Morgunblaðið - 02.03.2006, Page 1

Morgunblaðið - 02.03.2006, Page 1
TIL 21 OPI‹ Í KVÖLD hefst í dag! Stafræn mynd af mér Heimasíður fullar af myndum af vin- um við ýmis tækifæri | 54 Viðskipti og Íþróttir í dag Viðskipti | Fréttaskýring: Átökin harðna á byggingarvörumarkaði  Íslendingar komnir með ítök í helstu fasteignafélögum  Fréttir Íþróttir | Viðtal: Arnór Atlason  Cole hetja Englendinga RANNSÓKN efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra á meintum ólög- legum viðskiptum með stofnfjárhluti í Sparisjóði Hafnarfjarðar beinist með- al annars að því hvort fimm félög hafi fjármagnað kaup fjölmargra einstak- linga á stofnfjárbréfum í sjóðnum. Þessi félög eru A. Holding S.A., dótt- urfélag Baugs, Hagar ehf., sem einnig er dótturfélag Baugs, Bygg ehf., Sax- hóll ehf. og Íslensk-ameríska ehf. Fjármálaeftirlitið (FME) tilkynnti efnahagsbrotadeild Ríkislögreglu- stjóra 16. desember sl. að grunur léki á um að lög um fjármálafyrirtæki hefðu verið brotin við kaup á stofn- fjárhlutum í SPH. Í tilkynningu FME, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, segir að í ljós hafi komið við skoðun FME á bankareikningum lög- mannsstofunnar Lögmanna Laugar- dal ehf., sem FME telur að hafi haft milligöngu um sölu stofnfjárbréfa í SPH, að félögin fimm lögðu fjárhæð- ir, sem nema samtals um 2,6 millj- örðum kr., inn á reikninga lögmanns- stofunnar. Er stærsta fjárhæðin í nafni A. Holding S.A., sem lagði um 1,9 milljarða kr. inn á reikninginn. A. Holding var stofnað 2001 um fjárfest- ingu í verslunarkeðjunni Arcadia. 1,6 milljarðar virðast hafa verið færðir á reikninga seljenda Fram kemur í gögnum sem blaðið hefur undir höndum að Fjármálaeft- irlitið fái ekki betur séð en að greiðslur upp á um 1,65 milljarða kr. hafi verið færðar á bankareikninga ákveðinna seljenda stofnfjár og ann- arra aðila sem málinu tengjast af reikningum lögmannsstofunnar. Ekki verði hins vegar séð að þeir kaupendur stofnfjár sem um ræðir, að einum undanskildum, hafi reitt fram greiðslur í tengslum við kaupin. Í tilkynningu FME til Ríkislög- reglustjóra segir að þær spurningar vakni einnig „hvort tiltekinn aðili eða aðilar hafi fjármagnað viðskiptin, en af umræddum bankareikningum má sjá að nokkur félög hafa lagt umtals- verðar fjárhæðir á reikningana. Þetta eru A. Holding S.A., sem hefur lagt ca. 1,9 milljarða kr. á reikninga lög- mannsstofunnar, og þá hafa Bygg ehf., Saxhóll ehf., Íslensk-ameríska verslunarfélagið ehf. og Hagar ehf. lagt 180 milljónir hver inn á reikninga lögmannsstofunnar. Þá hafa ca. 1,3 milljarðar kr. verið lagðir inn á reikn- inga A. Holding S.A. af reikningum lögmannsstofunnar“, segir þar. FME bendir á að athugun þess hafi verið umfangsmikil og leitt í ljós að óbeinn virkur eignarhlutur virðist vera til staðar í SPH í andstöðu við lög. Jafnframt verði ekki annað séð en að tilteknir aðilar hafi veitt FME rangar eða villandi upplýsingar. Stofnfjáreigendum fækkað í 31 Miklar breytingar hafa orðið á hópi stofnfjáreigenda SPH frá því sl. vor er þeir voru 47 talsins, en þeim hefur nú fækkað í 31. Í yfirlýsingu stjórnar sparisjóðsins sem birt var í janúar sl. sagði að meðal margra nýrra stofn- fjáraðila væru Sjóvá-tryggingafélag hf., Magnús Ármann, SPV-fjárfest- ingar, MP-fjárfestingarbanki hf., Sig- urður Á. Bollason, Íslandsbanki hf., Sigurður G. Guðjónsson og Björn Þorri Viktorsson. Hefðu m.a. Saxhóll ehf., Bygg ehf. og Guðmundur A. Birgisson óskað samþykkis stjórnar á kaupum á stofnfé. Þá eru skv. heim- ildum Morgunblaðsins Karen Millen, Kevin Stanford og Hagar meðal nýrra stofnfjáreigenda. Lögðu 2,6 milljarða á reikninga Lögmanna Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is  Rannsókn á stofnfjárviðskiptum í SPH beinist m.a. að fjármögnun kaupanna og milligöngu lögmanna George W. Bush Bandaríkjaforseti heilsar indverska forsætisráð- herranum Manmohan Singh á al- þjóðaflugvellinum í Nýju Delí í gær þegar hann kom í opinbera heim- sókn til Indlands, fjölmennasta lýð- ræðisríkis heims. Þetta er fyrsta ferð Bush til Suður-Asíu. | 18 Reuters Bush á Indlandi Berlín. AFP. | Heilbrigðisyfirvöld í fimm sambandslöndum Þýskalands hafa skipað svo fyrir að fólk skuli halda heimilisköttum sínum innan- dyra. Ennfremur eiga hundar að vera tjóðraðir