Morgunblaðið - 20.03.2007, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 20.03.2007, Blaðsíða 21
úr bæjarlífinu MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2007 21 Lögg. fasteignasali: Bergur Guðnason hdl. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni ekki í síma eða á netinu. Skráin á netinu: www.fyrirtaeki.is Elsta fyrirtækjasalan á landinu. Sérstök fyrirtæki! 1. Ein þekktasta bjórstofa landsins. Er að selja drykkjarvörur fyrir á 200 millj. á ári. Best staðsetti pöbbinn í borginni og sá þekktasti. Allir þekkja þennan pöbb jafnvel bindindismaður eins og sá sem þetta skrifar (drekkur hann í laumi?). Góð framlegð. Einstakt tækifæri sem sjaldan koma. Selur um 85 þús. lítra af kranabjór á ári. 2. Glæsilegasta hársnyrtistofa á 101 svæðinu í borginni. Tilbúin til afhendingar strax. Þekkt fyrir góða og vandaða vinnu. Heimasíða. 6 stólar, 4 förðunarstólar, aðstaða fyrir tengda aukavinnu. 3. Nú er lag. Myndlistarverslun til sölu einmitt þegar listaverk eru að þjóta upp í verði. Þekkt verslun sem flestir kannast við. Til sölu og afhendingar strax. Stofnkostnaður að baki. 4. Tveir söluturnar og bensínsjoppur til sölu á Suðurnesjum, mikið að gera í báðum. Liggja nálægt hver annarri. Seljast saman enda hagkvæmt að nýta þær saman. 5. Stór söluturn við einn stærsta menntaskóla borgarinnar. Mikil verslun. Ísvél og grill á staðnum sem er mikið notað. Minna að gera á sumrin. Húsnæðið getur einnig verið til sölu. Örugg og góð vinna sem gefur mikið af sér. 6. Gistiheimili sem er 400 fm og með 13 herbergjum, tilbúið til notkunar. Allt fylgir með nema rúmteppin. Staðsett á 101 svæðinu og því ein besta fasteigna-fjárfesting sem hægt er að gera í Reykjavík, hvernig sem reksturinn gengur. En á þessu svæði er alltaf fullbókað. Nú er upplagt að skreppa til Prag og dekra við sig í aðbúnaði í þessari einstaklega fögru borg. Flogið er út að morgni föstudagsins langa og komið heim á fimmtudegi eftir páska (aðeins 3 vinnudagar). Prag hefur skipað sér sess sem eftirlæti Íslendinga sem fara þangað í þúsundatali á hverju ári með Heimsferðum. Fararstjórar okkar gjörþekkja borgina og kynna þér sögu hennar og heillandi menningu. Apríl er frábær tími til að heimsækja borgina - vorið komið á fulla ferð og borgin hreint yndislega falleg. Bjóðum nú frábært tilboð á glæsilegum fimm stjörnu lúxushótelum Hilton Hotel eða Hotel Corintia Towers. Gríptu tækifærið og skelltu þér til þessarar frábæru borgar og njóttu þess að hafa allan aðbúnað í toppi. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Lúxuspáskar í Prag 6.-12. apríl frá kr. 69.990 Ótrúlegt verð - Aðeins 16 herbergi Verð kr. 69.990 Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi, 6. apríl í 6 nætur á Hilton Hotel ***** eða Hotel Corintia Towers ***** með morgunmat. Ath. takmarkaður herbergjafjöldi í boði á hvoru hóteli fyrir sig. Munið Mastercard ferðaávísunina Fimm stjörnu páskar Hilton Hotel ***** eða Hotel Corinthia Towers ***** 6 nátta páskaferð Í Bolungarvíkinni er björgulegt lífið segir í upphafi „þjóðsöngs“ Bolvík- inga sem kyrjaður er við öll tæki- færi, lítil sem stór. Raunveruleikinn er auðvitað sá að lífið er mis- björgulegt eins og víðast hvar og hér er svo sannarlega við ýmis vandamál að glíma sem bæjarbúar, hver um sig og sameiginlega, tak- ast á við dag hvern. Það er þó óumdeilt að hin smærri samfélög hafa ýmsa kosti fram yfir þau stærri þá sérstaklega er lýtur að fjölskyldu og fé- lagslegum þáttum mannlífsins.    