Tíminn - 17.02.1989, Qupperneq 11
10 Tíminn Föstudagur 17. febrúar 1989 Föstudagur 17. febrúar 1989 Tíminn 11
iilllllllllli ÍPRÓTTIR :l'lii.i iliiiii:::/ ''□iúFí:!:r:ÁÍ;i:ú:’;,:i :i': Ú Ú' j*&mi * ■ ■ i::!'/ -'i ú .íþróttir t. ';:: ,..iíi!liiíi|i|liiiii:i!i:;!l Fllllllillllllllllllillllllllllllllllillillll^
Körfuknattleikur:
Sigur Tindastóls
ekki nógu stór
Tindastóll vann KR í síðari leik
liðanna í 8-liða úrslitum bikarkeppn-
innar'í körfuknattleik með 91 stigi
gegn 81. Þessi sigur dugir þeim
Körfuknattleikur:
Óruggur sigur
Valsmanna
Valsmenn unnu öruggan sig-
ur á Stúdentum 78-62 í Flug-
leiðadeildinni í körfuknattleik
í Kennaraháskólanum í
gærkvöld. Valsmenn náðu
samt aldrei að hrista Stúdent-
ana af sér og í hálfleik var
staðan 32-44 fyrir Val.
BL
Sauðkrækingum skammt því KR
vann fyrri leikinn með 13 stiga mun
og leikur gegn Njarðvíkingum í
undanúrslitum keppninnar.
KR-ingar hófu leikinn vel og
gerðu 3 fyrstu körfurnar. Heima-
menn jöfnuðu og tóku forystuna og
henni héldu þeir alveg þangað til um
5 mín. voru eftir að KR komst yfir
73-75. f hálfleik var staðan 43-36
heimamönnum í vil. í lokamínútun-
um léku heimamenn mun betur og
náðu að sigra með 10 stigum 91-81.
Aðeins 4 stig vantaði því uppá að
Tindastóll slægi KR úr bikarkeppn-
inni, einsog gerðist í knattspyrnunni
s.l. sumar, sem frægt varð.
Valur Ingimundarson var drýgstur
heimamanna og gerði 33 stig. Eyjólf-
ur Sverrisson kom næstur með 20
stig. Jóhannes Kristbjörnsson skor-
aði mest fyrir KR, 25 stig, Guðni
Guðnason gerði 15 og Birgir Mika-
elsson 14. KR-ingar hafa nú tapað
tveimur leikjum í röð og verða að
fara að taka sig á ef þeir ætla að sýna
að þeir eigi erindi í úrslitakeppnina
í Flugleiðadeildinni. BL
New York. í fyrrakvöld voru
nokkrir leikir í NBA-deildinni í
körfuknattleik. Cleveland Cavaliers
vann öruggan sigur á New York
Knicks 129-107. Cleveland liðið
stendurenn best að vígi ídeildinni.
Önnur úrslit í fyrrakvöld urðu þessi:
Atlanta Hawks-N.J.Nets.........119-112
Philadelphia-lndiana Pacers....113-98
Denver Nuggets-Washington B. .. 117-106
Phoenix Suns-Seattle Supers .... 135-112
Golden State-San Antonio Spurs . 133- 96
1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2
Get-raunir!!!
Úrslit í síöust lcikviku getr-
auna voru nokkuö óvænt. Jafn-
tefli varð í 5 leikjum, en jafn-
tefli Nottingham Forest og
QPR hefur eflaust sitt strik í
reikninginn hjá flestum.
Úrslitin komu þó einunt
tippara ekki vitund á óvart.
ROZ-tipparinn hirti þrefalda
pottinn og var að auki með 10
raðir með 11 rétta. Hann fékk
þvf alls 4.527.838 kr. í sinn
hlut. Ekki dónalegur vinningur
þar á ferðinni. Röð með 11
rétta gaf af sér 28.086 kr. og
alls komu fram 33 slíkar raðir.
Úrslitin í 6. leikviku endur-
speglast í útkomunni í fjöl-
miðlaspánni. Bylgjan hefði
vinninginn að þessu sinni, hafði
7 leiki rétta. MBL kom næst
með 6 rétta, DV hafði 5 rétta,
Stöð 2 hafði 4 rétta, Tíminn,
RÚV, Þjóðviljinn og Dagur
höfðu aðeins 3 rétta og Stjarn-
an rak lestina með 2 leiki rétta.
Staðan í fjölmiðlaleiknum er
nú þessi:
MBL 30, Bylgjan 28, DV 27,
Dagur og Þjóðviljinn 21, Stöð
2 og Stjarnan 20 og Tíminn og
RÚV með 18 stig.
