á eftir jafnöldrum sínum í öðrum löndum. Sé skólakerfi hér t.d. borið saman við Bandaríkin kemur í ljós að tvítug- ur íslenskur stúdent hefur að jafnaði lokið meira námi en sá sem klárar bandarískan „high school“ átján ára. Hér munar mest um hvað Íslendingurinn hefur lært miklu meira í erlendum tungumálum. Þegar í háskóla kemur tapar bandaríski neminn gjarna hálfu forskoti sínu á þann íslenska því hér á landi er algengast að nám til BA- eða BS- prófs taki 3 ár en í Bandaríkjunum tekur það að jafnaði 4 ár og þar í landi stunda flestir háskólanemar á fyrsta ári nám sem svipar til lokaáfanga á stúdentsbrautum við íslenska framhaldsskóla. Á vegum menntamálaráðuneytisins er nú unnið að tillögum um styttingu námstíma til stúdentsprófs. Þótt það sé mikil einföldun að halda því fram að íslenskir stúdentar séu heilu ári eða jafnvel tveimur árum á eftir jafnöldrum sínum í öðrum löndum finnst mér rétt að fagna þessari viðleitni ráðuneyt- isins. Það getur ekki verið markmið okkar að átján ára stúdentsefni hér á landi kunni næstum jafn mikið og jafnaldrar þeirra í öðrum löndum. Við hljótum að setja markið hærra og ætla þeim að standa upp úr með- almennskunni. Sá sem ekki keppir að efsta sæti í fyrstu deild endar á botninum í þeirri þriðju eða fjórðu áður en hann veit af. Þótt ég sé sammála því að stytta skuli nám til stúdentsprófs finnst mér rétt að vara við þeirri leið að markinu sem hvað mest hefur verið rætt um síðan mennta- málaráðuneytið hélt ráðstefnu um efnið í febrúar á þessu ári. Þessi leið er að hafa grunnskólann nokkurn veginn óbreyttan en stytta framhaldsskólann um eitt ár. Síðan 1986 hef ég starfað við Fjölbrauta- skólann á Akranesi sem tekur við afar sund- urleitum hópi unglinga og býður bæði upp á bóknám til stúdentsprófs, iðnnám, nám á ýmsum starfstengdum brautum og almenna námsbraut fyrir þá sem hafa ekki náð tökum á námsefninu í efri bekkjum grunnskólans. Skólinn veitir nemendum mjög mikið frelsi til að velja bæði um samsetningu náms og hversu mikið þeir nema á hverri önn. Sumir nýta þetta frelsi til að taka yfir 20 einingar af erfiðu námi á hverri önn. Aðrir byrja á áföngum sem eru fyrst og fremst upprifjun á efni grunnskólans og klára þetta 9 til 12 einingar á önn. Stúdentsbrautirnar eru 140 einingar og þær eru settar upp sem fjögurra ára brautir (þótt nokkrir ljúki þeim á skemmri tíma og nokkrir séu lengur með þær). Þetta þýðir að stúdentsefni ljúka að meðaltali 17,5 ein- ingum á önn. Aðrar námsbrautir eru styttri. T.d. eru margar iðnbrautir þrjú ár í skóla, þótt nemendur ljúki ekki sveinsprófi fyrr en eftir fjögur ár, því eftir nám í skóla þurfa þeir að starfa við iðn sína áður en þeir taka sveinspróf. Þótt stúdentabrautirnar séu lengstar eru stúdentarnir að jafnaði heldur yngri en þeir sem útskrifast af öðrum braut- um. Skýringin á þessu er að þeir sem taka stúdentspróf ljúka að jafnaði fleiri námsein- ingum á hverri önn en hinir. Þeim er eðlilegt að hafa afköst sem eru talsvert meiri en í meðallagi. Þegar nemendur, sem hafa haldið hópinn í grunnskóla í heilan áratug, koma í fram- haldsskóla dregur mjög hratt í sundur með þeim – svo hratt að það getur alls ekki verið að þeir hafi allir átt samleið í námi á síðustu árum grunnskólans. Þegar sextán ára unglingum er leyft að velja hve mikið þeir læra á hverri önn kýs stór hluti þeirra af fúsum og frjálsum vilja að læra tvöfalt meira en aðrir ráða við þótt þeir leggi sig alla fram. Hvað var þetta fólk að gera saman í efstu bekkjum grunnskóla? Það gefur augaleið að námsefni fyrir átt- unda, níunda og tíunda bekk sem miðar við einhvers konar meðalungling er í senn allt of létt fyrir þá sem fljúga á fullri ferð eftir bók- námsbrautum til stúdentsprófs, þegar þeir koma í framhaldsskóla, og allt of þungt fyrir þá sem eiga í basli með upprifjunaráfanga á almennri námsbraut. Fyrir miðjan áttunda áratug síðustu aldar var ekki talað um grunnskóla heldur barna- skóla (fyrir 7 til 12 ára) og miðskóla eða ung- lingadeildir (fyrir þá sem voru orðnir 13 ára). Hægt var að ljúka þriggja ára mið- skólanámi með samræmdu prófi sem kall- aðist landspróf. Einnig var hægt að ljúka miðskóla á fjórum árum og taka þá gagn- fræðapróf. Á árunum upp úr 1970 veittu bæði þessi próf rétt til inngöngu á stúdents- brautir framhaldsskóla. Á þessum árum