Morgunblaðið - 16.12.2005, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.12.2005, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sagan um Jörund hundadagakonung og byltingu hans á Íslandi www.jpv.is „… rennileg og myndræn, vel stíluð og hárfínt jafnvægi ríkir milli skáldskapar og sagnfræði … raunsæisleg og sannfærandi.“ Steinunn Inga Óttarsdóttir / MORGUNBLAÐIÐ „Bráðlæsileg og spennandi“ Illugi Jökulsson / TALSTÖÐIN GILJAGAUR og Þvörusleikir af- hentu í gærdag Guðlaugu Jónínu Aðalsteinsdóttur, varaformanni Mæðrastyrksnefndar, og Vilborgu Oddsdóttur, fulltrúa Hjálparstarfs kirkjunnar, um 1.500 jólapakka sem safnast hafa undir jólatré Kringlunnar. Eru það fyrstu pakk- arnir sem afhentir eru í söfnun Kringlunnar og útvarpsstöðvar- innar Bylgjunnar sem í samstarfi við Íslandspóst hafa staðið fyrir slíkri söfnun undanfarin ár. Mæðra- styrksnefnd, Hjálparstarf kirkj- unnar og Fjölskylduhjálp Íslands sjá svo um að koma pökkunum til þeirra sem á aðstoð þurfa að halda. Söfnuninni lýkur formlega mið- vikudaginn 21. desember og eru gestir Kringlunnar hvattir til að kaupa „eina gjöf til viðbótar“ fyrir þá sem minna mega sín. Hermann Guðmundsson, markaðsstjóri Kringlunnar, segir söfnina hafa farið betur af stað fyrir þessi jól en í fyrra og allar líkur á því að met verði sett í pakkasöfnuninni í ár. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fyrstu jólapakkarnir afhentir EMBLA, hinn nýi leitarvefur mbl.is og bæk- ur.is hafa gengið til samstarfs um sölu bóka á vefsetrinu bækur.is. Samstarfið felur í sér að þegar leitað er eftir ákveðnum bókatitli á Emblu getur viðkomandi keypt bókina á bækur.is sé hún þar til sölu. Í mörgum til- vikum er nú hægt að lesa kafla úr útkomnum bókum og jafnvel hlusta á sýnishorn á bækur.is. Stefnt er að því í framtíðinni að allar útkomnar bækur á Íslandi verði inni á bækur.is og nú þegar eru hundruð bókatitla á vefnum frá 12 bóka- forlögum. Daglega bætast við nýir titlar. Leitarvélin Embla er eina leitarvélin sem kann íslensku. Þegar notandi slær inn orð athugar Embla hvort hún þekki þau og leitar svo að öllum myndum orðsins. Sem dæmi má nefna að slái notandi inn leitarorðið „flug- völlur“ finnast líka greinar þar sem talað er um flugvöllinn í Vatnsmýri og flugvelli í Evrópu. Þetta gerir það að verkum að Embla gefur oft fleiri og betri niðurstöður en aðrar leitarvélar. Leitarvélin er hönnuð af fyrirtæk- inu Spurl í samvinnu við Orðabók Háskólans. Vefurinn Embla var opnaður 1. nóvember sl. Þess má geta að vefur Morgunblaðsins, mbl.is, var valinn besti íslenski vefurinn, með sérstakri áherslu á Emblu, leitarvél vefjarins, þegar Íslensku vefverðlaunin voru af- hent 29. nóvember. Þessi verðlaun hafa verið veitt frá árinu 2000. Aðstand- endur Íslensku vefverðlaunanna eru ÍMARK, samtök íslensks markaðs- fólks og nokkrir aðilar sem tengjast vefiðnaðinum. Bóksala á mbl.is HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur synjaði í gær kröfum sakborning- anna í Baugsmálinu um niðurfellingu málsins, en verjendur höfðu sett fram þá kröfu vegna ítrekaðrar úti- vistar af hálfu ákæruvaldsins. Sakborningar ætla að kæra úr- skurð héraðsdóms til Hæstaréttar. Um er að ræða þá átta ákæruliði málsins, sem Hæstiréttur vísaði ekki frá með dómi sínum. Krafa sakborn- inganna um að málið yrði látið niður falla var í fyrsta lagi byggð á því að þrívegis hefði verið um að ræða úti- vist í þinghaldi að ræða hjá Sigurði Tómasi Magnússyni, settum ríkis- saksóknara. Um þetta atriði segir héraðsdómur, að annmarki á vald- heimild hins setta ríkissaksóknara, sem úrskurðað var um 22. nóvember, sé ekki lengur til staðar eftir að rík- issaksóknari hafði með bréfi ótvírætt vikið sæti í þeim málshluta sem enn var fyrir dómi og hinn sérstaki rík- issaksóknari hafði jafnframt verið settur til að fara með hann sam- kvæmt nýrri umboðsskrá ráðherra. Gagnrýni dómsmálaráðherra tengist ekki beint sakarefnum Í öðru lagi vísuðu verjendur til vanhæfis Björns Bjarnasonar dóms- málaráðherra, til að setja sérstakan saksóknara í málið vegna ýmissa ummæla sem hann hefur látið falla opinberlega um sakborningana og Baug. Í niðurstöðu héraðsdóms seg- ir m.a. að þótt ummæli ráðherrans séu mjög gagnrýnin verði þó ekki séð að gagnrýni hans tengist beint einstökum sakarefnum sem liggi fyr- ir