Framundan er sprengivika í
íslenskum getraunum. Vegna
mikillar sölu á getraunaseðlum
að undanförnu eru nú allmiklir
peningar í sprengipottinum.
Búast má við því að potturinn
á laugardag verði ekki undir 3
milljónum.
Sjónvarpsleikurinn að þessu
sinni er leikur Bournemouth
og Manchester United í 8-liða
úrslitum bikarkeppninnar.
Bournemouth er úr 2. deild og
er þar í miðjum hóp. United
liðið er hins vegar í 3. sæti í 1.
deild og í mikilli sókn. Sigur
United er þó engan veginn
tryggur og nægir þar að minna
á að fyrir 2 árum sló Bourne-
mouth Manchester United út
úr bikarkeppninni. Rauða
ljónið, Bjarni Fel. verður á
Dean Court Ground heima-
vellí Bournemouth og lýsir
leiknum í beinni útsendingu.
En drífum okkur í skotbyrg-
in og hugum að sprengiviku-
leikjunum. Fyrstu 5 leikirnir
eru úr bikarkeppninni, en hinir
úr 1. deild og 2. deild.
Barnsley-Everton: 2
Everton ætti að hafa sigurgegn
Barsley, en allt getur gerst í
bikarkeppni eins og oft hefur
sannast. Samt spái ég útisigri.
Blackburn-Brentford: 1
Heimasigur ætti að vera örugg-
ur þegar heimamenn, sem eru
1 toppbaráttu 2. deildar mæta
3. deildarliðinu. Engin óvænt
úrslit og heimasigur.
Boumemouth-Man. United: 2
Vinni Manchester United ekki
sigur í þessum leik mun undir-
ritaður biðjast formlega afs-
ökunar í næsta get-raunapistli.
Þá er bara að setja sig í stelling-
ar fyrir framan kassann á
morgun.
Charlton-West Ham: X
Bæði liðin eru í fallhættu í 1.
deildinni, en í þessum bikarleik
verður ekkert gefið eftir. Jafn-
tefli verður niðurstaðan.
Hull-Liverpool: 2
Eins og um leik Manchester
United og Bournemouth þá
gildir það hér að Liverpool á
að vinna örggan sigur. Hér er
hins vegar um bikarkeppni að
ræða og því getur allt gerst.
Samt útisigur, Liverpool
vinnur.
Luton-Middlesbrough: 1
Þá erum við komin í leikina
1. deildinni og í þessum leik
spái ég því að Luton vinna
sigur á gervigrasvellinum Ken-
ilworth Road.
QPR-Arsenal: 2
Arsenal er í efsta sæti 1. deildar
og ekki líklegt til þess að tapa
fyrir QPR sem á í botnbaráttu.
Sheff.Wed.-Southampton: X
Nú fara hjólin að snúast hjá
Wednesday liðinu því Ron
Atkinson hefur tekið við fram-
kvæmdastjórastöðunni. Hjólin
fara þó hægt af stað og liðið
gerir jafntefli við Dýrðlingana.
Bradford-WBA: 2
Ekki ósennilegt að Albion
vinna þennan leik þótt á útivelli
sé. Bradford er neðarlega í 2.
deildinni.
Leicester-Leeds: X
Jafntefli á Filbert Street heima-
velli Leicester þegar gamla
góða Leeds-liðið kemur í heim-
sókn.
Plymouth-Chelsea: X
Aftur kemur X á seðilinn sem
tákn um að Plymouth og Chel-
seagerajafntefli. Chelsea-liðið
á alla möguleika á því að vinna
sér sæti í 1. deild að ári og
jafntefli á útivelli gegn Ply-
mouth er hreint ekki svo slæmt
fyrir liðið.
Swindon-Sunderland: 1
Heimaliðið hefur betur, en
bæði liðin eru á svipuðu róli
um miðbik 2. deildarinnar.
skúli lúðvíks.
FJÖLMIÐLASPÁ
LEiKIR 18. FEB. ’89 J CQ s > Q Z Z 1 Z z 3 > 8 2 cc =3 s Q Q Q- QC < (/) * cc I BYLGJAN <N s (/> z < z Œ < fc SAMTALS
1 X 2
Barnsley - Everton 2 2 2 2 2 2 2 2 2 0 0 9
Blackburn - Brentford 1 1 1 1 X 1 1 X X 6 3 0
Bournemouth - Man. Utd. 2 2 2 2 2 2 2 2 2 0 0 9
Charlton - West Ham X X X X 2 2 2 2 2 0 4 5
Hull - Liverpool 2 2 2 2 2 2 2 2 2 0 0 9
Luton - Middlesbro 1 1 1 1 1 1 X 1 X 7 2 0
Q.P.R. - Arsenal 2 2 2 X 2 X 2 X 2 0 3 6
Sheff. Wed. - Southampton 2 1 X 1 1 1 1 1 1 7 1 1
Bradford - W.B.A. X 2 2 1 X X 2 X 2 1 4 4
Leicester - Leeds 2 X X 2 1 2 X 1 X 2 4 3
Plymouth - Chelsea X 2 X X X 2 2 X 2 0 5 4
Swindon - Sunderland 1 1 1 1 2 1 1 1 2 7 0 2
Körfuknattleikur:
Átta stiga sigur
UMFG á Akureyri
Grindvíkingar sigruðu Þórsara
með 97 stigum gegn 89, er liðin
mættust í Flugleiðadeildinni í körfu-
knattleik á Akurcyri í gærkvöld.
