Morgunblaðið - 16.12.2005, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 16.12.2005, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 61 DAGBÓK Meðlagsgreiðendur! Meðlagsgreiðendur, vinsamlega gerið skil hið fyrsta og forðist vexti og kostnað. INNHEIMTUSTOFNUN SVEITARFÉLAGA Lágmúla 9 - 108 Reykjavík - Kt. 530372 0229 - www.medlag.is Banki 0111-26-504700 - Sími 590 7100 - Fax 590 7101 Marimekko flytur um áramót úr IÐU húsinu að Laugarvegi 7. 30-40% afsláttur af öllum fatnaði til jóla. Vönduð jólagjöf á góðu verði. STÓRÚTSALA V/FLUTNINGA Opið til kl. 22 öll kvöld til jóla Tröllafell Barna- og unglingabókin í ár „Grípandi saga um spennandi tröll, hugaða krakka og skemmtilega illkvittna þrjóta.“ The Guardian www.stilbrot.com/trollafell Ásunnudaginn kemur kl. 17.00 verðatónleikar í Fríkirkjunni í Reykjavík tilbættrar aðstöðu fyrir geðsjúka áReykjalundi. „Margt ungt fólk sem kemur til meðferðar á Reykjalundi og á við kvíðaraskanir að stríða hef- ur litla von um eðlilegt líf í samfélaginu,“ segir Helga Hinriksdóttir, deildarstjóri geðsviðs Reykjalundar. „Flestir sem til okkar koma eiga að baki alvar- leg áföll í lífinu og leita hingað til endurhæfingar. Hjá okkur á geðsviði Reykjalundar er til staðar fagleg þekking og reynsla en vinnuaðstaðan tak- markar möguleika okkar á að sinna þessu mik- ilvæga verkefni sem skyldi. Draumar okkar snúast því um viðunandi að- stöðu fyrir okkar sjúklingahóp. Á hverju ári fáum við alltaf helmingi fleiri beiðnir en við getum sinnt,“ segir Helga. Hvað er hægt að gera fyrir þetta unga og kvíðna fólk? „Á næstunni mun hið opinbera taka ákvarð- anir um nýtingu mikils fjármagns til handa þess- um hópi og teljum við að erindi okkar um bætta starfsaðstöðu falli vel að fyrirætlunum stjórn- valda í þessum efnum. Sem dæmi um það sem hægt er að gera fáist fjármagn er aukin félagsþjálfun. Hún þarf að fara fram í litlum hópum en við getum ekki sinnt þessu við núverandi húsnæðiskost. Við þurfum að hafa opið rými þar sem hægt er að fylgjast með öllum sem taka þátt en það rými höfum við ekki nú. Við myndum vilja tengja þessa meðferð- arvinnu við iðjuþjálfun en það er ekki hægt. Iðju- þjálfunin býr við jafnþröngan kost og við ger- um.“ Hvers konar tónleikar eru þetta í Fríkirkjunni á sunnudag? „Þar koma fram tveir kórar, Kirkjukór Lága- fellssóknar, sem áður hefur haldið tónleika til styrktar börnum, og Fríkirkjukórinn í Hafn- arfirði. Einnig söngvararnir Páll Rósinkrans, Óskar Pétursson, Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Garðar Thor Cortes, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Hanna Björk Guðjónsdóttir, Ólafur Kjartan Sig- urðsson, Anna Sigríður Helgadóttir, Egill Ólafs- son og Bergþór Pálsson ásamt strengjasveit, blásarasveit og hrynsveit. Stjórnandi tónleikanna er Jónas Þórir. Efnisskráin er mjög fjölbreytt, bæði verða flutt jólalög og blandað efni. Allur ágóði rennur óskiptur til þess að styrkja geðsvið Reykjalund- ar. Fólk sem vill styrkja þetta verkefni er hvatt til að mæta í Fríkirkjuna. Miðinn kostar 1500 krónur fyrir fullorðna og 500 krónur fyrir börn.“ Tónlist | Tónleikar til styrktar geðsviði Reykjalundar Kórar og fjöldi einsöngvara  Helga Hinriksdóttir er deildarstjóri á geðsviði Reykjalundar. Hún lauk ljósmæðra- prófi árið 1972 og prófi frá Nýja hjúkrunarskól- anum 1974. Hún hefur og að baki nám frá end- urmenntun HÍ, í stjórn- un og rekstri í heil- brigðisþjónustu. Hún hefur lengst af starfað á Reykjalundi sem hjúkrunarfræðingur við endurhæfingu. Hún fæddist í Vestmanna- eyjum árið 1946 og á tvær uppkomnar dætur. Lokun bankaútibúa á Akureyri ÚTIBÚI Íslandsbanka í Hrísalundi hefur verið lokað og útibúi Lands- bankans í Kaupangi verður lokað í janúar næstkomandi. Ég var í viðskiptum við Íslands- banka í Hrísalundi, en hann var op- inn til kl. 18. Ég er búin að vinna kl. 17, en bankarnir í miðbænum eru lokaðir kl. 16. Fólk sem þarf í banka þarf því að fá frí í vinnu til að fara þangað. Þeir sem ekki geta fengið frí til að sinna banka- viðskiptum eru ekki í góðum mál- um. Mér finnst að bankarnir ættu að hafa opið á laugardögum. Magnús. Sakna ekki Kristjáns UNDANFARIÐ hefur fólk verið að skrifa í Velvakanda um að það sakni þess að