Fyrir viku, á björtum vetrardegi, komu boð frá Veðurstofu Íslands um að rýma þyrfti fimm íbúðarhús efst í bænum, við Dísarland og Traðarland. Staðkunnugir menn töldu víst að nú hefði brostið á einhver kerfis- feill, bilun í tölvukerfi eða annað álíka enda búið að vera einmuna snjólétt um þessar mundir. Rýming þessara húsa var byggð á þeirri viðbragðsáætlun sem Veð- urstofan styðst sem tekur mið af veðurspá, snjóalögum og ekki síst bindingu snjóþekjunnar í hlíðum fjalla, að þessu sinni Traðarhyrnu sem skýlir bæjarstæðinu fyrir norðanáttunum. Það sem brennur hvað mest á bæjarbúum er hin neikvæða um- ræða sem vart verður þegar grípa þarf til þessara nauðsynlegu örygg- isráðstafana, þá sérstaklega meðal fólks sem ekki þekkir til. Þrátt fyrir þessar rýmingar þá gengur lífið í bænum sinn vanagang en þetta er auðvitað mikið óþolandi rask fyrir það fólk sem býr við þær aðstæður að vera vísað að heiman, með litlum fyrirvara, um lengri eða skemmri tíma. Nú hillir undir það að úr fari að rætast því innan fárra vikna má reikna með að gerð varnargarðs fyrir ofan byggðina verði boðin út og framkvæmdir geti hafist í sum- arbyrjun. Undirbúningur að gerð varnarmannvirkisins hefur staðið í rúman áratug, m.a. hefur mála- rekstur vegna uppkaupa sex húsa við Dísarland staðið í nokkur ár en lyktir náðust í þeim málum á síð- asta ári.    Aflabrögð hafa verið mjög lítil að undanförnu, tíðarfar til sjávarins hefur verið einmuna erfitt það sem af þessum mánuði . Nú stendur sem hæst steinbíts- veiðitímabilið en sökum gæftaleysis hefur illa gengið að sækja á þau mið. Afli sem landað hefur verið í Bol- ungarvík í janúar og febrúar er er tæpum 200 tonnum minni en á sama tíma í fyrra. Ástæður þessa má rekja til þess að nú eru gerðir út færri bátar sem hafa yfir að ráða minni kvóta en líka þess að tíðarfar var öllu stöðugra í fyrra en í ár. Á móti vegur að fiskverð hefur verið mun hærra það sem af er árinu. Bolvíkingar hafa þurft að horfa upp á verulegan samdrátt í smá- bátaútgerðinni frá því að sá útgerð- arflokkur var kvótasettur í upphafi fiskveiðiárs 2004 til 2005. Síðasta árið sem dagakerfið var við lýði lönduðu 140 bátar í Bolung- arvík, ári síðar fækkað þeim um helming og það sem af er þessu fiskveiðiári hafa aðeins um 30 bátar landað afla sínum í Bolungarvíkur- höfn.    Nýlega var gengið frá samstarfs- samningi um stofnun fræðaseturs Háskóla Íslands í Bolungarvík. Að samkomulaginu standa Há- skóli Íslands, Náttúrustofa Vest- fjarða og Bolungarvíkurkaupstaður. Setrinu, sem heitir Fræðasetur HÍ í Bolungarvík, er ætlað að verða öflug rannsóknarstöð í ferða- málafræði í tengslum við náttúru, umhverfi, sögu og lífshætti á Vest- fjörðum. Þá er því jafnframt ætlað að vera starfsvettvangur vísindamanna frá m.a. samstarfsaðilum setursins og aðstaða fyrir fræði- og vísindamenn til lengri eða skemmri dvalar. Í samkomulagi stofnaðila kemur fram að Háskóli Íslands leggur til sex milljóna króna framlag á ári til að byggja upp þverfaglega rann- sóknarstofnun fyrir vísindamenn og nemendur skólans. Bolungarvíkur- kaupstaður leggur til samstarfsins skrifstofuaðstöðu og íbúð fyrir fræðimenn sem koma til lengri eða skemmri dvalar á vegum Fræðaset- ursins og Náttúrustofa Vestfjarða leggur til alla aðstöðu sem nýst gæti aðilum sameiginlega. Með tilkomu Fræðaseturs HÍ í Bolungarvík skapast eitt stöðugildi og má reikna með því að á næst- unni verði ráðinn fræðimaður í þá stöðu. Morgunblaðið/ Gunnar Hallsson Leikur í snjó Þrátt