dómnum. Þá fari dómsmálaráð- herra ekki með stjórnsýsluvald á neinu því sviði, sem ummæli hans varða. Hinn setti ríkissaksóknari sé sjálfstæður að lögum og lúti í engu boðvaldi ráðherra. „Það er ennfremur álit dómsins að það hljóti að leiða af eðli stjórnmála í lýðfrjálsu landi að ráðherra hafi verulegt svigrúm til þess að ræða og rita opinberlega um stjórnmál og önnur opinber málefni án þess að hann geri sig með því vanhæfan til stjórnvaldsathafnar. Væru að öðrum kosti settar óviðunandi skorður ann- ars vegar við frjálsri stjórnmálaum- ræðu og hins vegar við nauðsynleg- um embættisfærslum ráðherra,“ segir í úrskurðinum. Í þriðja lagi bentu verjendur á að eftir að ríkislögreglustjóri væri bú- inn að gefa út ákæru í málinu ætti hann að sækja málið í héraði. Ekki væri leyfilegt að ríkissaksóknari færi með það. Um þetta segir í úr- skurði héraðsdóms, að samkvæmt lögum sé ljóst að lögreglustjórar, þar á meðal ríkislögreglustjóri, hafi ekki sjálfstætt ákæruvald heldur fari með það undir yfirstjórn og eft- irliti æðsta handhafa ákæruvaldsins, ríkissaksóknara. Ríkissaksóknari geti þannig á öllum stigum máls mælt fyrir um meðferð þessa valds, bæði almennt og í einstökum málum. Verði því ekki fallist á það að óheim- ilt hafi verið að flytja forræði málsins frá ríkislögreglustjóra til ríkissak- sóknara og þannig hafi ekki verið sótt þing í málinu. Kröfum um niðurfellingu Baugsmálsins var hafnað Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is Sakborningar í málinu ákváðu strax að kæra úrskurðinn til Hæstaréttar HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 8 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn 13 ára stúlku. Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða stúlkunni 400 þúsund krónur í bætur og sakar- kostnað, tæpar 500 þúsund krónur. Fram kemur í dómnum að ákærði og stúlkan kynntust í spjalli á texta- varpi Sjónvarpsins á síðasta ári en síðan hafi samskipti þeirra þróast yf- ir í sms-sendingar. Þau hafi síðan hist 3. janúar á þessu ári og mað- urinn ók að Öskjuhlíð þar sem þau höfðu kynmök í bíl hans. Var aðeins 13 ára Stúlkan bar að hún hefði ávallt sagt manninum að hún væri 13 ára en maðurinn sagði stúlkuna hafa sagt sér að hún væri 14 ára. Fram kemur í niðurstöðu dóms- ins, að maðurinn hefur þrívegis hlot- ið refsidóm, þar á meðal fyrir rán og líkamsárás. Hann bar fyrir dómi að hagir hans væru mjög breyttir nú og hann hefði snúið baki við þeim fé- lagsskap sem hann var í, væri í sam- búð með barnsmóður sinni og þau ættu saman lítið barn. Þá kvaðst hann vera í fastri vinnu. Við ákvörðun refsingar var tekið tillit til þessa atriða en einnig þess að maðurinn var 25 ára gamall þegar brotið var framið. Hann hafi í krafti reynslu sinnar og aldurs yfirburða- stöðu gagnvart stúlkunni, sem hafði samkvæmt gögnum málsins aldrei haft reynslu af kynlífi. Maðurinn hafi frá upphafi netsamskipta þeirra vit- að um réttan aldur stúlkunnar og hlotið enn fremur að verða ljóst, þeg- ar hann leit hana augum, að aðeins var um óþroskað barn að ræða. Með háttsemi sinni hafi maðurinn brotið ákvæði hegningarlaga sem löggjaf- inn hafi sett til þess að veita börnum vernd gegn tilgreindri kynferðis- legri hegðun og sé hún mörkuð við ákveðinn aldur. Þessi mörk verði ekki upphafin með samþykki barns- ins. Málið dæmdi Ingveldur Einars- dóttir héraðsdómari. Verjandi ákærða var Brynjólfur Eyvindsson hdl. og sækjandi Sigríður Friðjóns- dóttir saksóknari. Dæmdur fyrir kyn- ferðisbrot HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt tæplega fertugan karl- mann í 90 daga skilorðsbundið fang- elsi fyrir að hafa barnaklám undir höndum. Á hörðum diskum í tölvu mannsins fundust 349 ljósmyndir og 17 stuttar hreyfimyndir sem sýndu börn á kynferðislegan eða klámfeng- inn hátt. Málið uppgötvaðist þegar maðurinn fór með tölvuna í viðgerð og fundust þá myndirnar við skoðun lögreglu eftir að hald var lagt á tölv- una. Dómurinn taldi brotið stórfellt en tók tillit til þess að maðurinn hafði ekki hlotið refsidóma áður auk þess sem hann játaði brot sitt. Málið dæmdi Ásgeir Magnússon héraðsdómari. Verjandi var Guðrún Sesselja Arnardóttir hdl. og sækj- andi Sigríður J. Friðjónsdóttir sak- sóknari hjá ríkissaksóknara. Dæmdur fyrir barnaklám
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.