Suðurnesjamenn voru yfir allan
leikinn og náðu um tíma 20 stiga
forystu í fyrri hálfleik. Staðan í
leikhléinu var 45-58 fyrir gestina, en
í síðari hálfleik tókst Þórsurum að
rétta sinn hlut og minnka muninn í
3 stig 79-82 og 83-86. Grindvíkingar
voru sterkari á endasprettinum og
sigruðu eins og áður segir 89-97.
Stigin; Þór: Konráð 31, Eiríkur
17, Guðmundur 16, Kristján 16,
Björn 5, Jóhann 2 og Einar Karls. 2.
UMFG: Guðmundur 29, Steinþór
23, Jón Páll 14, Hjálmar 13, Rúnari
12, Ólafur 3 og Sveinbjörn 2. BL
Badminton:
Landsliðið til
Bandaríkjanna
Sigurður Gunnarsson lék vel gegn Kúvait í gær og skoraði 6 mörk. Hér lætur Sigurður skot ríða af með miklum tilþrifum gegn Alsír á Ólympíuleikunum í Seoul.
Handknattleikur:
Stórleikur Jakobs í
sigri íslands
íslenska landsliðið í badminton
heldur á þriðjudaginn í næstu viku
áleiðis til Bandaríkjanna í keppnis-
ferð í boði heimamanna.
Liðið leikur landsleik gegn heima-
mönnum á fimmtudag og tefla þjóð-
irnar þar fram öllum sínum sterkustu
leikmönnum. Viðureignirnar verða
7 talsins. Landslið íslands sem fer
utan er skipað eftirtöldum leik-
mönnum: Broddi Kristjánsson, Þor-
steinn Páll Hængsson, Guðmundur
Adolfsson, Ármann Þorvaldsson,
Árni Þór Hallgrímsson, Þórdís
Edwald og Kristín Magnúsdóttir.
Þau eru öll í TBR.
Föstudaginn 24. febr. tekur liðið
Klippið hér
þátt í alþjóðlegu móti í Boston.
Meðal keppenda þar verða flestir
sterkustu leikmenn Kanada. Mánu-
daginn 27. febr. verður vináttulands-
leikur gegn Bandaríkjunum, en ekki
er Ijóst hvaða leikmönnum Banda-
ríkjamenn tefla þar fram. Leikurinn
fer fram í smábænum Marblehead
norðan við Boston.
Flestir landsliðsmannanna koma
heim 1. mars, en þau Broddi, Þórdís
og Árni Þór verða eftir og keppa á
alþjóðlegu móti í Montreal í Kanada
3.-5. mars. Þau Þórdís og Broddi eru
nú stödd í Lausanne í Sviss þar sem
þau munu keppa á Sviss open um
helgina. BL
ITT
lftasfónvarp
er fjárfestíng
iv-þýskum
öæðumog
fall<
IIIEtum
Það var ekki mikil mótspyrna sem mætti íslendingum í Cherbourg í
gær þegar olíudrengirnir frá Kúvait mættu okkar mönnum í B-
heimsmeistarakeppninni í handknattleik. Stór íslenskur sigur var
staðreynd, 33-14, en það mun vera einhver stærsti sigur sem íslenskt
Iendslið hefur unnið.
fslenska liðið byrjaði leikinn þó ekki af
neinum glæsibrag. Kúvaitmenn gerðu tvö
fyrstu mörkin, en þeir fóstbræður úr Hafn-
arfirði, Þorgils Óttar og Kristján Arason,
jöfnuðu fyrir ísland. Góðir leikkaflar á
næstu mínútum komu fslendingum yfir 8-4
og síðan 12-6. Þegar flautað var til hálfleiks
var munurinn á liðunum orðinn 7 mörk,
15-8. Einar Þorvarðarson stóð í markinu
allan fyrri hálfleikinn og varði vel, alls 5
skot.
