Pressan - 11.04.1991, Blaðsíða 18

Pressan - 11.04.1991, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR PRESSAN 11.APRÍL1991 Stjórnmálamenn .A.lþingi. Stjórnmálamenn bera ekki þá virðingu fyrir Alþingi sem þeir vilja krefja fjölmiðla og almenning um. Astæðan er sú að þeir líta á ríkisstjórn sem endanlegt markmið. Þangað komast þeir sem ná lengst. Og eins og aðrir sem hafa náð langt líta ráðherrar niður á þá sem hafa náð skemmra. Ráðherr- ar fyrirlíta því innst inni al- menna þingmenn. Og þar sem ráðherrarnir eru á toppnum gefa þeir tóninn fyr- ir aðra minni spámenn. IByggðastefna. Stjórn- málamenn hafa komið sér saman um að kalla það byggðastefnu þegar þeir kaupa sér atkvæði á lands- byggðinni. Til þess hafa þeir stofnað sérstakan sjóð og bú- ið til stofnun t kringum hann. Byggðastofnun. Ef þeir eru hræddir um stöðu sína í kjör- dæminu kalla þeir það byggðavanda. Þegar þeir reyna að afla sér vinsælda segja þeir að byggðaleg sjón- armið ráði ferðinni. Diplómatar. Þar sem ís- lendingar eru ekki í Efna- hagsbandalaginu nota ís- lenskir stjórnmálamenn ut- anríkisþjónustuna á sama hátt og kollegar þeirra í EB-löndunum nota Evrópu- þingið. Þeir nota hana til að koma óþægilegum flokksfé- lögum út úr pólitík. Einstæöir foreldrar. Stjórnmálamenn elska ein- stæða foreldra. Ekki vegna þess að þeim sé annt um hag þeirra heldur vegna þess að það er þjóðarsátt um að ein- stæðir foreldrar eigi bágt. Stjórnmálamaðurinn getur því verið viss um að alnienn- ingur telur hann góðan ef hann réttir hag einstæðra for- eldra. Honum er enginn akk- ur í að bæta hag hinna ver settu ef enginn tekur eftir því. Þess vegna er það betra fyrir stjórnmálamanninn að bæta hag eins hóps aftur og aftur lieidur en að leita uppi aðra hópa sem hafa það álíka slæmt. F lokkssystkini. Stjórn- málamaðurinn sér ekki sam- herja í flokkssystkinum sin- um heldur óvini. Leiðin aö metorðum úti í þjóðfélaginu er í gegnum metorð í flokkn- um. Til þess að ná völdum í eigin flokki og halda þeim myndar stjórnmálamaðurinn frá A-til O hræðslubandalög með flokkssystkinum sínum. Hann treystir þeim hins veg- ar aldrei. Stjórnmálamaður- inn er nefnilega miklu hræddari við flokkssystkini sín en fólk í öðrum flokkum. Honum stendur engin raun- hæf ógn af þeim nema hann sitji með þeim í ríkisstjórn. Gagnrýni. Stjórnmála: menn þola ekki gagnrýni. í raun vita þeir ekki hvað gagnrýni er. Það sem annað fólk upplifir sem gagnrýni skynjar stjórnmálamaðurinn sem árásir. Þegar hann verð- ur var við eitthvað sem betur mætti fara hjá öðrum stjórn- málamönnum ræðst hann á þá. Ef hann finnur ekkert þá ræðst hann samt á þá. Það er því engin furða þó stjórn- málamaðurinn taki gagnrýni sem beint er að honum sem árásum. Hafnarframkvæmdir. Þó margur mundi ætla að „hug- sjónir" væri það orð sem byrj- ar á H sem stjórnmálamönn- um stæði næst er það ekki svo. Hafnarframkvæmdir skipta þá miklu meira máli. Fyrir landsbyggðarþing- mann skiptir fátt meira mali en að hafa staðið fyrir að höfnin væri dýpkuð og varn- argarður lengdur í sinni heimabyggð. Þá skiptir engu þó fiskvinnslan á staðnum sé dauðadæmd. Hafnarfram- kvæmdir hafa engan annan tilgang fyrir stjórnmála- manninn en að afla honum atkvæða. Ef það héldi honum á þingi væri hann tilbúinn að beita sér fyrir því að útflutn- ingshöfn væri gerð við Þing- vallavatn. Ismar. Stjórnmálamenn vilja ekki láta kenna sig við neina isma. Stjórnmálamenn vilja láta líta út fyrir að þeir séu í raun sammála öllum kjósendum. Þó einhverjir kjósenda kunni að aðhyllast ákveðna stjórnmálastefnu er öruggt að enn fleiri hafa mikla skömm á henni. 