Fréttablaðið - 02.04.2009, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 02.04.2009, Blaðsíða 66
42 2. apríl 2009 FIMMTUDAGUR bio@frettabladid.is Súrealískur ævintýraheimur Lewis Carroll, Lísa í Undralandi, ratar brátt á hvíta tjaldið á nýjan leik. Og hver annar en meistari Tim Burton gæti leikstýrt þessu furðuverki. Burton er þögull sem gröfin um hvernig myndin mun líta út en þrí- vídd og tölvugrafík eru þó talin eiga að leika lykilhlutverk í þessari kvik- myndaútfærslu. Burton ræddi stutt- lega við Empire-kvikmyndatímaritið um gerð myndarinnar þegar tímaritið útnefndi þá bestu á árlegri verðlauna- hátíð sinni. Eina haldbæra svarið frá Burton var: „Djúpt niður í kanínuhol- una.“ Burton virtist ekki einu sinni sjálfur vera viss um hvernig endanlegt útlit yrði, sagðist bara njóta þess að búa til jafn dýra mynd og Lísa í Undra- landi verður. „Sú staðreynd gefur mér tækifæri til að prófa mig aðeins áfram.“ Burton er þó samur við sig þegar kemur að leikaravali því Johnny Depp kemur að sjálfsögðu fyrir. Burton hefur varla mátt hreyfa kvikmyndatökuvél án þess að Depp komi nærri með einum eða öðrum hætti. Leikarinn verður í hlut- verki brjálaða hattarans en meðal ann- arra góðkunningja Burtons má nefna eigin konuna Helenu Bonham- Carter. Þá fer Stephen Fry með stórt hlutverk í myndinni, en hin tví- tuga Mia Wasikowska leikur Lísu. Reiknað er með að myndin verði frumsýnd í apríl á næsta ári. - fgg Burton þögull um Lísu í Undralandi Formúla 1 er loksins komin aftur í sviðsljósið eftir mögur ár. Og nú fylgist heimsbyggðin með baráttu Massa, Hamilton og stundum Alonso á rennisléttum kappakst- ursbrautum um allan heim. Holly- wood er náttúrlega ekki lengi að nýta sér vinsældirnar og hyggst ráðast í gerð kvikmyndar um fyrsta Bandaríkjamanninn sem hefur haft sigur í Formúlu 1. Tobey Maguire mun leika Ferr- ari-ökuþórinn Phil Hill sem átti í harðri baráttu við félaga sinn hjá Ferrari, Wolfgang von Trips, árið 1961. Þessi slagur átti þó eftir að hafa hörmulegar afleið- ingar því von Trips lést í hörðum árekstri í ítalska kappakstrinum í september ásamt fimmtán áhorf- endum. Honum hefði nægt að ná þriðja sætinu til að vinna heims- meistaratitilinn. Formúlan hefur hingað til ekki þótt nægilega áhugaverð fyrir Hollywood ef undanskilin er hörmungarmynd- in Driven með Sylvester Stallone í aðalhlutverki og svo hin ágæta Frankenheimer-mynd Grand Prix sem frumsýnd var 1966. Mynd Maguires hefur verið gefið heitið The Limit og verð- ur hún byggð á samnefndri bók Michaels Cannell sem kemur út síðar á þessu ári. Maguire mun sjálfur framleiða myndina en ekki hefur verið gengið frá leik- stjóramálum eða öðrum leikur- um. - fgg Maguire í Formúlumynd Í FIMMTA GÍR Maguire leikur Formúlu- hetjuna Phil Hill sem er fyrsti Banda- ríkjamaðurinn til að verða heimsmeist- ari í Formúlu 1. > SPACEY MILLJARÐAMÆRINGUR Þótt nýjasta kvikmynd Kevins Spacey sé ekki stór á Hollywood-mælikvarða virðist söguþráður hennar eiga vel við um þessar mundir. Hún fjallar um milljarðamæring sem heldur að hann eigi allan heiminn, glutr- ar öllu niður og er send- ur í fangelsi. Þegar hann losnar þaðan hyggst hann endurreisa veldi sitt frá grunni. Hljómar kunnuglega … Fast and Furious Vin Diesel snýr aftur ásamt félaga sínum Paul Walker. Eins og þeir sem muna eftir fyrstu myndinni vita var Vin Diesel stungið í fangelsi fyrir glæfraakstur og bílaþjófnað en hann er nú laus allra mála og aðstoðar lögregluna við að hafa uppi á heróínsmyglurum. Aðalhlutverk: Vin Diesel og Paul Walker IMDB: Enginn dómur Rotten Tomatoes: 0 prósent af hundrað Monsters vs. Aliens Teiknimyndasnillingarnir í Dreamworks Animat- ion eru mættir aftur til leiks en titillinn minnir óneitan lega á B-mynda vísindahrollvekju. Geimverur mæta til jarðar, reiðubúnar að leggja allt í rúst en þeim mætir óvænt