Morgunblaðið - 20.03.2007, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 20.03.2007, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2007 33 Elsku tengdapabbi, ég vil kveðja þig með nokkrum orðum frá okkur Haraldi og börn- um á 60 ára afmælisdeginum þínum sem er í dag, 20. mars. Fjölskyldan mun halda upp á dag- inn og eflaust verður þú þá með okk- ur því helst lést þú þig ekki vanta í fjölskylduveislur. Yfirleitt gafstu þér ekki tíma til veislu á afmælisdegin- um þínum sem bar upp á 1. dag grá- sleppuvertíðar og varst þar af leið- andi að leggja net. Fyrir 10 árum, hinn 20. mars í 50 ára afmælinu þínu, sem var með þeim fyrstu skiptum sem ég hitti þig, sá ég strax hve ákveðin og heilsteypt persóna þú varst. Ófeiminn varstu við að segja þínar skoðanir og hélst fast við það sem þú ákvaðst og ætl- aðir þér. Sérstaklega var gaman að frásagnarhæfileikum þínum en þú komst fólki alltaf til að brosa eða hlæja. Þegar þið systkinin komuð saman var ekki annað hægt en að hlusta á ykkur en þar varst þú oft hrókur alls fagnaðar. Þegar þú veiktist fyrst, komst þú öllum á óvart með hve vel og fljótt þú náðir þér því á sjóinn varstu kominn um leið og þú varst fótafær. Þitt ein- kunnarorð var einmitt allt eða ekk- ert og fannst mér þetta vera þrjósk- an sem kom þér áfram. Þrátt fyrir þrautseigju og þrjósku tók Almættið í taumana og tók þig burt frá okkur alltof snemma. Þitt hlutverk í lífi okkar var mikið þar sem þið Haraldur höfðuð ekki aðeins sama áhugamál heldur stund- uðuð einnig sömu atvinnu sem voru sjórinn og fiskarnir, því voru sam- vistir ykkar miklar. Svo virðist sem þetta ætli að erfast til nafna þíns en hann hefur alltaf haft mikinn áhuga á bátunum þínum og hefur farið margar ferðirnar með þér. Ein ferð- in er mér minnisstæð en það var þeg- ar farið var á hákarlaveiðar. Þótti honum það mjög spennandi og var beðið með óþreyju eftir aflanum en vonbrigðin urðu mikil þegar í ljós kom að enginn hákarl hafði bitið á. Hann var þó sáttur við tyggjóið sem honum var gefið í staðinn.Hann situr oft með skipaskrána á baðherberg- inu og á þar langa stund með bókinni að skoða bátana og skipin. Það var yndislegt að sjá þig með barnabörn- unum þínum og virtust engin tak- mörk vera fyrir eftirlátseminni. Her- mann Björn talar mikið um þig og sagði strax að hann gæti alltaf séð þig í hjartanu sínu. Eins talar hann við þig ef illa gengur og biður þig að hjálpa sér því hann veit að þú ert núna engill sem passar hann. Þú varst yndislegur afi og finnst mér verst að yngsta barnabarnið þitt fái ekki að kynnast ást þinni og hlýju. Síðustu helgina sem þið voruð saman er mér minnisstæð því hann vildi engan annan kveðja með kossi en þig og man ég eftir hve mikið þú hlóst yfir því og trúi ég að þá hafi hann verið að kveðja þig. Minning þín mun lifa, á myndum, í tali og í hjörtum okkar. Við vonum innilega að þar sem þú ert, sé eins heillandi að vera eins og þér fannst á hafinu. Bryndís, Haraldur, Bjarney Rún, Hermann Björn, Birkir og Fannar Hólm. Það eitt mun ylja mér að vita af þér. Fylgir mér hvert sem er í hjarta mér (Brot úr texta eftir Birgittu Haukdal) Hermann Björn Haraldsson ✝ Hermann BjörnHaraldsson fæddist á Hamri í Fljótum 20. mars 1947. Hann lést á heimili sínu á Ak- ureyri 18. desember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Akureyrarkirkju 28. desember. Með sárum söknuði kveð ég elsku besta afa minn, Hermann afa. Ég var fyrsta barnabarn hans og það eina líka, í 7 ár. Ég fékk með honum 14 ár alls og öll þau ár með honum voru mér ómetanlegur tími. Mér finnst þetta ótrú- lega skrýtið og er enn ekki búin að átta mig á því að hann sé far- inn. Ég bíð bara eftir að hann komi úr Fljótunum til Akureyrar í heimsókn. Fljótin voru hans uppáhaldsstaður og ég held að það sé ekki hægt að lýsa því með orðum hversu mikið honum þótti vænt um þau og fannst alltaf best að vera þar. Hann hélst aldrei lengi á Akureyri, hinu heim- ilinu sínu og daginn sem hann lést var hann á leiðinni út í bíl til þess að keyra af stað í Fljótin. Í nóvember árið 2006 byrjuðu veikindi hans. Við amma flugum suð- ur til að vera hjá honum og styðja. Ég missti mikið úr skóla en afi skipti mig öllu máli og ekkert annað kom til greina en að ég yrði til staðar fyrir hann. Stubburinn, bangsinn minn sem var ætíð í uppáhaldi hjá okkur afa, gisti hjá honum á sjúkrahúsinu og passaði hann þegar ég gat ekki verið. Afi hugsaði alltaf voða vel um mig, auk þess sem hann leyfði mér flest- allt. T.d. fékk ég að fara í mjólkurbað þegar ég bað um það, þótt því miður muni ég ekki mikið eftir því. Hann vissi svo sannarlega hvernig var að vera ungur og langa til þess að gera hina ótrúlegustu hluti. Á öðrum jól- unum mínum skellti hann fullum Mackintosh-bauknum fyrir framan mig og leyfði mér að borða eins og ég vildi. Ef ég fengi illt í magann þá gæfi hann mér bara hákarl. Afa há- karl var bestur og hann var líka voða grobbinn yfir því hversu ung ég byrjaði að borða hann og það með bestu lyst. Afi var mikill nammigrís og ófá voru þau skiptin þegar ég var í heimsókn að hann segði ekki við mig: ,,Hvar ætli hún amma þín hafi falið nammið okkar núna?