heyra ekki Kristján Jóhannsson syngja í útvarpinu. Ég sakna hans ekki og vegna umtalaðs viðtals við hann í Kastljósi finnst mér að hann eigi að biðja Eyrúnu og alla landsmenn afsök- unar á framkomu sinni. Ef hann hefur ekki efni á að gefa vinnu sína eða peninga til styrktar bágstöddum eins og aðrir lands- menn veit ég ekki hver hefur efni á því. Ég vil biðja hann vel að lifa hvar sem hann er. Ég minni á að við eigum mikið af góðu söngfólki hér á landi og við eigum að leyfa honum að vera þar sem hann er. Ingveldur Birgisdóttir. Hver þrífur leikföng? ÉG á gamlan tuskubangsa sem er orðinn 30 ára gamall og þarf að láta þrífa hann. Ég treysti mér ekki til að þrífa hann sjálf eða láta í efna- laug þar sem hann er orðinn svona gamall. Ef einhver tekur svona að sér þá vinsamlega hafið samband í síma 482 2257 eða 897 2257. Gullhringur í óskilum GULLHRINGUR fannst við Blómaval í Skútuvogi. Upplýsingar ísíma 690 1270. Sony Ericsson sími týndist SONY Ericsson K759i GSM-sími týndist á Pizza Hut, Sprengisandi, sl. mánudag. Síminn er með pínulít- illi rispu á skjánum ofarlega í vinstra horni. Skilvís finnandi vin- samlega hafi samband við lögregl- una í síma 444-1104 eða 444-1103 eða hafi samband við eiganda á net- fangið gaui@gaui.is Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Morgunblaðið/Kristján Árnaðheilla dagbók@mbl.is 55 ÁRA afmæli. Í dag, 16. desem-ber, er 55 ára Pétur Fell Guð- laugsson, Stóragerði 10, Hvolsvelli. Brúðkaup | Gefin voru saman 16. júlí sl. í Hjallakirkju af sr. Írisi Kristjáns- dóttur þau Guðbjörg Einarsdóttir og Halldór Harðarson. Heimili þeirra er í Fagrahjalla 62, Kópavogi. Svipmyndir/Fríður Eggertsdóttir Brúðkaup | Gefin voru saman 6. ágúst sl. í Háteigskirkju af sr. Hjálmari Jónssyni þau Jónína Víglundsdóttir og Símon B. Hjaltalín. Heimili þeirra er í Klukkubrekku 35, Hafnarfirði. Svipmyndir/Fríður Eggertsdóttir 70 ÁRA afmæli. Í dag, 16. desem-ber, er sjötugur Ragnar Guð- mundsson, hafnarvörður og fyrrver- andi bóndi á Brjánslæk á Barða- strönd. Kona hans er Rósa Ívarsdóttir. Munu þau hjónin í tilefni dagsins taka á móti vinum og vandamönnum í fé- lagsheimilinu Birkimel á Barðaströnd í kvöld frá 20–24. Kunnuglegur tromplitur. Norður ♠Á95 ♥G742 ♦ÁKG ♣987 Suður ♠KG643 ♥ÁD3 ♦D5 ♣ÁKD Suður verður sagnhafi í sex spöðum og fær út tígultíu. Hvernig er best að spila? Þótt trompliturinn komi kunnuglega fyrir sjónir er besta íferðin ekki sjálf- gefin. Til að byrja með skiptir máli hvort vörnin megi fá slag á tromp eða ekki. Sé svo er tæknilega best að leggja niður spaðakóng og spila síðan litlu að Á9 með þá áætlun í huga að láta níuna ef vestur fylgir smátt. Ef vestur reynist hins vegar vera með einspil er farið upp með ásinn og spilað að gos- anum. Þannig má ráða við D10xx hvor- um megin sem er. En fyrst þarf sagnhafi að gera upp við sig hvort hann hafi ráð á slíkri ör- yggisspilamennsku. Það gerir hann með því að svína strax í hjartanu – sem sagt taka fyrsta slaginn í borði og spila hjarta á drottninguna. Ef hún heldur er nákvæmast að spila spaðakóng og spaða á níuna. En segjum nú að vestur eigi hjarta- kóng. Í því tilfelli má engan slag gefa á tromp, sem þýðir að austur þarf helst að eiga drottningu aðra eða þriðju. Nú, eða blanka. Sá möguleiki að austur sé með drottninguna staka gleymist gjarnan, en þá er hægt að hreinsa upp litinn með því að spila fyrst smáum spaða á undan Á9x og svína svo fyrir tíuna fjórðu í vestur. Reyndar er ekki alveg áhættulaust að spila upp á þennan möguleika, því snjall varnarspilari gæti látið sér detta í hug að fara upp með drottninguna frá D10 eða D10x! En það er bara sanngjart að falla fyrir slíkri brellu. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is Safn, Laugavegi Sýningar Guðrúnar Hrannar Ragnarsdóttur, Kristins E. Hrafns- sonar og Jóns Laxdal í Safni við Laugaveg 37 hafa verið framlengdar til 30. desember. Opið er frá kl. 14–18 mið.–fös. en frá kl. 14–17 lau. og sun. Lokað verð- ur í Safni 24.–27. desember og á gamlársdag. Í Safni er samtíma- myndlist til sýnis á þremur hæðum. Aðgangur er ókeypis. Leiðsögn er um safnið alla laug- ardaga kl. 14. Sýningar framlengdar www.safn.is AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.