mótspyrna þegar hin viðkunnanlegu skrímsli ákveða að sýna þeim hvar Davíð keypti ölið. Aðalhlutverk: Reese Witherspoon og Kiefer Sutherland IMDB: 7,3/10 Rotten Tomatoes: 70 prósent af hundrað Der Baader Meinhof Komplex Þýsku hryðjuverkasamtökin Baader Meinhof héldu Vestur-Þýskalandi í heljargreipum á áttunda áratug síð- ustu aldar. Kvikmyndin um Baader Meinhof fjallar um upphaf og endi þessa hóps og hefur henni verið legið á hálsi fyrir að draga upp full mikla hetjuímynd af hryðjuverka- mönnunum. IMDB: 7,4/10 Rotten Tomatoes: 77 prósent af hundrað Choke Söguþráður Choke er á þá leið að Victor Mancini á í mestu erfiðleik- um með að takast á við fíkn sína sem er kynlífsfíkn. Til að bæta gráu ofan á svart er mamma hans á sjúkrahúsi og Mancini ákveður að nýta sér góðvild þeirra sem bjarga honum frá því að kafna eftir að matur hrekkur „óvænt“ ofan í hann. Aðalhlutverk: Sam Rockwell og Anjelica Huston IMDB: 6,9/10 Rotten Tomat- oes: 55 prósent af hundrað FRUMSÝNDAR UM HELGINA Grínistinn Sacha Baron Cohen snýr aftur í sumar eftir mikla og umdeilda frægðarför sjónvarps- mannsins Borat frá Kasak- stan. Að þessu sinni dregur Sasha upp úr hatti sínum hið samkynhneigða tísku- frík Bruno. Líkt og búast mátti við er mynd- in um Bruno þegar farin að vekja mikla athygli þrátt fyrir að hún verði ekki frumsýnd fyrr en 10. júlí í Bandaríkjunum. Samkvæmt kvikmyndatímaritinu Variety hefur bandaríska kvikmynda- eftirlitið sett svokallaðan NC-17 stimpil á myndina, sem þýðir að hún er bönnuð yngri en sautján ára. Framleiðendur myndarinnar höfðu vonast eftir að hún fengi R- stimpilinn, þá fengi fólk yngra en sautján ára að fara á myndina í fylgd með fullorðnum. Sum atriði myndarinnar þóttu víst aðeins of „kynferðisleg“ að mati siðapostul- anna í Ameríku. Samkvæmt Var- iety eru aðstandendur myndar- innar sestir við klippiborðið aftur og ætla að finna lausn á þessum vandræðum, enda gæti stimp- illinn skipt máli þegar kemur að miðasölu. Endanleg útgáfa ætti því að hljóta náð fyrir augum kvik- myndaeftirlitsins. Hinum eyddu senum verður þó eflaust haldið til haga fyrir DVD-útgáfuna. Bruno fæddist í þáttum Cohens, Ali G, sem sýndir voru á RÚV við miklar vinsældir. Hann er austur- rískur tískusjónvarpsmaður og fær viðmælendur sína til að velja á milli tveggja svara sem sam- ræmast á engan hátt spurningum Bruno. Og tilgangurinn helgar meðalið, Bruno á að sýna í hve litlum tengslum tískubransinn er við raunveruleikann. Tvær kvikmyndir, byggðar á persónum úr þáttunum, hafa þegar verið gerðar: Ali G Indahouse og áðurnefnd Borat. Fyrri myndin náði engu flugi þótt Ali G sjálfur njóti mikillar hylli. Borat náði hins vegar hæstu hæðum enda gerði Sacha þar ómælt grín að fáfræði Vesturlandabúa og fordómum gagnvart framandi löndum á borð við Kasakstan. Reyndar voru vin- sældir Borat það miklar að stóru kvikmyndaverin í Hollywood háðu hatrammra baráttu um að tryggja sér kvikmyndaréttinn að mynd- inni um Bruno. Talið er að Univer- sal hafi þurft að seilast ansi djúpt í vasa sína til að töfra fram þær 42 milljónir dollara eða 5 milljarða íslenskra króna sem rétt nægðu til að skjóta Dreamworks, Sony og 20th Century Fox ref fyrir rass í kapphlaupinu. freyrgigja@frettabladid.is COHEN SNÝR AFTUR BURTON Í UNDRALANDI Tim Burton vinnur nú að gerð myndarinnar Lísu í Undralandi sem byggð er á sam- nefndri sögu Lewis Carroll. Johnny Depp er að venju í stóru hlutverki. KOSTAÐI HELJARINNAR FÉ Baráttan um Bruno minnir óneitanlega á kapphlaup bestu knattspyrnuliðanna um góðan leikmann. Universal tryggði sér þó krafta austur- ríska tískufríksins með því að greiða fyrir hann 42 milljónir dollara, jafngildi fimm milljarða íslenskra króna. Ekki skrítið því persóna Sacha Baron Cohen, Borat, sló öll met og naut gríð- arlegra vinsælda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.