4 Jó. Flestar stéttir leggja niður vinnu og taka sér frí um jólin. Stjórnmálamenn hætta hins vegar í friinu og fara aö vinna um jólin. Þá reyna þeir að hespa þriggja mánaða vinnu af á þremur kvöldfund- um. Eins og gefur að skilja er það ómögulegt. Því fara allar lagabreytingar í gegnum þingið án umræðu. Ef þing- menn taka til máls í einu máli er það vanalega til þess að tefja framgang annars máls eða mynda þrýsting til að þeir fái sæti í bankaráði. ICosningar. Stjórnmála- menn óttast ekkert jafn mikið og kosningar. Völd þeirra geta minnkað eftir kosningar og þeir geta jafnvel misst vinnuna í kosningum. Stjórn- málamenn eyða því öllum tímanum á milli kosninga í að reyna að koma í veg fyrir að þeir missi vinnuna. Þess vegna hugsa stjórnmála- menn alltaf í fjögurra ára tímabilum. Þess vegna vilja þeir frekar bjarga vandanum fyrir horn en að leysa hann, ef það tekur meira en fjögur ár fyrir lausnina að skila ár- angri. Lýðræði. Stjórnmála- mönnum er illa við lýðræði nema þegar þeir geta notað það til að komast til valda. Aukið lýðræði þýðir minni völd til stjórnmálamanna. Með auknu íýðræði skerðast möguleikar þeirra til að afla sér vinsælda og því aukast líkurnar á að þeir missi völd- in og jafnvel vinnuna. IVIinni. Stjórnmálamenn treysta á að kjósendur muni ekkert stundinni lengur. Þeir liika því ekki við að gefa lof- orð sem þeir ætla aldrei að standa við. Þeir eru líka þess fullvissir að þeim sé óhætt að gera einhvern óskunda ef lengra er til kosninga en þrjár vikur. Það er ekki nema einn og einn kjósandi sem man lengra aftur en svo. \ w. lögum erlendis eru stjórn- málamenn hrifnastir af því að vera sendir á allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York. Bæöi er að heimsborg- in er miklu skemmtilegri en höfuðborgir Noðurlandanna og eins stendur allsherjar- þingiö yfir í heilar tvær vikur. Næst á eftir allsherjarþinginu kemur Noðurlandaþing á vinsældalistanum. Þó þau séu styttri en allsherjarþingin eru veislurnar þar engu síðri. Norræn samvinna er eins- konar Evrópubandalag norð- ursins. Ef eldri þingmenn gætu sest þar í helgan stein eins og þingmenn Evrópu- bandalagsþjóðanna gera á Evrópuþinginu væri Norður- landaþingið fullkomið. Opinberir sjóðir. Stjórn- málamenn nota opinbera sjóði til að tryggja sig í sessi. Þeir gera það með því að ausa úr þeim í verkefni í kjör- dæmum sínum. Þeir gera það með því að reisa sér minnis- merki. Og þeir gera það með því að redda hugsanlegum kjósendum vinnu eða verk- efnum á kostnað opinberra sjóða. Stjórnmálamenn eiga hins vegar erfiðara með að afla opinberum sjóðum fjár. Þess vegna eru allir opinberir sjóðir gjaldþrota. P eningar. Stjórnmála- menn hafa ekkert vit á pen- ingum. Stjórnmálamenn eru nefnilega sambland af tveim- ur verstu gerðum fjármála- manna sem til er; opinbera starfsmanninum og hug- sjónamanninum. Opinberi starfsmaðurinn lítur svo á að hver króna sem honum tekst ekki að eyða sé glötuð króna. Hann þarf ekki að afla pen- inga heldur sækir hann þá í opinbera sjóði. Og því meira sem hann eyðir því meira fær hann úr þessum sjóðum. Hugsjónamaðurinn telur sig alltaf vera að vinna fyrir aðra og eigi því allt gott skilið. Og þegar honum er treyst fyrir peningum skammtar hann sér því oftast ótæpilega sjálf- ur. R.