Morgunblaðið - 16.12.2005, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.12.2005, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fjölmargir íslenskir sjó- menn létu lífið í seinni heimsstyrjöldinni. Þýskir kafbátar og tundur- dufl tóku sinn toll. Hér rekur Jón Þ. Þór þessa sársaukafullu sögu. • Uppgangstímar togaranna og hrikalegt hnignunarskeið þeirra, sem fór saman við mikla óreglu. • Vélbátaútgerðin allt í kring um landið, síldveiðarnar og hrun þeirra. • Fiskvinnsla og fiskverkun. • Hvalveiðar. • Landhelgismál og þorska- stríð. Allt er þetta, og miklu fleira, umfjöllunarefni Jóns Þ. Þór í þessu glæsilega grund- vallarriti um íslenska sjómenn og sjósókn. BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR RÁÐHERRAR frá aðildarríkjum Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA); Íslandi, Liechtenstein, Noregi og Sviss, undirrituðu í gær fríverslunarsamning við Lýð- veldið Kóreu (Suður-Kóreu). Þetta er fyrsti samning- urinn sem Kórea gerir við Evrópuríki um frjáls við- skipti, en árið 2004 námu viðskipti milli ríkjanna 2,7 milljörðum bandaríkjadala eða um 167 milljörðum ís- lenskra króna. Talið er að samningurinn færi íslenskum iðnaði mikinn ávinning. Tollar muni falla niður af mik- ilvægum útflutningsvörum, s.s. sjávarafurðum, vél- búnaði, plastkerjum og plastbökkum. Samkvæmt upp- lýsingum frá utanríkisráðuneytinu nam innflutningur frá Kóreu til Íslands samtals um 2,3 milljörðum króna árið 2004, þar af voru um 1,9 milljarðar króna vegna innflutnings á samgöngutækjum. Sama ár fluttu Ís- lendingar vörur út til Kóreu fyrir 358 milljónir króna, þar af sjávarafurðir og fiskmeti fyrir um 272 milljónir króna og rafeindavogir fyrir 36 milljónir. Samningurinn mun samkvæmt útreikningum Kóreu leiða til aukins árlegs útflutnings frá EFTA ríkjunum til Kóreu um 715 milljónir bandaríkjadala. Áætlað er að árlegur útflutningur á vörum frá Kóreu til EFTA ríkjanna muni aukast um 666 milljónir bandaríkja- dala. Innflutningur frá Suður- Kóreu fyrir 2,3 milljarða Geir H. Haarde skrifaði undir samninginn í Hong Kong. MARKAÐSRÁÐANDI fyrirtæki geta brotið sam- keppnislög með því að selja vörur undir kostnaðar- verði, en slíkt þarf að skoða í hverju einstöku máli, að sögn Páls Gunnars Pálssonar, forstjóra Sam- keppniseftirlitsins. Í umfjöllun Morgunblaðsins í gær um norrænu skýrsluna um matvöruverð sagði Sigurður Arnar Sigurðsson, forstjóri Kaupáss, að Baugur hafi stýrt matvörumarkaðinum að verulegu leyti þar til Kaupás hafi farið í herta samkeppni með Krónuna. Þessi markaðsráðandi aðili, Baugur, hafi brugðist þannig við samkeppninni að selja vörur í stórum stíl og skipulega undir kostnaðarverði. ,,Það hefur alla vega verið minni skilningur í þeim efnum að mark- aðsráðandi fyrirtæki væri bannað að selja vörur undir kostnaðarverði,“ sagði Sigurður. Spurður hvort þetta sé réttur skilningur hjá Sig- urði, segir Páll Gunnar: „Markaðsráðandi fyrirtæki geta brotið samkeppnislög með því að selja vörur undir kostnaðarverði. Hins vegar þarf að taka af- stöðu til þessa í hverju einstöku máli og staðreyna hvort um markaðsráðandi stöðu viðkomandi aðila sé að ræða og jafnframt hvort um ólögmæta und- irverðlagningu í skilningi samkeppnislaga sé að ræða. Slíkt er ávallt leitt í ljós í sérstöku máli.