Fréttablaðið - 17.02.2008, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 500017. febrúar 2008 — 47. tölublað — 8. árgangur
ALLA SUNNUDAGA
SÍÐUR
20
FANGELSISMÁL „Sannleikurinn er sá að við höfum
verið pínulítið eftir á þegar kemur að afplánun
kvenna. Við viljum þó auðvitað að jafnrétti kynj-
anna ríki í fangelsismálum eins og annars staðar,“
segir Erlendur S. Baldursson, afbrotafræðingur hjá
Fangelsismálastofnun, en á föstudag voru fyrstu
tveir kvenfangarnir fluttir í fangelsið á Kvía-
bryggju til afplánunar.
Erlendur segir að í Kópavogsfangelsi, þar sem
konur afplána fangelsisdóma, séu ekki sömu
möguleikar fyrir hendi og til dæmis á Litla-Hrauni
og Kvíabryggju til tómstunda, útivistar eða vinnu.
Við enduruppbyggingu Kvíabryggju hafi verið litið
til þess að þar mætti í framtíðinni vista bæði kynin
og því var útbúið sérhúsnæði fyrir konur sem nú
hefur verið tekið í notkun.
„Þær taka svo bara þátt í því sama og karlarnir gera
rétt eins og á að gerast alls staðar í samfélaginu,“
segir Erlendur en útskýrir að föngum sé gert að fara
eftir sérstökum reglum um samskipti kynjanna í
fangelsinu. Hann segir þær konur sem treyst er til
afplánunar á Kvíabryggju valdar þangað inn rétt eins
og gerist með karlfangana.
Þessar breytingar eru liður í miklu uppbyggingar-
starfi sem hafið er og liggur fyrir hjá fangelsismála-
yfirvöldum. - kdk/-mh/ sjá síðu 8
Kvenfangar hafa ekki sömu tækifæri og karlfangar en úrbætur á því eru hafnar:
Tveir kvenfangar fluttir á Kvíabryggju
FYRIRMYNDARFANGELSI Fangelsið á Kvíabryggju hefur þótt til
fyrirmyndar en þar hafa konur ekki getað afplánað fyrr en nú.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÓLK „Ég er mjög sáttur við
breytinguna og enn sem komið
er er enginn annar sem heitir
Gneisti á landinu, sem veldur
því að maður týnist ekki svo
auðveldlega í fjöldanum,“
segir Óli Gneisti Sóleyjar-
son, sem lét árið 2002 fella
niður nafn, bæta við öðru og
kenna sig við móður sína.
Hann er einn þeirra fjöl-
mörgu Íslendinga sem hafa
breytt eiginnafni sínu.
Á árunum 1997 til 2005
breytti 901 Íslendingur um eigin-
nafn. 456 þeirra tóku upp nýtt eigin-
nafn samhliða öðru, en 227 tóku
upp nafn og felldu annað niður. 174
breyttu nafni við ættleiðingu.
Um hundrað manns skipta um
nafn á hverju ári. Ef ætlunin er að
bæta inn nýju nafni þarf að greiða
Þjóðskrá 4.400 krónur fyrir
ómakið. Gjaldfrjálst er að fella
niður nafn, kenna sig við móður,
taka upp ættarnafn úr fjölskyld-
unni eða taka upp íslenskt nafn
samhliða ríkisborgararétti.
„Það var minnisstætt augna-
blik þegar ég settist niður með
mömmu og pabba og skýrði þeim
frá ákvörðun minni,“ segir Hall-
dór Tinni Sveinsson, sem felldi
niður millinafn sitt Vésteinn og
tók upp gælunafn frá barnæsku,
Tinni, í staðinn. „Vésteins-nafnið
er nefnilega hugmynd mömmu
og hún var svona svolítið hvumsa
þar til hún áttaði sig á þeim sann-
leik að nöfn er ekki hægt að taka
af manni.“
- jma / sgj / sjá síðu 16
Yfir hundrað skipta
um nafn á hverju ári
901 Íslendingur skipti um eiginnafn á árunum 1997 til 2005. Þjóðskrá rukkar
4.400 krónur fyrir nýtt eiginnafn, en sumir kjósa að fella niður nafn eða breyta
kenninafni, sem er gjaldfrjálst. Ekki má breyta eiginnafni tvisvar á ævinni.
