Fréttablaðið - 02.04.2009, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 02.04.2009, Blaðsíða 46
 2. APRÍL 2009 FIMMTUDAGUR14 ● fréttablaðið ● brúðkaup Brúðkaupsnóttin og hveiti- brauðsdagarnir lifa lengi í minningunni og því er skyn- samlegt að velja vel hvernig skal eyða þeim tíma. Á Íslandi er fjöldinn allur af gististöðum sem bjóða upp á úrvals- aðstöðu og þjónustu fyrir brúðhjón í faðmi fjalla, dala og víðfeðmra slétta. Rómantík og ljúfar stundir eru óhjákvæmilega heklaðar saman við stóra daginn er ástfangið par játast hvort öðru. Á slíkum stund- um er tilvalið að eyða brúðkaups- nóttinni eða hveitibrauðsdög- um á fallegum stað, fjarri amstri hversdagsins og gera vel við sig og elskuna sína í hvívetna. Þegar kemur að því að finna góðan gististað í sveitum lands- ins er úrvalið mikið. Gististöðum er bjóða upp á sérkjör fyrir brúð- hjón fer fjölgandi og náttúra lands- ins svíkur engan. Hér eru fjögur sveitahótel nefnd til sögunnar og víst er að enginn verður svikinn af því að eyða brúðkaupsnóttinni á einu þeirra. HÓTEL RANGÁ Á Hótel Rangá býðst gestum að láta útbúa herbergi eftir eigin óskum, allt eftir því hvert til- efnið er, og fer verðið eftir vali brúðhjónanna. Fyrir brúðhjón er meðal annars boðið upp á veislu- bakka, freyðibaðkúlur, ilmkerti, blóm, súkkulaðihjúpuð jarðarber og kampavín en einnig má bæta við gjöf úr héraðinu, kvikmynd sem sýnir norðurljósin og brúðar- skreyttri svítu. Rómantíkin ligg- ur í loftinu. Á Hótel Rangá er auk þess nýr matsalur og boðið er upp á fyrirtaks matseld. Oddakirkja er skammt undan og því er einfalt að láta pússa sig saman í nágrenninu og eyða síðan nóttinni á hótelinu. HÓTEL REYNIHLÍÐ Hjá Hótel Reynihlíð við Mývatn er boðið upp á fjölbreyttar lausn- ir fyrir brúðhjón, allt frá gistingu á brúðkaupsnóttina til brúðkaups- ins í heild sinni. Algengustu pakka- tilboðin eru brúðarpakki, veislu- pakki og brúðkaup frá a-ö. Brúðar- pakkinn felur í sér gistingu í svítu, hressingu við komuna með snitt- um, konfekti og kampavíni en auk þess er boðið upp á morgunverð af matseðli í rúmið ásamt aðgangi að jarðböðunum við Mývatn. Þetta kostar 35.200 krónur fyrir hjónin. Veislupakki felur í sér brúðkaups- veislu úr veislulista með drykkj- um, gistingu og morgunverði, auk aðgangs að jarðböðunum við Mý- vatn og kostar hann 20.000 krónur á mann. Brúðkaup frá a-ö nær yfir brúðkaupsathöfn, tónlist, veitingar og gistingu en gerð eru tilboð í þess háttar verkefni og fer verð eftir umfangi. Reykjarhlíðar kirkja er við hlið hótelsins en gjarnan velur fólk ýmsar fallegar náttúruperlur í Mývatnssveit fyrir viðburðinn. HÓTEL BÚÐIR Hótel Búðir er skammt frá Snæ- fellsjökli og tekur einungis um tvo tíma að aka þangað frá Reykja- vík. Náttúrufegurðin er einstök en í grennd við hótelið er auk þess falleg viðarkirkja frá 19. öld sem hýsir um sjötíu manns. Í nágrenn- inu er falleg strönd með ljósum skeljasandi en einnig má halda athöfn á hótelinu. Þar eru nota- leg herbergi og svítur, innrétt- uð á rómantískan máta. Einfalt er að halda þar veislur í salarkynn- um hótelsins en boðið er upp á gómsætan matseðil auk þess sem setja má saman matseðil sam- kvæmt óskum brúðhjónanna. Einn- ig er möguleiki að leigja plötu- snúð ef halda skal veislu og hægt að skreyta fyrir veislur. Hótelið er auk þess með nokkra ljósmyndara á sínum snærum sem og snyrti- fræðing og hársnyrti. HÓTEL GLYMUR Ógleymanlegar stundir í faðmi Hvalfjarðar standa til boða á Hótel Glymi. Að sögn staðarhaldara eru þau vön að halda margs konar brúð- kaup, bæði innan- og utandyra, á hvaða árstíma sem er. Bæði er hægt Hveitibrauðsdagar í faðmi fagurra Hótel Glymur er í Hvalfirði en umhverfið er lokkandi og rómantískt. Hótel Reynihlíð er með helstu þjónustu. Á Hótel Rangá eru munúðarfull herbergi með helstu þægindum. Hægt er að sníða dvölina eftir óskum hvers og eins. Hótel Rangá býður upp á fjölbreytta þjónustu fyrir brúðhjón. Hótel Búðir eru í ógleymanlegu umhverfi. Á Hótel Búðum eru herbergin innréttuð á rómantískan og þægilegan máta. ● MÁLAÐ OG LITAÐ Í MINNINGASJÓÐINN Trönur og penslar eða papp- ír og litir á borði er eitt af því sem upplagt er að hafa í salar- horni meðan brúðkaupsveisl- an fer fram. Þá geta gestirnir gripið til þeirra verkfæra og gefið listsköpuninni lausan taum um leið og þeir labba framhjá. Í sameiningu geta þeir þannig útbúið mynd sem brúðhjónin eiga til minningar um daginn og gleðina sem honum fylgdi. Amé inniheldur engan viðbættan sykur eða sætuefni og er framleiddur úr náttúrulegum hráefnum. Það fæst í fjórum frábærum bragðtegundum • appelsínu og vínberja • vínberja og apríkósu • ylliberja og sítrónu • hindberja og brómberja Amé hefur notið sívaxandi vinsælda og er tilvalinn drykkur í hæsta gæðaflokki til að bjóða upp á í matarboðum og veislum allan ársins hring. Drykkurinn er frískandi með mildu bragði, létt freyðandi og virkilega fallegur fram að bera. Amé nafnið er komin úr Japönsku og þýðir „blítt regn“Heillaðu gestina og bjóddu upp á frískandi Amé í fallegu glasi Amé – fágaður veisludrykkur Amé er frískandi ölkelduvatn með ávaxtabragði og einstakri blöndu austrænna jurtaseyða Útsölustaðir: Heilsuhúsið, Heilsuhornið Akureyri, Fjarðarkaup, Blómaval, Samkaup Úrval Njarðvík, Maður Lifandi, Garðheimar, Nóatún, MelabúðinAmé fæst í heilsuvöruverslunum og betri matvöruverslunum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.