1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2
Handknattleikur:
Fjögurra marka
sigur Rúmena
á Búlgörum
Rúmenar sigruðu nágranna sína Búlgara
með fjögurra marka mun í B-keppninni í
handknattleik í gærkvöld, 25-21. Þessi
úrslit gefa okkur Islendingum vonir um að
rúmenska liðið sé ekki ýkja sterkt um
þessar mundir, fsland mætir Rúmeníu á
rnorgun.
Önnur úrslit í gærkvöld urðu þessi:
V-Þýskaland-Holland .... 26-14
Spánn-israel............21-19
Kúba-Danmörk............23-27
Noregur-Sviss.......... 18-22
Egyptaland-Pólland ..... 17-32
Austurríki-Frakkland .... 14-21
BL
Guðmundur Hrafnkelsson kom í markið
í síðari hálfleik og honum tókst vel upp og
varði hann um 10 skot. Síðari hálfleikur
var algjör einstefna íslenska liðsins. Fyrstu
4 mörkin voru íslensk, en Kúvaitmenn
svöruðu með 1 marki. Þá var munurinn
orðinn 10 mörk 19-9. Því næst gerðu
íslendingar 3 mörk í röð áður en liðin
skiptust á 1 marki hvort. Staðan var orðin
23-12, eftir 2 mörk Kúvaitmanna í röð, en
síðustu mín. leiksins gerðu íslendingar 10
mörk gegn einu. Lokatölur leiksins voru
því 33-14, 19 marka sigur, einhver sá
stærsti sem íslenskt landslið hefur unnið.
Jakob Sigurðsson átti mjög góðan Ieik í
gærkvöld og skoraði 9 mörk. Aðrir leik-
menn íslenska liðsins léku mjög vel, en
mótspyrnan minnkaði mjög þegar á leikinn
leið. Markvarsla Guðmundar Hrafnkels-
sonar var mjög Ijós punktur við þennan
leik og gefur góð fyrirheit á næstu leiki,
skyldi Einar Þorvarðarson ekki ná sér á
strik.
Með þessum sigri hafa íslendingar tryggt
sér rétt til að leika í milliriðlinum, en hærra
var stefnt og liðið hefur sýnt að það er ekki
árennilegt viðureignar. Á morgun verður
síðan úrslitaleikurinn í riðlinum þegar
íslenska liðið mætir Rúmenum. Þá skiptir
mestu að sigur vinnist, en leikirnir gegn
Búlgörum og Kúvaitmönnum voru aðeins
áfangar að hærri markmiðum, sigri á
Rúmeníu og góðu gengi í milliriðli. Fari
svo að það lið sem fylgir fslendingum og
Rúmenum í milliriðilinn nái ekki 3 stigum
samtals. falla leikir gegn því liði út vegna
einhverrar 25% reglu. Þá skipta stórsigrar
íslenska liðsins í gær og fyrradag ekki máli
lengur. Þessi regla er ákatlega fáránleg.
nær væri að láta innbyrðisleiki gilda þegar
lið eru með jafn mörg stig.
Leikurinn á morgun gegn Rúmeníu
verður mjög erfiður, en íslenska liðið er
mun leikreyndara. Mönnum er enn í
fersku minni leikur íslenska liðsins gegn
Rúmenum í heimsmeistarakeppninni í
Sviss 1986. Vonandi tekst okkar mönnum
vel upp í leiknum, en því miður hefur liðið
átt það til að fara í öldudal eftir góða leiki.
Sigur á Rúmenum mundi styrkja þær vonir
sem bundnar eru við liðið, þ.e.a.s. að sætið
í A-keppninni verði endurheimt. BL
Staðan í C-riðli
ísland........2 2 0 0 53-26 4
Rúmenía...... 2 2 0 0 50-37 4
Búlgaría..... 2 2 0 0 33-45 0
Kúvait........2 2 0 0 30-58 0
Tímiim
□ ER ASKRIFANDI
□ NÝR ÁSKRIFANDI
Dags.:
I V/SA
I IHMHH
□ Samkort □ \Æ
Kortnr.: nnnnnnnnnnnnnnnn
Gildir út:
Nafnnr.: □□□□ - CXI
BEIÐNI UM
MILLIFÆRSLU
ÁSKRIFTARGJALDS
Ég undirrituð/aður óska þess að áskriftar-
gjald Tímans verði mánaðarlega skuld-
fært á greiðslukort mitt.
UNDIRSKRIFT.
ÁSKRIFANDi..................:..........................
HEIMIU:................................................
PÓSTNR. - STAÐUR:..............'...., SÍMI:............ SENDIST AFGREIÐSLU BLAÐSINS
LYNGHÁLSI 9, 130 REYKJAVlK
Armúla 3-108 Reykjavík - Simi91 -680988