Morgunblaðið - 20.03.2007, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 20.03.2007, Blaðsíða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ Sími - 564 0000Sími - 462 3500 Epic Movie kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 7 ára Epic Movie LÚXUS kl. 4, 6, 8 og 10 Norbit kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 The Number 23 kl. 8 og 10.15 B.i. 16 ára Ghost Rider kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 12 ára Anna og skapsveiflurnar m/ísl. tali kl. 4 og 4:45 STUTTMYND Night at the Museum kl. 3:30 og 5.40 Epic Movie kl. 6, 8 og 10 B.i. 7 ára Norbit kl. 6 og 8 Smokin´ Aces kl. 10 B.i. 16 ára - Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir JIM CARREY eee V.J.V. - TOP5.IS eee S.V. - MBL 700 kr fyrir fullorðna og 500 kr fyrir börn eeee K.H.H. - FBL eeee S.V. - MBL Hefur þú einhvern tímann gert mjög stór mistök? HÚN ER STÓR... VIÐ MÆLDUM UPPLIFÐU MYNDINA SEM FÉKK ENGIN ÓSKARSVERÐLAUN! eee SV, MBL eee VJV, TOPP5.IS 25. músíktilraunir hófust í gærkvöldi þegar níu hljómsveitir tókust á um sæti í úrslitunum 31. mars. Tilraunirnar fara fram í Loftkastalanum, en úrslitin verða haldin í Listasafni Reykjavíkur. Til mikils er að vinna í Músíktilraunum; sigursveitin fær 20 hljóðvers- tíma með hljóðmanni í Sundlauginni, annað sætið gefur 20 tíma með hljóðmanni í Stúdíó September og þriðja sætið 20 tíma með hljóðmanni í Sýrlandi. Athyglisverðasta hljómsveitin fær að launum framleiðslu á einu lagi hjá TÍMA. Fjörið hefst kl. 19 í kvöld líkt og önnur kvöld undanúrslitanna. Hljómsveitin Strengur Hljómsveitin Strengur kemur að norðan, er frá Akureyri, og spilar rokk/metal blöndu. Sveit- ina skipa Almar gítarleikari, Sölvi söngvari, Daníel trommu- leikari og Arnar bassaleikari. Þeir eru allir sextán nema Arn- ar sem er sautján. Vyð Reykjavíkurdúettinn Vyð er ekki nema mánaðargam- all eða þar um bil skipaður þeim Lárusi Jóni Björnssyni kassagítarleikara og söngvara og Huga Leifssyni trommuleikara. Þeir félagar eru báðir sextán ára og spilar tónlist í rólegri kantinum, einhverskonar indie- rock. Occasional Happyness Önnur Vestmannaeyjasveitin sem tekur þátt í tilraununum í kvöld heitir Occasional Happyness. Alexandra Sharon Róbertsdóttir, sem er líka í Primera, sér um hljómborðleiks og söng, Andri Fannar Val- geirsson leikur á gítar, Ingi Þór Þórarinsson leikur á trommur og Ingibjörg Sigurjónsdóttir á bassa. Þau eru fjórtán og fimmtán ára gömul. Spooky Jetson Spooky Jetson kemur af úr Kópavogi og Reykjavík. Hljóm- sveitarmenn eru Smári Sigurgrímsson trommuleikari, Ívar Björnsson gítarleikari, Jón Baldur Lorange gítarleikari og Ævar Örn Hermannson bassaleikari. Þeir eru á aldrinum fimmtán og sextán ára og spila blúsað rokk. Primera Stúkur eru í öllum hlutverkum í rokksveitinni Primera frá Vest- mannaeyjum. Þær Alexandra Sharon Róbertsdóttir hljómborðleik- ari og söngkona, Írena Dís Tórshamar gítarleikari og söngkona, Þóra Sigurjónsdóttir bassaleikari og Ingibjörg Sigurjónsdóttir trommuleikari. Þær eru á aldrinum fimmtán til sextán ára og á rokk.is segjast þær spila pjásupopp. Endless Dark Því dapurlega nafni Endless Dark heitir hljómsveit úr Ólafs- vík. Liesmenn hennar eru Atli Sigursveinsson gítarleikari, Hólmkell Leó Aðalsteinsson bassaleikari, Viktor Sig- ursveinsson söngvari, Daníel Hrafn Sigurðsson trommuleik- ari og Egill Sigursveinsson hljómborðsleikari. Þeir félagar eru á ýmsum aldri, frá fimmtán upp í nítján, og segjast spila gothic/rokk/metal tónlist. Hestreður Hestreður heitir hljómsveit frá Hellu. Sveitina skipa Tómas Steindórsson söngvari, Þráinn Þórisson bak- raddasöngvari, Róbert Ómarsson gítarleikari, Sindri Aron Þórsson bassaleikari og Árni Rúnar Kristjánsson, sem allir eru sextán ára. Hestreður ætlar að spila skemmtilegt pönk. Universal Politics Universal Politics heitir hljómsveit úr Kópavogi. Liðsmenn hennar eru Daði Rúnarsson gítarleikari, Gísli Grímsson gít- arleikari og söngvari, Gísli Sveinsson bassaleikari og Jón Kristófer Sturluson trommuleikari. Allir eru þeir félaar fimmtán ára og spila rokk. Stelpur rokka Músíktilraunum verður fram haldið í kvöld í Loftkastalanum. Árni Matthíasson kynnti sér hvaða tíu hljómsveitir keppa í kvöld og komst að því að meðal þeirra er ein kvennasveit. Monastereo Reykvíska sveitin Monastereo er skipuð þeim Sigurði Atla Sigurðssyni gítarleikara og söngvara, Arnari Sig- urðssyni gítarleikara, Sævari Má Óskarssyni trommu- og slagverksleikara og Herði Frey Harðarsyni bassa- leikara. Sigurður Atli og Hörður eru átján, Arnar fimmtán og Sævar sextán. Þeir segjast spila dúndur artí stöff. Oboi Oboi er úr Kópavogi og spilar fjöl- breytta tónlist. Liðsmenn heita Gísli Gunnar D. Guðmundsson, gít- arleikari og söngvari, Sveinn Ósk- ar Karlsson trommuleikari, Axel Birgisson gítarleikari, Örn Ágústs- son píanóleikari og Þorbergur Ingvi Kristjánsson bassaleikari.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.