fyrir rýmingar vegna snjóflóðahættu gegnur lífið í Bol- ungavík sinn gang og börnin láta slíkt ekki trufla leik sinn. BOLUNGARVÍK Gunnar Hallson fréttaritari Rúnar Kristjánsson áSkagaströnd tekur eftir því að framboðum fjölgar: Gamla fólkið fer af stað, framboð kýs að mynda. Einkum vegna þess að það þarfnast mannréttinda! Karlalandsliðið í knattspyrnu hefur hækkað um nokkur sæti á heimslistanum frá því í janúar. Slíkt hefur ekki gerst lengi. Hreiðar Karlsson yrkir: Margur í sóknina vasklegur velst og vörnin er stabíl yfirleitt. Gengið á liðinu hækkar þó helst, hafi það ekki spilað neitt. Davíð Hjálmar Haraldsson bendir á að í knattspyrnunni eigum við kvennalandslið líka. Og að stelpurnar okkar hafi unnið Kínverja, þótt þeir hafi verið með rembing framan af leik. Kínverjarnir kepptust við um skeið, knettinum með list í eyður stungu, en virtust þreytast er á leikinn leið og lémagna á endanum þeir sprungu. Hólmfríður Bjartmarsdóttir bætir við: Í knattspyrnunni komst á blað kvennaliðið stórgóða. Frægar urðu fyrir hvað flott þær sprengdu Kínverja. VÍSNAHORNIÐ Af fótbolta og gömlu fólki pebl@mbl.is kom ekki á óvart að sjá slíkt hjá húmoristanum Óskari Magnússyni, forstjóra Trygginga- miðstöðvarinnar. Ósk- ar flutti aðalfundar- gestum sínum nokkur sýnishorn af umsögn- um er viðskiptavinir TM höfðu sent félag- inu, flestar jákvæðar að sjálfsögðu. Óskar mátti til með að láta þessa fljóta með, sem Guð- mundur nokkur hafði sent félaginu: „Ég hef nú fengið margar léleg- ar jólagjafir í gegnum tíðina en það sem mér barst frá Tryggingamiðstöðinni núna fyrir jólin slær allt annað út. Eitthvert batterí í einhvern reyk- skynjara. Ég hefði nú haldið að þið gætuð verið frumlegri en það, þið hefðuð að minnsta kosti getað sent mér þrjú batterí þar sem ég er jú auðvitað með fleiri en einn reyk- skynjara.“ Skemmtileg ábending hjá Guð- mundi og minnir Víkverja á andann í jólalagatextanum Kæri Jóli. Hvað skyldi TM gefa um næstu jól? x x x Yfir í annað. Allt varð vitlaust ádögunum yfir meintri og boð- aðri klámráðstefnu hér á landi en hvað finnst femínistum, karlrembum og siðapostulum um auglýsingar Víf- ilfells á Coke Zero? Víkverja finnst nóg um klámyrði og mannfyrirlitn- ingu sem þar birtist. Núll og nix. Hlutafélög stór ogsmá halda aðal- fundi sína þessa dag- ana þar sem rekstur síðasta árs er gerður upp. Flest hafa félögin haft ástæðu til að gleðjast yfir góðri af- komu og hluthafar hafa getað gengið saddir af aðalfundum, með léttar veitingar í maga og góðar arðgreiðslur í hendi, sumir með troð- fulla vasa, og stigið upp í eðalvagna sína eða einkaþotur. Síðan eru aðalfundir haldnir þar sem engar eru arð- greiðslurnar og hluthafar geta að- eins glaðst yfir veitingunum. Til allrar hamingju á Víkverji ekki lengur eitt einasta hlutabréf og því laus við spennu eða áhyggjur af því hvort slík bréf skili einhverju í aðra hönd. Hefur Víkverji ekki enn jafnað sig á að hafa selt lítilræði í Búnaðar- bankanum á sínum tíma, skömmu fyrir einkavæðinguna, til að eiga fyr- ir lántökukostnaði við íbúðarkaup. Fengust skitnar 60 þúsund krónur út úr þeirri sölu. Hefði Víkverji hald- ið bréfunum og ætti nú í Kaupþingi, gæti hann selt sömu bréf á 15 millj- ónir króna! x x x Ræður á aðalfundum eru sjaldn-ast skemmtilegar, þar sem þuldar eru upp endalausar tölur og lofsyrði um eigið ágæti. Inn á milli er gamanyrðum laumað að og Víkverja       víkverji skrifar | vikverji@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.