Tíminn - 16.04.1991, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 16. apríl 1991
Tíminn 3
Samtök um kaup á laxveiðikvótum í sjó gefa út skýrslu:
Atlantshafslaxinn á
stöðugri niðurleið
Þessa dagana er að koma út á vegum samtaka um kaup á úthafs-
laxveiðikvóta skýrsla um Atlantshafslaxinn í 1000 ár. í skýrslunni
er gerð grein fýiir hvemig laxastofninn í Atlantshafi hefur þróast
síðustu aldimar. Pram kemur að Atlantshafslaxastofninn er í dag
aðeins um 10% þess sem hann var fýrir 300 ámm.
Formála að skýrslunni ritar Hall-
dór Ásgrímsson, sjávarútvegsráð-
herra. Þar bendir hann m.a. á að Atl-
antshafslaxinn sé gott dæmi um
sameiginlega auðlind sem koma
þarf undir alþjóðlega stjórn. Frank
Jensen, forstöðumaður fiskideildar
Náttúrusögusafnsins í Árósum í
Danmörku, skrifar um stofnstærð
Atlantshafslaxins frá síðustu ísöld.
Dr. Tumi Tómasson á ritgerð í
skýrslunni sem fjallar um laxveiðar í
ám, á öðrum heimaslóðum og á út-
hafinu. Dr. Tumi er forstöðumaður
deildar Veiðimálastofnunar að Hól-
um í Hjaltadal og aðalráðgjafi við
ýmsar framkvæmdir sem miða að
því að efla laxastofna hér á landi. í
skýrslunni er einnig grein um fiski-
rækt og ofveiði eftir Ásgeir Ingólfs-
son sem er vel þekktur fýrir skrif sín
og áhuga á náttúruvernd. Loks er í
skýrslunni útdráttur úr grein eftir
Dr. Lawrence Felt en hún birtist í
Marine Policy í júlí 1990 og hefur
hlotið lof meðal áhugamanna um
Atlantshafslaxinn og náttúruvernd.
Auk þess ritar Orri Vigfússon, for-
maður alþjóðlegu laxakvótanefndar-
innar, stuttan inngang að skýrsl-
unni, en nefndin hefur það að mark-
miði að uppræta allar löglegar og
ólöglegar laxveiðar í hafinu.
í skýrslunni er dregin upp dökk
mynd af því hvernig laxastofninn í
Atlantshafi hefur þróast. Stofninn
hefur minnkað stöðugt síðustu 1000
ár og hefur heldur hert á þessari
neikvæðu þróun síðustu áratugina.
Fiskeldi hefur unnið stofninum tals-
vert tjón á síðustu árum. Fúkkalyf,
flökkulax, sjúkdómar og sníkjudýr
eiga þar stóran þátt. Stærsti skað-
valdurinn er hins vegar löglegar og
ólöglegar úthafsveiðar. Á milli 12 og
24% af skráðri heildarlaxveiði koma
úr úthafinu við Færeyjar og Vestur-
Grænland.
Einnig er talið að milli 20 og 30%
af þeim fiski sem skaddast í veiðar-
færum í sjó en sleppur, drepist. Góð-
ar líkur eru hins vegar á að takist að
stöðva þessar veiðar
-EÓ
KAUPFELAG EYFIRÐINGA:
Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga var haldinn í Félagsborg á Akur-
eyri sl. laugardag. Fundinn sátu 253 fulltrúar. Á fundinum kom
fram að mikil umskipti til hins betra urðu á rekstri Kaupfélags Ey-
firðinga á síðasta ári. Rekstrarhagnaður ársins nam 262 milljónum
króna, en árið á undan varð 177 milljóna króna tap.
Heildarvelta KEA á síðasta ári var 8,3
milljarðar króna, jókst um 7,2% milli
ára. Velta samstarfsfyrirtækja var 1,7
milljarðar króna, lækkaði um 12% frá
fýrra ári. Eignir KEA um áramót voru
samtals um 6.958 milljónir króna.
Skuldir félagsins voru hins vegar
4.350 milljónir króna. Eignir umfram
skuldir voru 2.609 milljónir króna, og
eigiðfjárhlutfall 37,5%. Hjá KEA störf-
uðu á síðasta ári 984, og hjá sam-
starfsfýrirtækjunum 223. Beinar
launagreiðslur námu 1.368 milljón-
um króna, sem er 8% lækkun frá ár-
inu á undan. Á fúndinum kom fram
tillaga um að vegna góðrar afkomu
KEA á síðasta ári, greiddi félagið
hverjum starfsmanni KEA á síðasta
ári og sem enn er í starfi hjá KEA tíu
þúsund króna launauppbót. lálsverð-
ar umræður spunnust um tillöguna,
og var henni að lokum vísað til stjóm-
ar.
í máli fundarmanna kom fram mikil
ánægja með afkomuna og töldu að
þær aðhaldsaðgerðir sem gripið var til
í kjölfar hrikalegrar afkomu ársins á
undan hefðu skilað góðum árangri.
Jafnframt hefði „þjóðarsáttin" og bætt
ytri skilyrði hjálpað til. Jóhannes Sig-
ÞESSA DAGANA stendur yfir í Seðlabanka íslands viðamikil sýning
á íslenskrí mynt og peningaseðlum allt frá upphafi peninganotkunar
á fslandi og til nútímans. Sýningin er opin á þeim tímum sem bank-
inn er opinn og er aðgangur ókeypis. Safnvörður Seðlabankans, An-
ton Holt, skipulagði sýninguna og hefur haft veg og vanda af upp-
setningu hennar.