öllum stundum. Gripið var til þessara ráðstafana í þeim sambandslöndum, þar sem fuglaflensunni hefur skotið upp, eft- ir að rannsókn á dauðum ketti á eyj- unni Rügen við Eystrasalt leiddi í ljós að hann hafði drepist af völdum H5N1-afbrigðis fuglaflensuveir- unnar. Þetta er í fyrsta skipti sem stað- fest er að veiran hafi borist úr fugl- um í spendýr í Evrópu. Telja fulltrú- ar heilbrigðisyfirvalda að kötturinn hafi étið sýktan fugl, en skammt er um liðið síðan staðfest var að villtir svanir á Rügen hefðu drepist úr fuglaflensu. Í Þýskalandi hafa menn miklar áhyggjur af tíðindunum frá Rügen enda mikið um heimilisketti í land- inu, talið er að þeir séu um 7,5 millj- ónir. Talsmaður Alþjóðaheilbrigð- ismálastofnunarinnar (WHO) í Genf sagði að óljóst væri hvort fugla- flensuveiran gæti borist úr köttum í menn. Hann bætti þó við að hættan á því virtist vera lítil. Fólk beðið um að loka kettina inni ÍSLENSK stjórnvöld og fyrirtækið Alcoa undirrituðu í New York í gær samkomulag um ítarlega könnun á hagkvæmni þess að reist verði 250 þúsund tonna álver á Bakka við Húsavík. Gert er ráð fyrir að jarð- varmi verði sá orkugjafi sem not- aður verður til álframleiðslunnar og er fyrstu framkvæmda á svæðinu að vænta árið 2010 nái þessar fyrirætl- anir fram að ganga og að fram- leiðsla geti hafist tveimur árum síð- ar. Um 1.300 störf myndu að öllum líkindum skapast við byggingu ál- versins frá árinu 2010, en í álverinu sjálfu yrðu um 300 til 350 ný störf, og byggja þyrfti 3–400 nýjar íbúðir á Húsavík. Samanlagt er talið að ál- ver myndi skapa 6–800 störf á Norðurlandi. Mikill fögnuður braust út á Húsa- vík þegar fréttist af ákvörðuninni og söfnuðust bæjarbúar saman á Gamla Bauk, veitingastað við höfn- ina á Húsavík. „Sætur sigur,“ sagði Hreinn Hjartarson, framkvæmda- stjóri Orkuveitu Húsavíkur. „Besta afmælisgjöf sem hægt er að hugsa sér,“ sagði Hallveig Höskuldsdóttir, hótelstjóri á Fosshóteli Húsavík, í samtali við Morgunblaðið en hún átti afmæli í gær. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, sagði að orka til rekstrar álversins ætti að geta feng- ist frá fjórum háhitasvæðum á Norðausturlandi, Kröflu, Bjarnar- flagi, Gjástykki og Þeistareykjum, og orkuafhending farið fram í tveimur áföngum, 2012 og 2015. Áð- ur þyrfti hins vegar að efna til dýrra og umfangsmikilla rannsókna á svæðunum. Talið væri að rannsókn- irnar gætu kostað um tvo milljarða króna, en á móti kæmi að rannsókn- arholurnar gætu nýst líka í orku- vinnslunni. „Við förum ekki í millj- arðarannsóknir nema við finnum það á næstu mánuðum að það sé al- vara í þessu öllu saman og það auð- vitað byggist á því að verðhugmynd- ir þeirra og okkar fari saman,“ sagði Friðrik ennfremur. Tveir aðrir staðir á Norðurlandi komu einnig til greina undir álver, Dysnes við Eyjafjörð og Brimnes í Skagafirði, og segjast talsmenn þessara staða hafa fullan skilning á niðurstöðunni varðandi staðarvalið. Alcoa valdi Bakka  Mikill fögnuður á Húsavík: „Besta afmælisgjöf sem hægt er að hugsa sér“  300–350 ný störf verða til í álverinu og 6–800 störf á öllu Norðurlandi  Orkan frá fjórum háhitasvæðum en leggja þarf tvo milljarða í rannsóknir  Húsvíkingar fagna | 6  Undirritun í New York | 10  Forstjóri Landsvirkjunar | 12  Stjórnarandstaðan | Miðopna  Álver á Húsavík? | Forystugrein  Mótmæli | Baksíða „MÉR finnst þetta mjög ánægjulegt skref sem hérna var stigið í morg- un. Ef af verður mun þetta aug- ljóslega hafa gríðarleg áhrif fyrir Norðurland og þá sérstaklega Húsavík, en áhrifin verða miklu víðar, ekki síst á Akureyri þar sem Akureyri er stór þjónustubær og afleiddu störfin verða mjög mikið þar,“ sagði Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra eftir undirritun samningsins í New York. Bernd Reitan, aðstoðarforstjóri Alcoa, sagði að ákvörðunin um Bakka á Húsavík hefði verið tekin í kjölfar mjög nákvæmrar og yf- irgripsmikillar vinnu. „Mér líður vel með [þessa ákvörðun] vegna þess að fundurinn í dag staðfesti sannarlega að það er stuðningur við álver á Norðurlandi og stuðn- ingur við ákvörðun okkar.“ Ljósmynd/Keith Bedford Valgerður Sverrisdóttir og Bernd Reitan undirrituðu yfirlýsinguna. „Hefur gríðarleg áhrif“ STOFNAÐ 1913 60. TBL. 94. ÁRG. FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.