Fréttablaðið - 19.10.2006, Síða 33

Fréttablaðið - 19.10.2006, Síða 33
 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. Hilda Cortez er núverandi ritstjóri Orðlaus. Hún segist lengi hafa haft áhuga á tísku en tekur þó fram að henni finnist ekki smart að vera í tískufatnaði frá toppi til táar. Hún á sér marg- ar uppáhaldsflíkur og er perlupeysan meðal þeirra. „Ég fékk þessa peysu á markaði í London fyrir sex til sjö árum síðan. Var á röltinu með manninum mínum og sá hana þarna innan um einhverjar aðrar peysur,“ segir Hilda sem var barnshafandi í þessari ferð. „Ég var komin sex eða sjö mánuði á leið þannig að það stóð alls ekki til að kaupa nein föt, svo ég skoðaði hana bara eitthvað og hélt svo áfram að rölta um. En ég gat ekki hætt að hugsa um peysuna svo við gengum til baka. Það reyndist frekar erfitt að finna hana aftur og það fór svona hálfur dagur í þetta, en svo fannst hún á endanum.“ Peysan er í ljósum, sígildum litum, með mohair á púffermunum og í hana eru saumaðar litlar perlur. Hilda seg- ist almennt ekki mikið vera fyrir púffermastílinn. „Ég er eig- inlega komin með hálfgerða leið á honum, en þessi peysa gengur samt alltaf. Enda eru þetta ekkert of miklar púfferm- ar. Það er bara svo gaman þegar maður dettur niður á eitthvað notað, sem er vel með farið og gengur við allt. Maður getur dressað sig bæði upp og niður með þessari peysu,“ segir Hilda og bætir því við að yfirleitt leggi hún sig ekki fram um að eltast við tískuna: „Frekar nýti ég það sem ég á fyrir og blanda því svo saman við það sem er móðins, en fyrst og fremst reyni ég að ganga í því sem mér sjálfri finnst flott og fer mér vel.“ margret.hugrun@frettabladid.is Eltist ekki við tískuna Fann kvenlega peysu í mjúkum litum á markaði í London. Hilda Cortez ætlaði sér ekki að kaupa nein föt þegar hún var ólétt á markaði í London, en peysuna góðu fékk hún ekki staðist. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Fátt er betra til að koma líkam- anum aftur í form eftir með- göngu en sambland af sundi, gönguferðum og Rope Yoga eða Pilates. Þessar æfingar snúast mikið um kvið og kviðvöðva, en á sama tíma styrkist bakið. Sund og gönguferðir sjá til þess að allir vöðvar líkamans fái sitt svo ekki sé minnst á hugarróna sem fylgir því að taka göngutúr. Oft var þörf en nú er nauðsyn. Er ekki kominn tími á að setja mottu við útidyrnar? Mottur fást nú á góðu verði í Rekstrarvörum og svo er úrvalið í Ikea alltaf ágætt líka. Skikkjur eru málið um þessar mundir, ekki bara fyrir aðdáendur Hringadrótt- inssögu heldur líka fyrir dömur. ALLT HITT [ TÍSKA HEIMILI HEILSA ] GÓÐAN DAG! Í dag er fimmtudagurinn 19. október, 292. dagur ársins 2006. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 8.29 13.13 17.55 Akureyri 8.20 12.57 17.34 Ný útisundlaug Heilsu- stofnunar NLFÍ LAUGARDAGINN 21. OKTÓBER VERÐUR NÝ 25 METRA ÚTISUND- LAUG, ÁSAMT SÉRHÖNNUÐUM NUDDPOTTUM, TEKIN Í NOTKUN Á HEILSUSTOFNUN NLFÍ Í HVERAGERÐI. Með þessari aðstöðu er sund- og baðaðstaða Heilsustofnunar NLFÍ ein sú stærsta og fullkomnasta sem fyrirfinnst hjá fyrirtæki í heilbrigðisgeiranum hér á landi, segir í fréttatilkynn- ingu frá fyrirtækinu. Á laugardaginn lýkur þar með fjögurra ára byggingarferli við baðhús stofnunarinnar. Haustið 2003 var innilaugin sem er sérhönnuð endurhæfingarlaug tekin í notkun ásamt aðstöðu fyrir leirmeðferðir. Þá var ný herbergjaálma tekin í notkun vorið 2004. Á síðastliðnum árum hafa því bæst um 2000 fermetrar við húsakynni HNLFÍ. Baðhúsi HNLFÍ tilheyra því nú 25 metra útilaug, 15 metra innilaug, þrír heitir pottar með nuddi, víxlböð, strekklaug, blaut- gufa og þurrgufa. Formleg dagskrá hefst klukkan 10 í matsal HNLFÍ. Húsakynni verða síðan opin almenningi fram til klukkan 13 og eru allir velkomnir. Hin nýja útilaug sem er lokapunktur á uppbyggingu baðhúss HNLFÍ. KULDABOLA GEFIÐ LANGT NEF Mikið úrval er til af húfum, vettlingum og treflum. TÍSKA 4 NÝ HEIMKYNNI NÓRU Franskt búðarborð fjölskyld- unnar í Bankastræti. HEIMILI 10
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.