“ Fákeppnin er áhyggjuefni Landbúnaðarráðherra hélt því fram í Morgun- blaðinu í gær að landbúnaðarvörur sem framleidd- ar væru á Íslandi væru hlutfallslega ekkert dýrari en aðrar vörur en innfluttar vörur væru hlutfalls- lega dýrari en í nálægum löndum. Vísaði hann einn- ig til þess að hér réðu þrjár verslunarkeðjur 82% af markaðinum. Páll Gunnar segir að með kynningu Samkeppn- iseftirlitsins á könnun norrænu samkeppniseftirlit- anna séu settar fram upplýsingar um markaðinn. Í framhaldinu ætli Samkeppniseftirlitið að afla sjón- armiða um þessi mál. „Við fögnum öllum upplýstum skoðanaskiptum og ætlum síðan að forgangsraða og taka afstöðu til þess hvað brýnast er að gera. Það er alveg rétt að áhyggjuefni okkar varðar ekki einvörðungu vörur sem lúta innflutningshöml- um, heldur eru aðrar vörur einnig mjög dýrar í samanburði við önnur lönd. Það kemur raunar fram í umfjöllun Samkeppn- iseftirlitsins. Þess vegna beinir Samkeppniseftirlit- ið sjónum sínum bæði að samkeppnisháttum þeirra sem starfa á matvörumarkaðinum og líka að hlut- verki stjórnvalda. Á þessu stigi lýsum við eftir sjón- armiðum um þetta og ætlum að móta afstöðu okkar í framhaldi af því. Það er hins vegar mikilvægast að hver og einn verður að líta í sinn eigin rann, bæði stjórnvöld og ekki síður stórir aðilar á matvörumarkaði, enda kemur það skýrt fram í umfjöllun eftirlitsins að fá- keppnin er áhyggjuefni og að hátt vöruverð gefur vísbendingu um að kraftar samkeppninnar séu ekki að virka nægilega vel neytendum í hag,“ segir Páll Gunnar. Forstjóri Samkeppniseftirlitsins um stöðu markaðsráðandi fyrirtækja Getur verið lögbrot ef selt er undir kostnaðarverði Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Á LEIKSKÓLANUM Drafnarborg í miðbæ Reykjavíkur er ávallt gaman og þegar ljós- myndara Morgunblaðsins bar að garði voru börnin að leik í sandkössum, rólum og renni- brautum. Hins vegar héldu þessir ungu herra- menn sig til hlés, hvíldu lúin bein og ræddu líklega hvað föndra skyldi fyrir jólin þegar inn væri komið og nutu um leið útsýnisins af tré- verkinu. Morgunblaðið/Sverrir Málin rædd á tréverkinu SÆPLAST á Dalvík er með í at- hugun að flytja trollkúlufram- leiðslu fyrirtækisins til Danmerk- ur sökum óhagstæðrar gengisþróunar. Um 2–3 ársverk er að ræða en samtals eru um 43 árs- verk hjá fyrirtækinu. Daði Valdimarsson, fram- kvæmdastjóri Sæplasts á Dalvík, sagði að gengisþróunin að und- anförnu hefði gert útslagið í þess- um efnum. Þessi þróun hefði reynst fyritækinu þung í skauti að þessu leyti. Rúmlega helmingur trollkúluframleiðslunnar færi á er- lenda markaði, auk þess sem sam- keppnisstaðan gagnvart innflutn- ingi á trollkúlum væri mjög erfið. „Eins og tekjurnar hafa verið að þróast sjáum við ekki grundvöll fyrir framleiðslunni hér heima og erum þess vegna alvarlega að íhuga það að flytja hana út,“ sagði Daði. Hann sagði að ákvörðun þar að lútandi myndi væntanlega liggja fyrir fljótlega eftir áramótin, en nú væri verið að skoða hvernig best væri að framkvæma þetta. Meðalgengið á