Pressan - 11.04.1991, Blaðsíða 13

Pressan - 11.04.1991, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR PRESSAN 11. APRIL 1991 13 Werner Rasmusson í Delta SELDIFRIGG EFTIR Afl HAFA NÝn SÉR TftPIÐ Werner Rasmusson, apó- tekari og stjórnarformadur Pharmaco og Delta, hefur selt Burstagerdinni sápugerd- ina Frigg. Adeins um fimm mánudir eru sídan Delta keypti Frigg í röð fjárfestinga í fyrirtœkjum. Werner lýsti því þá yfir að œtlun Delta vœri að reka Frigg áfram. Stutt eignarhald Delta á Frigg styður fregnir um að sápugerðin hafi fyrst og fremst verið keypt af Delta í Féhirðir sýslumanns í Borgarnesi HÓTAR SKULDURUM NAFNBIRTINGU í BLÖBUM Olafur Steinþórsson, fé- hirðir hjá embœtti sýslu- manns Mýra- og Borgarfjarð- arsýslu, rekur innheimtufyrir- tœkið Skuldheimtuna sf. í Borgarnesi. Samkvœmt inn- heimtubréfum Ólafs sérhœfir hann sig í „innheimtu van- skilaskulda, sem taldar eru óinnheimtanlegar" og hótar skuldurum sem ekki gera upp innan tilsetts tíma að nöfn þeirra veröi birt í dag- blöðum. Ólafur, sem starfað hefur hjá embættinu í yfir 30 ár, er Eigendaskipti á dópgreninu á Hverfisgötu í grein í PRESSUNNI um „dópgreni" í risíbúðinni á Hverfisgötu 86 kom fram, að samkvæmt upplýsingum hjá fógetaembættinu væri Karl A. Manúelsson skráður eig- andi íbúðarinnar. Þetta er rétt, samkvæmt bókum fóg- eta, en hins vegar keypti Sig- urjón Siggeirsson ibúðina þann 13. október árið 1987. Sigurjón er því eigandi íbúðarinnar samkvæmt kaupsamningi þótt enn hafi ekki verið gengið frá afsali. nýlega farinn af stað með þetta innheimtufyrirtæki. Samkvæmt innheimtubréf- um frá Skuldheimtunni, er skuldurum boðið upp á að gera upp vanskil með gíró- greiðslu og fellur þá auka- kostnaður niður. Hafi skuldin ekki verið greidd innan 14 daga frá dagsetningu bréfsins boðar Ólafur að skuldararnir megi vænta þess að nöfn þeirra, heimilisföng og síma- númer verði birt í auglýsing- um í Dagblaðinu og Morgun- blaðinu, ásamt upplýsingum um vanskil skuldarans „öðr- um til viðvörunar". Og að um leið verði málið falið hæsta- réttarlögmanni og/eða Rann- sóknarlögreglu ríkisins til meðferðar. Ólafur Steinþórsson undir- strikaði í samtali við PRESS- UNA að þessi innheimta væri aðskilin frá störfum sínum við sýslumannsembættið og því óviðkomandi. „Ég hef eingöngu innheimt fyrir einn aðila, Shell-stöðina í Borgar- nesi, vegna innstæðulausra ávísana og bensínreikninga sem menn hafa ekki greitt. Þetta hef ég gert utan míns vinnutíma hjá sýslumanns- embættinu. Þrátt fyrir texta innheimtubréfsins hefur aldr- ei reynt á birtingu auglýsinga um vanskilamenn og hug- myndin ekki sú að láta á það reyna,“ sagði Ólafur. því skyni að kaupa tap Frigg til að draga úr skattgreiðsl- um. Á síðasta ári keyptu Phar- maco og Delta röð fyrirtækja; íslensk matvæli, Toro, Frigg og Sanitas. Eftir áramótin bættist síðan Viking-Brugg við. Þegar Werner Rasmusson var í desember síðastliðnum spurður af Morgunblaðinu hvort fyrirtæki hans væru i einhverjum tilfellum að kaupa tap fyrirtækja, sem kæmi þeim til góða vegna skatta, svaraði Werner; „Að sjálfsögðu horfum við líka á það", en bætti við að ætlunin væri að reka Frigg og íslensk matvæli áfram. Böðvar Friðriksson í Burstagerðinni sagði að fyrir- tækið hefði yfirtekið Frigg þann 2. apríl síðastliðinn. „Við keyptum reksturinn og húsnæðið að Lyngási 1 og munum flytja þangað. Við rekum samhliða fyrirtækið Besta í Keflavík og Kópavogi, sem hefur sérhæft sig í inn- flutningi á hreinsivörum, en nú bætist framleiðslan við. Um leið aukum við hag- kvæmni í rekstri og manna- haldi," sagði Böðvar. Paul Watson kemur til landsins í var Von er á Paul Watson for- svursmanni Sea Shepard samtakanna hingað til lands á fund Alþjóðahvalveiðiráðs- ins, sem haldinn verður í Reykjavík dagana 27. til 21. maí, ef Islendingar ákveða að taka upp hvalveiðar að nýju. Eins og marga rekur eflaust minni til var það Watson sem sökkti hvalveiðibátunum tveimur í Reykjavíkurhöfn þann 9. nóvember 1986. Hann kom aftur hingað til lands ásamt eiginkonu sinni fyrir tveimur árum, en var þá handtekinn og sat i gæslu- varðhaldi í Síðumúlafangels- inu, þar til upp var kveðinn frávísunardómur sem meinar Watson að koma til íslands eða annarra Norðurlanda næstu fimm árin. Watson ætlar ekki að láta dóminn aftra sér í því að koma til íslands. „Hvort hann kemur liggur Ijóst fyrir eftir eina til tvær vikur, en það veltur á því hvort íslendingar ætla aftur að hefja hvalveið- ar,“ sagði Benjamin White, einn af leiðtogum Sea