Fréttablaðið - 17.02.2008, Blaðsíða 31
ATVINNA
SUNNUDAGUR 17. febrúar 2008 157
Launafulltrúi
Sjóvá leitar að launafulltrúa í 50% starf til að ganga til liðs við
öflugan hóp starfsmanna.
Við leitum að talnaglöggum, nákvæmum og skipulögðum einstaklingi sem getur
starfað sjálfstætt og sýnt frumkvæði í starfi. Í boði er sveigjanlegur vinnutími.
Starfssvið: Ábyrgð á launaútreikningum og greiðsla á launum og launatengdum
gjöldum. Afstemmingar launaliða, upplýsingagjöf til starfsfólks og önnur verkefni.
Hæfniskröfur: Góð reynsla af launaútreikningum ásamt góðri tölvufærni er skilyrði.
Reynsla af bókhaldi og SAP launakerfinu er kostur.
Nánari upplýsingar veitir Ágústa Bjarnadóttir, mannauðsstjóri í síma 440 2323.
Umsóknir ásamt ferilskrá skulu sendar á starfsumsokn@sjova.is merktar
„Launafulltrúi“ fyrir 24. febrúar.
Sjóvá er leiðandi félag sem leggur metnað sinn í að
tryggja verðmætin í lífi fólks. Boðið er upp á gott
starfsumhverfi fyrir hæft starfsfólk, ásamt tækifæri
fyrir hvern og einn að eflast og þróast í starfi.
Nánari upplýsingar veita Atli Atlason, framkvæmdastjóri starfsmannasviðs, í síma 410 7904
og Bergþóra Sigurðardóttir, forstöðumaður á starfsmannasviði, í síma 410 7907.
Umsóknir sendist á starfsumsokn@landsbanki.is fyrir 26. febrúar nk.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
B
I
41
17
1
02
/0
8
Útibússtjóri Landsbankans
á Húsavík
Starf útibússtjóra við Landsbankann á Húsavík er laust til umsóknar
Við óskum eftir kraftmiklum og árangursdrifnum einstaklingi til að stýra útibúi bankans á Húsavík. Verksvið
útibússtjóra er að hafa yfirumsjón með rekstrinum, m.a. hvað varðar arðsemi og áhættustjórnun auk þess að stýra
markaðssókn útibúsins. Stefnt er að framúrskarandi árangri hvað snertir þjónustu við viðskiptamenn, framlegð
starfsmanna, starfsþróun og starfsánægju.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Frumkvæði og skipulagshæfileikar
• Stjórnunarreynsla og/eða fjölbreytt starfsreynsla
• Góð þekking á atvinnurekstri og efnahagslífi
• Framúrskarandi samkiptahæfileikar, víðsýni og þægilegt viðmót
• Háskólamenntun á sviði viðskipta og/eða haldgóð reynsla af bankastörfum
Landsbankinn er eitt stærsta fjármála-
fyrirtæki landsins og veitir alhliða
fjármálaþjónustu til einstaklinga,
fyrirtækja og stofnana. Í anda sóknar
og útrásar hefur bankinn byggt upp
starfsstöðvar í 17 löndum víðs vegar
um heiminn.
Til að stuðla að vexti og arðsemi bankans
er áhersla lögð á skemmtilegan vinnustað,
starfsánægju og gott starfsumhverfi, sem
og markvissa starfsþróun og þekkingu
starfsfólks.
Landsbankinn leitast við að ráða til sín og
hafa í sínum röðum framúrskarandi
starfsfólk og efla það í störfum sínum.
Það er viðhorf stjórnenda Landsbankans
að starfsfólkið, metnaður þess, kraftur og
hollusta, séu lykillinn að farsælum rekstri
bankans.
www.radning.is
Ertu að leita?
Laugavegi 170 • 105 Reykjavík • Sími 588 7700