næsta ári svipað Aðspurður sagði hann ekki útlit fyrir að hætt yrði við flutninginn. Nú væri því spáð að meðalgengi næsta árs yrði mjög svipað því og það hefði verið í ár og miðað við þær forsendur væri ekki framtíð fyrir þessa framleiðslu hér. Daði bætti því við aðspurður að stefnan væri alls ekki sú að fara með fleiri framleiðsluþætti til út- landa. „Það sem eftir stendur hjá okkur núna er hverfissteypan þar sem við framleiðum kerin. Við höf- um verið að gera mjög góða hluti þar og ætlum að gera það áfram,“ sagði hann ennfremur. Trollkúlu- framleiðsla Sæplasts til Danmerkur HÆSTIRÉTTUR sýknaði í gær Indriða H. Þorláksson, ríkisskatt- stjóra, af kröfum dansks skattasér- fræðings sem krafðist þess að um- mæli sem Indriði viðhafði í frétt í Morgunblaðinu árið 2003 yrðu dæmd dauð og ómerk. Taldi Hæstiréttur að í ummælum Indriða fælist ekki refsi- verð ærumeiðing þegar ummælin væru metin í ljósi þess, sem fram kom í fréttinni í heild. Edwin George Shelton, sem bú- settur hefur verið í Danmörku í tæpa tvo áratugi, krafðist ómerkingar tveggja ummæla Indriða í fréttinni. Annars vegar þeirra að hann væri „þekktur danskur sérfræðingur í skattasniðgöngumálum“ en þar skír- skotaði Indriði til greinar þar sem hann sagði að beinlínis hafi verið gefnar leiðbeiningar og lagt á ráðin hvernig færa mætti fé skattfrjálst úr landi. Hins vegar krafðist Shelton ómerkingar þeirra ummæla skatt- stjórans þar sem hann segir „það fór nú kannski ekki svo vel fyrir þessum danska ráðgjafa eða ráðgjafafyrir- tæki því það lenti í hremmingum vegna starfsemi sinnar í Danmörku“. Taldi hann að með þessum ummæl- um væri skattstjóri að brigsla sér um að hann bryti gegn skattalögum í ráð- gjöf sinni. Hæstiréttur segir að þegar um- mæli Indriða séu metin verði að skýra þau út frá greininni í heild. Í upphafi viðtalsins hafi verið haft eftir honum að skattasniðgöngumálum hefði fjölg- að mjög í kjölfar aukins frelsis í fjár- magnsflutningum milli landa. Í mörg- um tilvikum sé verið að nýta sér mismunandi skattareglur á milli landa og ákvæði tvísköttunarsamn- inga. Sagði Indriði að starfsemin sem slík væri ekki ólögmæt í þeim skiln- ingi að einstakar athafnir brytu lög. Samkvæmt þessu og að öðru leyti með skírskotun til forsendna héraðs- dóms staðfestir Hæstiréttur dóminn. Mál þetta dæmdu hæstaréttar- dómararnir Markús Sigurbjörnsson, Guðrún Erlendsdóttir og Hrafn Bragason. Jakob R. Möller hrl. sótti málið fyrir hönd danska skattasér- fræðingsins og Magnús Thoroddsen hrl. var til varnar ríkisskattstjóra. Ríkisskattstjóri sýknaður BÍLVELTA varð við Skarð í Skötu- firði í Ísafjarðardjúpi snemma í gærmorgun. Eftir slysið tókst öku- manni bílsins að komast út úr bílf- lakinu og stöðva bíl sem ók honum áleiðis til móts við sjúkrabíl. Var hann síðan fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Hinn slasaði hlaut nokkuð alvar- lega áverka en slapp við lífs- hættuleg meiðsli að sögn læknis á slysadeild og fór því betur en á horfðist. Ekki var þörf á innlögn á gjörgæsludeild en sjúklingurinn var lagður inn á sjúkradeild til eft- irlits. Slasaðist í bílveltu ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.