Fréttablaðið - 17.02.2008, Side 6
6 17. febrúar 2008 SUNNUDAGUR
NÝJAR H4 og H7
bílaperur frá
X-treme Power
allt að 80% meira ljós
NR. NS880SB
20% afsláttur í febrúar
M
er
ki
S
he
ll
er
u
no
tu
ð
af
S
ke
lju
ng
i m
eð
le
yfi
S
he
ll
Br
an
ds
In
te
rn
at
io
na
l A
G
.
Eldri borgarar 60+
Byrjendur
30 kennslustunda byrjenda-
námskei›. Engin undirsta›a
nau›synleg, hæg yfirfer› me›
reglulegum endurtekningum í
umsjá flolinmó›ra kennara.
A›almarkmi› námskei›sins er
a› gera flátttakendur færa a›
nota tölvuna sjálfstætt, m.a. til
a› skrifa texta og prenta, nota
Interneti› sér til gagns og
gamans, taka á móti og senda
tölvupóst.
Kennsla hefst 21. febrúar.
Kennt er þriðjudaga og fimmtudaga kl. 13-16.
Ver› kr. 20.500,- Vegleg kennslubók innifalin.
Framhald I
30 kennslustundir. Hentar fleim sem loki› hafa byrjendanámskei›inu
e›a hafa sambærilega undirstö›u.
Byrja› er á upprifjun á›ur en haldi› er lengra í ritvinnslu í Word.
Framhaldsæfingar á Internetinu og í allri me›fer› tölvupósts.
Kennsla hefst 20. febrúar.
Kennt er mánudaga og miðvikudaga kl. 13-16.
Ver› kr. 20.500,- Vegleg kennslubók innifalin.
FAXAFEN 10
108 REYKJAVÍK
GLERÁRGATA 36
600 AKUREYRI
WWW.TSK.IS
SKOLI@TSK.IS
SÍMI: 544 2210
FJÖLMIÐLAR Fréttablaðið hlaut tvær tilnefningar til
Blaðamannaverðlauna Blaðamannafélags Íslands,
sem voru gerðar kunnar í gær.
Óli Kristján Ármannsson á Fréttablaðinu,
Kristján Már Unnarsson á Stöð 2 og Pétur Blöndal
á Morgunblaðinu eru tilnefndir til Blaðamanna-
verðlauna ársins 2007; Óli Kristján fyrir aðgengi-
leg og upplýsandi skrif um efnahagsmál og
viðskipti, Kristján Már fyrir upplýsandi fréttir úr
hversdagslífi á landsbyggðinni og Pétur fyrir
umfjöllun um REI-málið.
Fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins eru
tilnefnd Svavar Hávarðsson, Fréttablaðinu, fyrir
víðtæk skrif um sjóöryggi á siglingaleiðum,
ritstjórn DV fyrir umfjöllun um Breiðavík og
önnur vistheimili, og Þóra Tómasdóttir og Sigmar
Guðmundsson, Sjónvarpinu, fyrir umfjöllun um
drengi sem voru vistaðir í Breiðavík.
Í flokki bestu umfjallana ársins eru Jóhannes Kr.
Kristjánsson og Kristinn Hrafnsson, Stöð 2,
tilnefndir fyrir umfjöllun Kompáss um byssur á
svörtum markaði á Íslandi, ástandið í Írak og
heilablóðföll. Baldur Arnarson, Morgunblaðinu, er
tilnefndur fyrir umfjöllun um svifryksmengun, og
Kristín Sigurðardóttir, Fréttastofu Útvarps, er
tilnefnd fyrir röð frétta um gjaldtöku vegna fit-
kostnaðar.
Verðlaunin verða veitt næsta laugardag. - þeb
Tilnefningar til Blaðamannaverðlauna tilkynntar í gær:
Fréttablaðið með tvær tilnefningar
VERÐLAUNAHAFARNIR Í FYRRA Auðunn Arnórsson, blaða-
maður á Fréttablaðinu, Árni Torfason ljósmyndari, Lára Ómars-
dóttir og Ingi R. Ingason, Kompási, og Davíð Logi Sigurðsson,
Morgunblaðinu, hlutu verðlaun á síðasta ári.
Líst þér vel á vinningstillöguna
um byggð í Vatnsmýrinni?
Já 48,3%
Nei 51,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Óttastu handrukkara?
Segðu þína skoðun á visir.is
SPILAMÓT Sindri Lúðvíksson póker-
mótshaldari gerir athugasemdir
við að Bridgehátíð Icelandair
Open 2008 sé ekki stöðvuð. Hann
staðhæfir að sama fyrirkomulag
sé á hátíðinni og pókermóti sem
hann hélt. Pókermótið var stöðvað
af lögreglu. Samkvæmt upplýs-
ingum Fréttablaðsins er sama fyr-
irkomulag á vinningum á Bridge-
hátíð og á pókermótinu.
Keppendur á Bridgehátíðinni
greiða keppnisgjald en hluti þess
rennur svo í vinningssjóð fyrir
vinningshafa. Að sögn Ólafar Þor-
steinsdóttur, framkvæmdastjóra
Bridgesambands Íslands, er vinn-
ingsfjárins þó einnig aflað með
öðrum leiðum.
„Þetta er alveg sama fyrirkomu-
lag og við höfðum á pókermótinu,“
segir Sindri.