„HVAR VAR KJARTAN GUNNARSSON?“
Oddný Sturludóttir og Egill
Helgason setjast á rökstóla
SUNNUDAGUR
14-15
FÓLK Íslenskir karlar leita í
auknum mæli á náðir lýtalækna.
Vinsælast er að láta laga svæðið í
kringum augu og nef. Auk þess er
síðuspik illa séð hjá mörgum
körlum.
Að sögn lýtalækna hérlendis er
ekki um neina sprengingu að
ræða en þeir kveðast finna fyrir
auknum áhuga karla á fegrunar-
aðgerðum.
Ekki liggja fyrir nákvæmar
tölur um fjölda slíkra aðgerða en
varlega áætlað má reikna með að
þær séu í kringum hundrað á ári.
- fgg / sjá síðu 30
Æ fleiri fara í lýtaaðgerð:
Körlum er illa
við síðuspikið
ÁFRAM VÆTUSAMT Í dag verður
yfirleitt fremur hæg suðvestlæg átt.
Rigning sunnan og vestan til annars
úrkomulítið. Hiti 5-10 stig.
VEÐUR 4
7 7
7
78
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MENNINGU OG LISTIR ]
menning
febrúar 2008 VATNSMÝRIN102 Reykjavík
Áfangi 3 Helstu landslagshlutum komið fyrir: ný tjörn grafin
upp og á svæðinu milli litla og stóra Skerjafjarðar þar sem
lendingabrautin er nú rís hverfi lágvaxinna einbýlishúsa.
Háskólinn í Reykjavík er risinn og nýja sjúkrahúsið efst á
myndinni og þar fyrir neðan viðskiptahverfi og samgöngu-
miðstöð, allt merkt gulu.
Áfangi 2 Í þessum áfanga hefst jarðvegsundirbún-
ingur og hér má sjá stöðu flugvallarins og bygginga
umhverfis hann merkt með gulu.
Áfangi 1 Verðlaunatillagan gerir ráð fyrir að nyrsta svæðið
merkt gulu umhverfis Háskóla Íslands verði fyrst byggt
upp, bæði umhverfis Aðalbygginguna og vestan og sunnan
við Norræna húsið og hús Íslenskrar erfðagreiningar sem
hér eru merkt svörtu.
Ð
L
EY
FI
S
KI
PU
LA
G
S-
O
G
B
YG
G
IN
G
A
RS
VI
Ð
S
RE
YK
JA
VÍ
KU
R
FYLGIR Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
DANMÖRK, AP Kveikt var í barna-
heimili í úthverfi Árósa í gær-
kvöldi. Þá loguðu eldar víðs vegar
um Danmörku á föstudagskvöld
og aðfaranótt laugardags. Meðal
annars hefur verið kveikt í
ruslagámum, bílum og skólum í
óeirðum síðustu daga.
Alls hafa 43 verið handteknir í
óeirðunum, að mestu leyti
innflytjendur. Óeirðirnar eru að
einhverju leyti raktar til endur-
birtinga fjölmargra danskra
dagblaða á teikningum af
Múhameð spámanni. Þá er einnig
talið að almenn óánægja innflytj-
enda með stöðu sína hafi sitt að
segja. - þeb
Óeirðir í Danmörku:
Lögðu eld að
barnaheimili
ALGERIR
YFIRBURÐIR
Wayne Rooney og
félagar í Manchest-
er United kjöldrógu
lið Arsenal í ensku
bikarkeppninni í
gær.
HÁSKÓLADAGURINN Kynningardagur var í íslenskum háskólum í gær. Háskóli Íslands og Kennaraháskólinn kynntu starfsemi sína
í hinu nýja Háskólatorgi og var múgur og margmenni á staðnum. Birna Daníelsdóttir líffræðinemi var meðal þeirra sem kynntu
nám sitt fyrir gestum og gangandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BARIST VIÐ ELD Ólga er meðal innflytj-
enda í Danmörku. Kveikt hefur verið í
bílum, skólum og ruslatunnum víða.
ÍÞRÓTTIR 26