Fréttablaðið - 19.10.2006, Side 88

Fréttablaðið - 19.10.2006, Side 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 ������������������������������ ������������������������������ �������������� ������� ���������� ���� ������������ �������������� � ��������� ���������� Stærri helmingur heimsbyggð-arinnar dregst sífellt aftur úr, vannærður með rifbeinin út í loft- ið, en minni helmingurinn, og þar á meðal við, verður að sama skapi feitari. Helsta afþreying okkar er að röfla um aðferðir til megrunar, þótt löngu sé vitað að það eina sem dugar er tvennt: Að éta minna og hreyfa sig meira. Það kemur þó ekki í veg fyrir að fjörutíu nýjar gagnslausar megrunaraðferðir komi á markað vikulega, maga- minnkunarmaskínur hafa ekki undan og það rýkur úr fitusug- unni. ÞAÐ sjá allir hvernig holdafarið hefur breyst. Í 40 ára upprifjunar- prógrammi RÚV á dögunum var sláandi hvað allir voru slank og fitt í gamla daga. Enda eru fitu- bollur fortíðar ekkert feitar á nútíma mælikvarða. Þetta sést ef ljósmyndir eru skoðaðar. Elvis ræfillinn átti að hafa verið afmyndaður vegna fitu – sprik- landi sveittur eins og soðin hangi- ketsrúlla í hvíta gallanum – en myndi teljast meðalmaður í dag. Þegar Meatloaf kom á markaðinn hafði annað eins fituhlass aldrei áður sést. Maðurinn var hreinlega ótrúlega feitur og krakkar hvísl- uðu um það í frímínútum að hann væri svo feitur að hann þyrfti að fara í súrefnistjald baksviðs á milli laga á tónleikum. Á tæplega 30 árum hefur hin ótrúlega fita Meatloafs breyst í að teljast vel ásættanleg – „þú mættir skreppa í ræktina,“ myndi fólk segja í dag, ekki „Guð minn almáttugur! Hvað ertu eiginlega!?“ eins og það öskr- aði upp yfir sig árið 1979. ÞAÐ er ekkert skrítið að við fitn- um. Matarskammtarnir stækka og stækka, t.d. súkkulaðistangir, bæði innlendar og innfluttar. Manni dugðu alveg „venjulegar“ stærðir, en í dag eru það smábitar við hlið- ina á nýju risastóru stöngunum. Gosskammtarnir stækka að sama skapi, barnastærðin í dag er miklu stærri en venjuleg stærð fortíðar, svo ekki sé talað um skyndibita- staðina sem eru alræmdir á þessu sviði. Og það sem verst er: Alltaf er miklu hagkvæmara, og oft bein- línis ódýrara, að kaupa meira og stærra en minna og heilsusam- legra. Að auki er sælgæti alstaðar stillt upp við kassana svo hinn vinnupíndi þræll komist nú örugg- lega ekki hjá því að grípa með sér smá fitunarfæði á leiðinni út. HVAÐ er í gangi eiginlega? Hver hefur hagsmuni af því að fita okkur endalaust? Ég spyr af því þetta eru augljóslega samantekin ráð. Eru frímúrarar á bakvið þetta eða Sameinuðu þjóðirnar? Er hugsunin sú að betra sér að láta okkur þrælana hlýða ef við getum ekki hreyft okkur fyrir spiki? Eða erum við kannski bara Hans og Gréta á leiðinni í sláturhús mann- æta utan úr geimnum? Hver vill fita okkur? 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI ...Í SPARNAÐI – til að mæta óvæntum fjárútlátum, t.d. ef bíllinn bilar eða húsnæðið þarfnast viðgerðar. Og já, líka ef börnin þurfa tannréttingar. VARASPARNAÐUR – til að safna fyrir öllu því sem hugurinn girnist, t.d. húsgögnum, heimilistækjum og utanlandsferðum. Eða bara fyrir því sem þú vilt! NEYSLUSPARNAÐUR – til að byggja upp fjárhagslega velgengni í framtíðinni, t.d. kaupa betra húsnæði eða sumarhús, fara í heimsreisu eða eiga fyrir menntun barnanna. LANGTÍMASPARNAÐUR Ný aðferð til að ná betri árangri í sparnaði. Farðu á www.glitnir.is eða í næsta útibú Glitnis og kláraðu málið! Þrískiptur sparnaður Glitnis H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA FJÁRHAGSLEG VELGENGNI ÞÍN ER OKKAR VERKEFNI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.