Morgunblaðið - 16.12.2005, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 16.12.2005, Blaðsíða 55
veiktist Sólveig og lá um tíma bæði á Borgarspítalanum og FFS í langan tíma. Hún náði ekki fullum bata eftir það. Við kveðjum þig, elsku Sólveig Ágústa, með djúpum söknuði. Hvíl þú í friði. Haukur, Guðrún og Valgerður Helga. Látin er kær vinkona mín, Sólveig Runólfsdóttir. Ég var orðin ungling- ur þegar ég hitti Sólveigu í fyrsta sinn. Verðandi eiginmaður hennar og frændi minn, Guðmundur Örn Árna- son, skógfræðingur, kom með sína tilvonandi eiginkonu í heimsókn á Nökkvavoginn til að kynna hana fyr- ir henni ömmu minni og börnunum hennar sem bjuggu þar saman og mér, en amma mín var ömmusystir hans. Að þeirra tíma sið þurfti ekki að hringja, ef fólk ætlaði í heimsókn. Ekkert sjónvarp og ekki beinlínis mikið um að vera. Fólk var yfirleitt heima hjá sér á kvöldin. Vala frænka móðursystir mín og uppeldissystir Ingibjargar tengdamóður Sólveigar, tók vel á móti þeim. Síðan hafa leiðir okkar Sólveigar og fjölskyldu oft leg- ið saman. Sólveig stóð alla tíð eins og klettur með fjölskyldu sinni. Vann utan heimilis. Starfaði lengi hjá Gefjun við skrifstofustörf. Hún var félagsmála- kona og kvað mikið að henni á þeim vettvangi. Var m.a. formaður Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi. Var örugglega ötull liðs- maður í fleiri félögum án þess að ég hafi vitneskju þar um. Var fyrsti for- maður jafnréttisráðs í Kópavogi. Nú eru þrjátíu ár frá stofnun ráðsins. Svo skemmtilega vill til að núverandi formaður jafnréttisráðs, Sigríður Konráðsdóttir, er tengdadóttir Sól- veigar. Þau Guðmundur Örn voru svo lánsöm að hafa gengið saman ævigönguna marga áratugi í farsælu hjónabandi og eiga fjölda afkom- enda. Þeir eiga sér góða fyrirmynd í Sólveigu. Sólveig reyndist tengdamóður sinni afar vel og leit inn hjá henni flestar helgar. Hún var ævinlega ró- leg, yfirveguð og vinur vina sinna. Okkur var alltaf vel til vina. Ég er henni ákaflega þakklát fyrir hvað hún hafði mikið samband við mig, þegar móðursystir mín Valgerður var orðin öldruð og veik. Það var mér mikill stuðningur. Blessuð sé minn- ing hennar. Frænda mínum Guð- mundi Erni og fjölskyldu færum við hjónin innilegar samúðarkveðjur. Helga Skúladóttir. Í dag kveðjum við starfsfólk Bygg- ingafélags Gylfa og Gunnars (BYGG) Sólveigu með orðunum „Hvert ör- stutt spor var auðnuspor með þér.“ Það var gæfuspor á fyrstu árum Bygg þegar fyrirtækið réð Sólveigu til starfa. Solla eins og hún var ávallt kölluð bar hag Bygg og starfsmanna mjög fyrir brjósti. Laun starfsmanna voru hennar mál og gengu þau ætíð fyrir öllu öðru. Gaman var að fylgjast með staðfestu hennar ef einhver „karlanna“ skilaði ekki af sér tímum á réttum tíma, þannig hélt hún góð- um aga og aðhaldi í fyrirtækinu. Ekki má gleyma viðskipavinunum sem komu á skrifstofuna, henni þótti nauðsynlegt að bera þeim kaffi og meðlæti. Heilsa Sollu versnaði mjög hin síð- ustu starfsár hérna hjá Bygg og var ótrúlegt að fylgjast með því hversu lengi hún náði að sinna sínum störf- um. Þegar að starfslokum kom sást best harkan og dugnaðurinn, sem í henni bjó. Við sem nutum vináttu og kær- leika Sollu og hennar góða viðmóts, þökkum henni af öllu hjarta og kveðjum hana með þessum orðum: Sofðu vina sætt og rótt við söngsins óma. Ástúð þín mun aldrei gleymast, innst í hjörtum vina geymd. Ljúfir englar leiði þig um ljóssins vegi. Aldrei gleymast okkar fundir. Öll við þökkum liðnar stundir. (J. H. Sv.) Guðmundur, Guð blessi þig og fjöl- skyldu þína og megi hann leiða ykkur til bjartari daga. Gylfi og Gunnar. Látin er eftir erfið veikindi ein af okkar öflugustu félagskonum í Freyju, félagi framsóknarkvenna í Kópavogi, Sólveig Runólfsdóttir. Þegar ég var að stíga mín fyrstu spor í félagsstarfinu í Freyju var ég svo heppin að þar var Sólveig Runólfs- dóttir, traustvekjandi og hvetjandi eins og góð móðir. Sólveig var alltaf tilbúin að ráðleggja – hlusta – hrósa – miðla af sinni miklu reynslu. Þetta gerði hún af mikilli einlægni, en staðráðin í að gera mig að betri félaga og að enn sannari framsóknarkonu en hún taldi mig vera. Þannig félagar leggja hornstein að starfsemi félags eins og Freyju. Aldrei fann ég að Sólveig væri að hugsa um eigin hagsmuni heldur fyrst og fremst félagsins og þau mark mið sem það stóð fyrir. Hún var sönn framsóknarkona, setti manneskjuna í öndvegi og vildi að allir gætu starf- að saman í sátt og samlyndi. Hún trúði að í sérhverri manneskju væri eitthvað gott og taldi það skyldu sam- ferðamannanna að hlúa að því. Hún hvatti einstaklinga til góðra verka, var vinamörg og kunni að rækta vinátt- una eins og blóm svo hún visnaði ekki og dæi. Sólveig var afar fríð, góðleg og gjöful kona. Hún var skarpgreind, víðlesin og hafði stálminni. Hún fylgdist vel með málefnum líðandi stundar og á þjóðfélagsmálum hafði hún ákveðnar skoðanir. Þessir eig- inleikar hennar urðu til þess að hún var valin til að gegna mörgum ábyrgðarstörf- um á vegum Freyju. Hún var ósérhlífin og gekk í þau störf sem gera þurfti af kappi. Hún vann ötullega fyrir kosningar á meðan heilsan leyfði. Framlag hennar til flokksstarfsins er ómetanlegt. Með þessum fátæklegu orðum viljum við félagar í Freyju þakka Sólveigu sam- starfið um margra ára skeið. Með djúpri virðingu og þökk er hún kvödd með ljóðlínum úr Hávamálum: Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. Eftirlifandi eiginmanni, fjölskyldu Sólveigar sem og öðrum syrgjendum vottum við samúð. Blessuð sé minning Sólveigar Runólfsdóttur. F.h. stjórnar Freyju, félags fram- sóknarkvenna í Kópavogi, Sigurbjörg Björgvinsdóttir.  Fleiri minningargreinar um Sólveigu Ágústu Runólfsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Hansína Björgvinsdóttir og Siv Friðleifs- dóttir; Íris Björk Árnadóttir; Katrín Embla og Birta María Huld Krist- jánsdætur. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 55 MINNINGAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.