Tímamynd: Ami Bjama.
valdason, formaður stjómar KEA,
sagði í ræðu sinni að þrátt fýrir batn-
andi hag félagsins mætti ekki líta fram
hjá þeirri staðreind að skuldir félags-
ins væm óþægilega miklar. Því yrði
áfram að gæta aðhalds í rekstrinum,
og grynnka á skuldum. Magnús Gauti
Gautason kaupfélagsstjóri tók í sama
streng, og sagði að engar stórar fjár-
festingar væm áformaðar á árinu.
Jafnframt yrði áfram unnið að sölu
þeirra eigna sem gæfu félaginu engan
arð. Er þar f.o.f. horft til eigna félags-
ins í Grófargili, sem að stómm hluta
standa ónotaðar. Þá sagði Magnús að
hlutfal! skammtímaskulda hefði
lækkað umtalsvert á síðasta ári.
Magnús sagði að útkoma einstakra
rekstargreina hjá KEA hefði verið
mjög mismunandi, en áfram yrði
unnið að hagræðingu og leitast við að
efla reksturinn enn frekar.
Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga skipa:
Jóhannes Sigvaldason formaður, Jó-
hannes Geir Sigurgeirsson, Amsteinn
Stefánsson, Valgerður Sverrisdóttir,
Þorsteinn Jónatansson, Guðríður Ei-
ríksdóttir og Magnús Stefánsson.
Varamenn em Valdimar Bragason,
Hreinn Bernharðsson og Stefán Vil-
hjálmsson.
Flugskýli á Kefla-
víkurflugvelli:
Aðflutnings-
gjöld verða
felld niður
Fjármálaráðherra hefur ákveðið að
aðflutningsgjöld vegna byggingar
flugskýlis Flugleiða á Keflavíkurflug-
velli verði felld niður. Þetta er meðal
annars gert til að viðgerða- og við-
haldsvinna Flugleiða geti færst meir
inn í landið og til að styrkja atvinnu-
líf á Suðurnesjum almennt séð.
Bygging flugskýlisins verður að lík-
indum stærsta byggingaframkvæmd
þessa árs og mun taka eitt ár. Það er
um 12.400 fermetrar að stærð og á að
geta hýst 6 Boeing 737-400 þotur
samtímis. Með tilkomu þess mun
störfum á Suðumesjum fjölga vem-
lega. Strax og það verður tekið í notk-
un færast þangað a.m.k. 137 ný störf,
auk tilheyrandi margfeldisáhrifa.
Áætlaður kostnaður við framkvæmd-
ir er á bilinu 800 til 1000 milljónir
króna. -sbs.
Menningarsjóður KEA
Að venju var á aðalfundinum til-
kynnt um úthlutun úr Menningar-
sjóði KEA. Að þessu sinni vom til ráð-
stöfunnar 700 þúsund krónur, og
skiptist upphæðin milli 11 aðila. Að
þessu sinni fengu styrk: Sumarbúð-
irnar Ástjörn 75 þúsund krónur,
Kvennakórinn Lissý vegna söngfarar
75 þúsund krónur, Félag hjartasjúk-
linga í Eyjafirði fékk 75 þúsund króna
styrk til tækjakaupa, Slysavamadeild
kvenna á Dalvík 75 þúsund krónur,
vegna kostnaðar við Kirkjulistaviku á
Akureyri 75 þúsund krónur, Félag
aldraðra á Akureyri 75 þúsund krónur,
Séra Þórhallur Höskuldsson vegna
rannóknarstarfa 50 þúsund, Mikael J.
Clark vegna söngnáms 50 þúsund
krónur, Einar K. Einarsson vegna gít-
arnáms 50 þúsund krónur, Herdís
Jónsdóttir vegna fiðlunáms 50 þús-
und krónur, og Jónas Viðar Sveinsson
vegna myndlistarnáms 50 þúsund
krónur. hiá-akureyri.
Guðmundur J.
Guðmundsson, for-
maður Dagsbrúnar
og VMSÍ:
Ég er ekki
Eysteinn
„Ég er ekki í framboði til alþing-
iskosninga og þaðan af síður er
ég að reyna að fara í föt Eysteins
Jónssonar," sagði Guðmundur J.
Guðmundsson, formaður Dags-
brúnar.
Guðmundur vildi taka þetta
fram af gefnu tilefni, en svo virð-
ist sem einhverjir hafi talið Guð-
mund vera í framboði týrir Fram-
sóknarflokkinn og enn aðrir jafn-
vel verið að mgla honum saman
við Eystein Jónsson.
Guðmundur telur að það síðar-
nefnda sé harla sérkennilegt þar
sem þeir Eysteinn geti vart talist
áþekkir í útliti.
Guðmundur J. Guðmundsson
hefur ávarpað nokkra rabbfundi
framsóknarmanna að undan-
förnu þar sem hann hefur lagt
áherslu á árangur þjóðarsáttar-
samninganna og nauðsyn þess að
varðveita efnahagslegan stöðug-
leika áfram eftir kosningar, auk
þess að leggja verði höfuðáherslu
á að bæta kjör hinna lægst laun-
uðu, en sem kunnugt er fara
skoðanir Guðmundar og fram-
sóknarmanna saman í þessum
málum. En Guðmundur er ekki í
framboði til alþingiskosninganna
á laugardaginn kemur — hvorki
fýrir framsóknarmenn né aðra.
—sa
Vinningstölur laugardaginn
13. apríl ‘91
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 0 2.746.484
2.4SI# 3 158.976
3. 4af 5 153 5.377
4. 3af 5 5.038 381
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.965.571 kr.
Ath. Vinningar undir 12.000 krónum eru greiddir út
á Lottó sölustööum.
J'.fJ í'i’i
J . ‘ ( I I I I J'