„Þar greiddu
menn keppnis-
gjald sem síðan
fór allt í vinn-
ingssjóð þannig
að einu fjár-
munirnir sem
menn gátu í
raun og veru
tapað voru sú
upphæð sem
þeir greiddu
fyrir mótsgjaldið. Það var ekki
hægt að leggja neitt aukalega
undir eins og mér heyrist sumir
vera að halda fram sem hafa tjáð
sig um þetta. Þetta er sama fyrir-
komulag og haft er á golfmótum
og bridgemótum nema hvað ég tók
ekkert fyrir þetta.“
Hann telur að hér sé um mikla
mismunun að ræða sem fyrst og
fremst stafi af vanþekkingu yfir-
valdsins á eðli pókermóta. „Það er
kannski ekki hægt að ætlast til
þess að þeir þekki þetta vel en mér
heyrist á þeim viðtölum sem ég
hef heyrt af embættismönnum
sem hafa tjáð sig um málið að þeir
haldi að verið sé að leggja undir
peninga í hverju spili en svo er
alls ekki. Reyndar tel ég að við
séum svolítið að gjalda fyrir
nafnið á þessu, hefði ég kallað
þetta mót í ólsen ólsen hefðu við-
brögðin sennilega orðið allt öðru-
vísi.“
Karl Ingi Vilbergsson aðstoðar-
saksóknari vildi ekki tjá sig um
málið en taldi afar ólíklegt að ein-
hver afskipti yrðu höfð af Bridge-
hátíðinni. Ekki náðist í Friðrik
Smára Björgvinsson, yfirlögreglu-
þjónn hjá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu.
Ólöf segir að mikil hefð sé fyrir
bridgehátíðinni enda hafi hún
verið haldin í 28 ár. „Ég held að
það sé nú hluti af málinu, það er
mikil hefð á bak við bridgemót og
margir þjóðþekktir menn búnir að
taka þátt í þeim. Það er hugsanlegt
að það haldi aftur af yfirvöldum.“
Keppnisgjald á Bridgehátíðinni
er frá 15 til 40 þúsund krónur á
parið og vinningar eru á bilinu frá
rúmum 20 þúsund til 201 þúsund
króna. jse@frettabladid.is
Segir bridgehátíð
svipa til pókermóts
Pókermótshaldari telur það mikla mismunun að ekkert sé aðhafst í málum
Bridgehátíðar sem er með sama fyrirkomulagi og pókermót sem hann hélt en
það var stöðvað af lögreglu. Aðstoðarsaksóknari vill engu svara.
BRIDGEHÁTÍÐ 2008 Sindri Lúðvíksson segir að sama fyrirkomulag sé á Bridgehátíð-
inni og pókermóti sem hann hélt í sumar. Þó hefur hátíðin farið fram án afskipta
yfirvalds en pókermótið var hins vegar stöðvað. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
STJÓRNMÁL Alvarleg umræða um
Evrópusambandsaðild getur ekki
farið fram fyrr en búið er að ná
tökum á efnahagslífinu. Þetta er
mat Bjarna Benediktssonar, þing-
manns Sjálfstæðisflokks og for-
maður utanríkismálanefndar.
„Verkefni dagsins í dag er að ná
tökum á efnahagslífinu, lækka
vexti en á sama tíma halda verð-
bólgunni í skefjum. Þegar við
höfum náð tökum á þessu og
stöndum styrkum fótum getum
við velt fyrir okkur framtíðar-
samskiptunum við Evrópusam-
bandið,“ segir hann. „Sjálfstæðis-
menn hafa aldrei útilokað neitt í
þeim málum, þetta er stöðugt
hagsmunamat sem þarf að halda
áfram.“
Hann segir að í millitíðinni eigi
tvímælalaust að halda áfram
vinnu við að endurskoða stjórnar-
skrána, meðal annars með hlið-
sjón af umsókn um aðild í Evr-
ópusambandið. „Það er fjölmargt
sem við getum gert nú þegar til
að halda þessum málum í deigl-
unni en það liggur fyrir að það
verður ekki sett fram nein aðildar-
umsókn á þessu kjörtímabili.“
Bjarni segist einnig telja að
tími sé kominn til að menn slái
hugmyndir um einhliða upptöku
evrunnar út af borðinu. „Það
þýðir að við ræðum ekkert um
evruna án þess að henni fylgi
aðild að evrópusambandinu.“ - sþs
Bjarni Benediktsson, þingmaður og formaður utanríkismálanefndar:
Tiltekt fyrst, svo ESB-umræða
Á ÞINGI Bjarni Benediktsson segir að
nota eigi kjörtímabilið í að halda áfram
vinnu við endurskoðun stjórnarskrár-
innar, meðal annars með hliðsjón af
umsókn um aðild að Evrópusamband-
inu.
SINDRI
LÚÐVÍKSSON
Það er mikil hefð á bak
við bridgemót og margir
þjóðþekktir menn búnir að taka
þátt í þeim. Það er hugsanlegt að
það haldi aftur af yfirvöldum.
ÓLÖF ÞORSTEINSDÓTTIR
FRAMKVÆMDASTJÓRI
BRIDGESAMBANDSINS
LÖGREGLUMÁL Kona í Reykjanes-
bæ kom upp um eigið heima-
brugg í gær. Hún óskaði eftir
aðstoð lögreglu þegar hún taldi
einhvern hafa reynt að brjótast
inn hjá sér, en gleymdi að fela
bruggtæki og heimagert áfengi
áður en lögregluþjónarnir komu
í heimsókn.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Suðurnesjum
fundust engin ummerki um
innbrot í íbúð konunnar, en
bruggtækin voru gerð upptæk
ásamt áfenginu. Konan á von á
kæru fyrir að brugga ólöglega á
heimili sínu.
- sþs
Kona kom upp um sjálfa sig:
Gleymdi að fela
heimabruggið
KJÖRKASSINN