She- pard við blaðamann PRESS- UNNAR. En ekki var hægt að ná í Watson sjálfan þar sem hann er staddur á öðru af tveimur skipum samtakanna undan Japansströndum. „Ákveði þeir að hefja veiöar sem Alþjóðahvalveiðiráðið bannar gerum við allt sem við getum til að stöðva þær." Að sögn Árna Kolbeinsson- ar ráðuneytisstjóra í sjávarút- vegsráðuneytinu á að láta á það reyna hjá ráðinu í maí hvort leyfi fæst til að veiða hrefnu og langreyðar við ís- land. Það er skoðun Magnúsar Skarphéðinssonar formanns Hvalavinafélags íslands að ís- lendingar verði „kýldir niður á fundinum. Þeir hafa hótað að segja sig úr ráðinu verði þeir undir, en samkvæmt 65. gr. hafréttarsáttmáia Samein- uðu þjóðanna verða allar þjóðir að vera aðilar að al- þjóðasamtökum til verndar sjávarspendýrum. íslending- ar ætla því að stofna gervi al- þjóðasamtök um hvalveiðar í Norðurhöfum ásamt Færey- ingum, Grænlendingum og Japönum nú í lok april," segir Magnús. „Það hefur ekki verið nein launung á því að við höfum haft áhuga á að kanna aðrar leiðir ef það gengur ekki (að fá leyfi til hrefnu-og langreyð- arveiða)," svaraði Árni Kol- beinsson þegar hann var spurður hvort til stæði að stofna sérstök samtök. „Það hafa verið fundir með þess- um þjóðum í Norður-Atlants- hafi undanfarin ár og einn slíkur verður hér í apríl. En að á honum verði stofnað eitthvað sem yfirtæki hlut- verk Hvalveiðiráðsins er of- mælt." „Björn er yfirmáta samviskusamur maður og einhver alnákvæmasti lögreglumaður sem ég hef unnið með. Hann er líka góður félagi og tryggur vinum sínum," segir Einar Rafn Har- aldsson framkvæmdastjóri sjúkrahússins á Eg- ilsstöðum. „Hann er duglegur og afkastamikill. Það er gott að vinna með honum," segir Jón Þórarinsson lögreglumaður. „Hann er mikill sómamaður. Það er fengur fyrir lögregluna í Reykjavík og almenning að hann skyldi veljast í starfið. Hann er drengskaparmaður, traustur og vandvirkur í starfi," segir Bogi Arnar Finn- bogason formaður foreidrasamtakanna Vímu- laus æska. „í lögregluskólanum var Björn róleg og þægileg týpa. Hann er vel gefinn og ákaflega samviskusamur. Lætur sjaidnast neitt frá sér fara nema að vel íhuguðu máli,“ segir Ragn- heiður Davídsdóttir blaðamaður. „Hann er ekki mikil félagsvera og ein- angrar sig því svolítiö. Og hann er metnað- argjarn,“ segir Ragnheiður Davíðsdóttir blaða- maður.,, Afstaða hans til fíkniefna og afbrota er mjög einstrengingsleg. Hann er á móti þeim. Og umburðarlyndi hans gagnvart þeim sem honum finnst spilla samfélaginu er ekki mikið,“ segir Einar Rafn Haraldsson framkvæmdastjóri.„Hann leggur of mikla áherslu á smaatriði, sem ekki skipta miklu máli,“ segir Jón Þórarinsson lögreglumað- ur.„Björn þykir umdeildur yfirmaður. Hann beitir stálaga og er stjórnsamur," segir lög- reglumaður. Björn Halldórsson yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar Björn Halldórsson yfirmaður fikniefnadeildar lögreglunnar hefur að undanförnu talað tæpitungulaust um ástandið í fiknefnamálum og hafa sumar yfirlýsingar hans vakið mikla athygli. UNDIR ÖXINNI Cuðmundur /. Guð- mundsson formaður Verka- mannasam- bandsins — Á Þjóðviljanum í gær má skilja, að þú sért að lýsa yfir stuðningi við Olaf Ragnar Grimsson og Alþýðubandalagið í kosningabará ttunni? „Ráðherrann kallaði á okkur Snæ Karlsson og sýndi okkur ákveðnar hugmyndir um möguleika á því að hækka skattamörkin, án þess að sýnd væri einhver sérstök tala. Ég var ósköp ánægður að hafa fengið stuðn- ing i því máli. En við Þjóðviljann hefég ekk- ert rætt og heldur ekki Alþýðubandalagið." — Hefur þú séð svipaðar tillögur frá öðrum flokkum fyrir kosningarnar? „Já, mér virðist vera vaxandi skilningur á þessu.j' — Ásmundur Stef- ansson, forseti ASI, hefur varað við tillög- um um hækkun skattleysismarka og hátekjuskatt á meðan þær eru ekki betur út- færðar, þvi einhvers staðar verði að taka peningana. Eru þetta ekki ábyrgðarlausar tillögur? „Það eru orð Ás- mundar en ekki min. Og ég geri hans orð ekki að mínum. En ég fagnaði að þessar hug- myndirkæmu fram hjá Ólafi, þótt ekki væru þær nánar útfærðar. Ég tel afleitt að frí- tekjumarkið sé jafn lágt og það er." I Þjóóviljanum á midvikudag er þvi slegid upp á forsidu ad Verka- mannasambandid stydji tillogur Alþýdubandalagsins um þad sem kallad er „lifskjarajofnun". Ás- mundur Stefánsson forseti Al- þydusambandsins hefur hins vegar varad vid illa útfærdum til- logum um hátekjuskatt og hækk- un skattleysismarka.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.