íkiö. Þó ríkið sé undir- staða alls valds sem stjórn- málamenn sækjast eftir eru þeir í orði svarnir andstæð- ingar ríkisbáknsins. Þetta gengur náttúrlega ekki upp. Stjórnmálamenn eru í stjórn- málum til að öðlast völd. Þeir leggja það ekki á sig að klifra upp metorðastiga flokkanna, svíkja samstarfsfélaga sína, lifa í stöðugum ótta við sam- særi, en brosa samt við og heilsa hverjum þeim asna sem þeir hitta, bara til þess eins að draga úr ríkisumsvif- um og skerða þar með völd sín. Eina leiðin til þess að ráð- herra fáist til að minnka ríkis- umsvif er ef þau eru á vald- sviði annars ráðherra. Skoðanir. Stjórnmála- menn hafa ekki skoðanir. Þeir nota hins vegar skoðanir til þess að ganga í augun á kjósendum. Stjórnmálamenn hafa því aldrei óvinsælar skoðanir. Þeir eru hrifnastir af skoðunum sem enginn andmælir. Stjórnmálamenn eru því vanalega þeir síðustu sem hafa tiltekna skoðun. Þess vegna finnst öllum að þeir hafi heyrt allt þúsund sinnum áður sem stjórnmála- menn segja. Tölur. Stjórnmálamenn eru yfirleitt hrifnir af tölum fyrir þær sakir að það er ekk- ert svo aumt að ekki sé hægt að sýna fram á það með töl- um að það sé í þokkalegu ástandi. Auk þess vita stjórn- málamenn að ef þeir nefna margar tölur á skömmum tíma missa áheyrendur þráð- inn. En þeir telja hins vegar ekki að stjórnmálamaðurinn sé að bulla eins og ef þeir misstu þráðinn í venjulegum orðaflaum. Því grípa stjórn- málamenn vanalega til talna ef þeir eru í vanda. Upplýsingar. Stjórnmála- mönnum er meinilla við upp- lýsingar. Þar sem þeir þurfa að sækja um vinnu hjá kjós- endum á fjögurra ára fresti vilja þeir fá að stjórna því sem almenningur fréttir af störf- um þeirra. Það sem þeir segja er hins vegar álíka trúlegt og það sem sá sem sækir um vinnu skrifar á umsóknar- eyðublaðið. Sá tilgreinir það sem hann heldur að verði sér til framdráttar en þegir yfir hinu. Öfugt við þann sem sækir um vinnu á almennum markaði getur stjórnmála- maðurinn aldrei vísað til meðmælenda. •/ extir. Afstaða stjórn- málamanna til vaxta mótast af því að það er leiðinlegt að borga vexti en það er gaman að fá þá. Þegar stjórnmála- maðurinn hefur vegið þetta tvennt og metið kemst hann að þeirri niðurstöðu að þaö borgi sig að vera á móti vöxt- um. Skuldarar virða hann meira fyrir það en sparifjár- eigendur erfa það við hann. rjódhagsleg hag- kvæmni. Þegar stjórnmála- menn geta ekki varið gerðir sínar eftir venjulegum leið- um grípa þeir oftast til þess að segja að það sem þeir stóðu fyrir hafi verið þjóð- hagslega hagkvæmt. Þannig hafa fiskeldi, loödýrarækt, skipasmíðar, ullariðnaður og önnur þjóðhagslega hættu- leg ævintýri öll verið þjóð- hagslega hagkvæm í munni stjórnmálamanna. /X_iskan. Stjórnmálamenn nota æskuna í tvennum til- gangi. Annars vegar er æsku- fólk einkar ósérhlífið í kosn- ingabaráttu fyrir flokkana. Það má því láta það dreifa bæklingum og gera annað það sem enginn fullorðinn nennir. Hins vegar nota stjórnmálamenn æskuna í framboðsræðum þegar þeir segja: ,,í æskunni býr auður framtíðarinnar." Fyrir utan þetta tvennt mótast afstaða stjórnmálamanna til æskunn- Stjórnmálamenn keppast nú við að segja okkur hversu röggsamir, góðir, samviskusamir, réttlátir og gáfaðir þeir séu. Eitthvað segir okkur hins vegar að lýsing þeirra á sjálfum sér standist ekki alveg. Þessi lýsing passar ekki alveg við reynslu okkar. En hvernig eru þeir í raun? Hér fá lesendur PRESSUNNAR að vita allt um það. Hvernig stjórnmálamenn- irnir eru - frá A til Ö. í Þetta er kosningahandbók PRESSUNNAR. ar einkum af því að þeir telja hana dálítið óútreiknanlega kjósendur. Eitt af því sem stjórn- málamaður þarf að gera er að þekkja sitt heimafólk. Þeir sem það gera vita að ekkert er betra til atkvæðaveiða en áfengisveitingar. Það eru ekki til svo aum samtök eða félagsskapur að honum takist ekki að kría út kokteilboð hjá ráðherra í tengslum við aðal- fund sinn. Vegna þessa hafa stjórnmálamenn komið upp því kerfi að ráðherrar geti keypt áfengi á niðursettu verði. Þá munar hins vegar ekki um að kaupa pappírinn í möppudýrin fullu verði. Gunnar Smári Egilsson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.