Tíminn Sunnudagsblað - 25.10.1970, Qupperneq 5
Blind stútka viS vinnu í gróSurhúsi
hefur' það markmið að liðsinna
tolindum börnum og unglingum,
og nú hefur þetta félag fengið til
umráða landskika og dvalarheim
ili á Upplandi. Þangað koma tutt-
•ugu ti ltuttugu og firnm blindir
unglingar síðdegis hvern föstudag
og dveljast þar til sunnudags
kvölds.
Það er reyndar gamalt veitinga-
hús, er breytt var í dvalarheimili.
Fe var safnað hjá fyrirtækjum og
einstaklingum til þess að endur
bæta veitingahúsið, kaupa hús-
gögn og eldhúsgögn og gera það
að vistlegasta dvalarstað. Meðal
annars eru þar taltæki, svo að fólk
getur talað saman herbergja á
milli, og þar eru einnig fjarskipta
tæki, svo að fjarlægðirnar hamla
því ekki, að þeir, sem lært hafa
með þau að fara, geti náð sam-
bandi við fól-k í öðrum landshlut
um, löndum og heimsálfum. Um
hæfilega matarskammta er búið í
frystikistum, þar sem unglingar
geta gengið að þeim og hitað sjálf
ir upp mat handa sér.
Undir handarjaðri þessa félags
hefur verið stofnuð hljómsveit
blindra unglinga (hún heitir
A 440), og fyrsta grammófónplata
þessarar hljómsveitar kom á mark-
að sfðastliðið vor. Flokkur æfir
þjóðdansa, og leikir hafa verið
æfðir. Það væri vitanlega ekki rétt
að kalla þetta sjónleiki: Það eru
heyrnarspil, ef bjargast má við
það orð.
Gróðurhús fylgir dvalarheim
ilinu, og þaðan var hálf smálest
af tómötum seld sumarið 1969.
Býflugnabú er í garðinum, og
verkfæraskúr með lítilli dráttarvél
og snjósleðum. í sumar fengu
unglingarnir meira að segja hest
og seglbát. í dráttarvéium eru tal-
stöðvar, svo að sjáandi menn geti
ieiðbeint þeim, sem blindir eru,
við aksturinn.
Þetta hjálparfélag blindra stefn
ir að því að koma upp annarri
miðstöð blindra uuglinga, sem
vilja nema iðnir og stunda þær,
þegar námi því, sem fram fer í
blindraskólanum í Tomteboda, er
lokið. Þessari stofnun hefur þegar
vexúð valinn staður við Löginn, þar
sem heitir Lindormsnes. Þar á að
sjá blinda fólkinu fyrir nægum
bókum á blindraletri og hjálpa því
til þess að komast í þá skóla. er
það þarf að sækja, og þarna á enn
frernur að vex'ða húsdýravarzla.
Fólk á að geta komið hundum,
köttum og öðrum dýrum í fóstur
á þessum stað, þegar það fer sjálft
að heiman. Það á að verða ein af
tekj ugreinum stofnunarinnar.
Þessi stofnun, sem ekki er enn
risin af grunni, hefur verið skírð
Klukkubær. Byggingarnar eiga að
rnynda hring um allstóran garð, og
á þeim verða dyr til allra átta.
Hugmyndina að þessari byggingu
fékk Sven Nahlin, er hann skoð-
aði blindraheimili í Marburg í
Þýzkalandi. Húsið hefur þegar ver
ið teiknað, og iþrótta- og útivlstar
ráð Stokkhólms, er hefur umráð
yfir Lindormsnesi, hefur lagt
þessu máli miklð lið eins og mörg
Námshelmili blindra manna, sem ð að reisa ð Lindormsnesl.
Blindir unglingar a5 búast til köfunar.
TÍMINN - SUNNUÐAGSBLAÐ
821