hófu flestir stúdentsnám eftir 9 (þ.e. 6 + 3) ára skólagöngu en þó nokkrir eftir 10 (þ.e. 6 + 4) ár. Eftir því sem ég kemst næst gafst þetta fyrirkomulag nokkuð vel og ég held að þeir sem leggja á ráðin um styttingu náms til stúdentsprófs ættu að hyggja vel að reynslunni frá upphafi áttunda áratugarins. Grunnskólakrakkar taka samræmd próf í sjöunda bekk. Hugsum okkur að nið- urstöður þeirra prófa verði notaðar til að skipta hópnum í tvennt: Annar hlutinn (sem e.t.v. verður um þriðjungur af árgangi) gengst undir samræmd lokapróf eftir ní- unda bekk og fer í framhaldsskóla á fimm- tánda aldursári; hinn tekur samræmd loka- próf eftir tíunda bekk og byrjar í framhaldsskóla á sextánda aldursári. Verði þetta gert er trúlegast að þorri stúdentsefna byrji í framhaldsskóla ári yngri en nú. Á síð- ustu árum grunnskólans venjast verðandi stúdentar þá við nokkru hraðari yfirferð námsefnis og agaðri vinnubrögð en hægt er að koma við þar sem öllum er blandað sam- an eins og nú er gert. Mér finnst því ekki fráleitt að þessi hópur nái að jafnaði að ljúka 20 einingum á hverri önn í framhaldsskóla. Sé þetta rétt þyrfti að minnka námsefni til stúdentsprófs úr 140 einingum í 120 til að þorri þeirra sem klárar grunnskóla á 9 árum ljúki stúdentsprófi á 3 árum (þ.e. 6 önnum) í viðbót eða á átjánda aldursári. Verði farið að tillögu minni munu flest stúdentsefni stunda nám á hraða sem þeim er eðlilegur í 5 ár (2 í grunnskóla og 3 í fram- haldsskóla). Með öðrum orðum má segja að vinnutími þeirra nýtist að fullu í 5 ár í stað 4 ára nú. Verði hins vegar anað út í þá ófæru að stytta framhaldsskólann um ár án þess að breyta grunnskólanum mun vinnutími þess- ara nemenda nýtast með eðlilegum hætti í 3 ár í stað 4 ára nú. Þetta gæti orðið til þess að námsefnið sem þeir tileinka sér í framhalds- skóla minnki um fjórðung, þeir verði sem því nemur verr undirbúnir fyrir háskólanám og tíminn sem vinnst með styttingu fram- haldsskóla tapist að mestu við að fleiri þurfi að tvítaka fyrstu námsár í háskóla. STÚDENTSPRÓF 18 ÁRA RABB A T L I H A R Ð A R S O N KJARTAN ÁRNASON FRELSI (Á sviðinu sitja gúrú Sri Srihadha og lærisveinn hans í lótusstöðu og ræðast við.) L: Hvenær er maðurinn frjáls? G: Í dauðanum. L: Er hann þá aldrei frjáls í lífinu? G: Nei. L: En allir þeir sem eru lifandi dauðir? G: Þeir eru ekki frjálsir meðan hold þeirra lifir. L: Hvenær hefst þá dauði þessa fólks? Og frelsi? G: Þegar það deyr lífinu og fer að lifa dauðanum. G: Og jarðlífið er þá helsi? G: Já. L: En hvað með frelsi mannsins til að velja? G: Allt valfrelsi er bundið af takmörkunum holdsins. L: (hugsi) Þú segir nokkuð. (Lítur á úrið.) Jæja – pása! Hvort viltu 7up eða spræt? G: Spræt takk. (Lærisveinninn réttir meistara sínum gosið. Tekur síðan fram fjórar 7up-flöskur og velur sér eina af kostgæfni.) G: Þér fer fram sonur minn. (Þeir drekka saman í þögn.) Tjaldið. Úr Laun heimsins, örleikrit (útg. 2000) sem er 10. bók höfundar af ljóðum, smá- sögum, skáldsögu og þýðingum. LESBOK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR 2 1 . T Ö L U B L A Ð - 7 7 . Á R G A N G U R EFNI Loftskip voru glæsilegir farkostir sem áttu sitt blómaskeið á 3. og 4. áratug síðustu ald- ar. Hjálmar R. Bárðarson skrifar um sögu þeirra og rifjar upp hvernig ferill fyrsta íslenska skipaverkfræðingsins tengist sögu loftskipanna. Florence Nightingale er í flestum skilningi frumkvöðull nú- tímahugmynda um hjúkrunarstörf. Kristín Björnsdóttir dósent í hjúkr- unarfræði skrifar um ævi, störf og áhrif Nightingale. Ég, George, John, Paul og Ringó er smásaga eftir Jón Kalman Stefánsson. Þar setur höfundur aðalpersónuna í þau spor að gera úrslitatilraun til að sameina Bítlana eftir að þau tíðindi hafa borist að hljómsveitin hafi verið leyst upp. Akureyri í myndlist II er yfirskrift sýningar sem opnuð verð- ur í Listasafninu á Akureyri í dag. Þar sýna 23 brottfluttir Akureyringar verk sín. Gunnar J. Árnason listheimspek- ingur fjallar um sýninguna og segir meðal annars að þeir myndlistarmenn sem komið hafa frá Akureyri á síðasta aldarfjórðungi séu óvenjulega margir og góðir. Skýringarnar hljóti að vera að finna í aðstæðum sem hafa verið hagstæðar myndlistinni. FORSÍÐUMYNDINA tók Ragnar Axelsson í Landmannalaugum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.