“ Og við vorum varla byrjuð að leita. Frásagnir hans voru líka alltaf vel kryddaðar með góðum húmor auk blótsyrða sem ég hafði mjög gaman af og var ekki ein um það. Oft á tíðum áttaði maður sig ekki á því hversu veikur hann var því alltaf var það harkan sex hjá honum og mikið spaug inni á milli. Eitt skiptið þegar ég var að fara frá honum spurði mamma hvort amma heyrði ekki alltaf eitthvað í honum og hann svaraði með stríðnisbros á vör og þessum orðum: ,,Jú, kerlingin hring- ir á hverju kvöldi til þess að athuga hvort ég sé ekki örugglega dauður.“ Afi og amma mættu á allar skóla- skemmtanir hjá mér og Hermanni Birni yngri og flestalla tónleika sem ég spilaði á. Hvar sem þau voru og hvernig sem viðraði, ef þau voru ekki upptekin við eitthvað annað. Síðasta skiptið sem ég hitti afa var þegar hann og amma mættu á tónleika 15. desember þegar við í Stúlknakór Ak- ureyrarkirkju sungum með Regínu Ósk. Eftir tónleikana vorum við að grínast með eitthvað eins og alltaf og vorum öll farin að fella tár með hlátr- inum eins og gerðist oft. Mér þótti og þykir enn ólýsanlega vænt um hvað hann gaf sér alltaf tíma fyrir litlu stelpuna sína, sýndi mér mikla ást og umhyggju og hvað við vorum náin. Lífið heldur áfram en það verður aldrei eins. Ég veit að afi hefði ekki viljað eyða elliárunum uppi á sjúkrahúsi veikur svo að kannski var þetta rétti tíminn þótt það sé alveg ósættanlegt. Sál hans er í Fljótunum núna og einn daginn, þegar lífi mínu hér er lokið, sé ég hann aftur og sú tilhugs- un gleður mig. Ég vil þakka öllum þeim sem studdu við bakið á mér og fjölskyldu minni og þá sérstaklega Söndru Lind, bestu frænku minni. Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum, hugsið ekki um dauðann með harmi eða ótta. Ég er svo nærri, að hvert eitt tár ykkar snertir mig og kvelur, þótt látinn mig haldið. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (Kahlil Gibran.) Bjarney Rún Haraldsdóttir. Ég man er ég hitti ykkur fyrst. Ó, hvað ég kveið fyrir; hvernig þið mynduð taka mér en sá kvíði var ástæðulaus. Þið tókuð mér eins og ég væri ykkar barn. Það er svo gott að koma til ykkar, þið takið alltaf vel á móti mér. Ef allir væru eins lánsamir og ég, þið eruð mér eins og aðrir foreldrar. Mér þykir afskaplega vænt um ykkur. Þessari lesningu ætlaði ég að lauma með í jólapakkann hjá fyrr- verandi tengdaforeldrum mínum um síðustu jól en 6 dögum fyrir jól lést Hermann Björn aðeins 59 ára gam- all. Ég var bara 16 ára þegar ég flutti til Akureyrar og inná heimili Her- manns, Hönnu og bræðranna Guð- mundar og Haraldar, en Haraldur var þá kærastinn minn. Það var mik- ið ævintýri fyrir sveitastúlku úr Skagafirði að flytja til Akureyrar og hvað þá að fá að búa hjá kærastanum sínum. Þó að þröngt væri í Háhlíð- inni fannst mér sambúðin hjá okkur öllum ganga ótrúlega vel. Hermann Björn var ekki mikið heima, stundaði sjóinn þá eins og hann var vanur þannig að ég kynntist honum ekki mikið fyrst. Ég var eiginlega bara pínu smeyk við hann og hélt í raun að honum litist ekkert á mig. En það átti nú heldur betur eftir að breytast þegar ég fór að kynnast Hermanni Birni betur og bak við þykka skráp- inn leyndist traust og yndisleg manneskja sem ég mun aldrei gleyma. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast honum vel og alltaf tókst honum að koma mér á óvart með góðmennsku sinni. Ég get þakkað honum fyrir svo margt. Þeg- ar ég var 17 ára og hafði rétt til að taka bílprófið ætlaði ég bara að bíða með það, Haraldur yrði 17 ára nokkrum mánuðum síðar og þá myndi hann bara keyra! Hermanni fannst það ekkert vit og sagði okkur að velja bíl sem hann skyldi lána okkur fyrir og við borguðum þegar við gætum. Það gerðum við og ég fór að keyra. Árið 1992 fæddist yndisleg dóttir okkar Haraldar hún Bjarney Rún, fyrsta barnabarn Hermanns og Hönnu. Það var skrýtið en ég hugs- aði um leið og ég vissi að þetta var stúlka: „Hvernig ætli Hermanni lít- ist á?“ Kannski hefði hann frekar viljað strák til að dúlla með en þetta voru nú óþarfa vangaveltur. Her- mann afi og Hanna amma voru mætt að líta á krílið einum og ½ tíma eftir að hún fæddist og þeirri stund mun ég seint gleyma. Bjarney Rún varð mjög fljótt náin afa sínum og ömmu enda samskiptin mikil við þau og það var svo gaman að fylgjast með hvernig Hermann Björn, þessi harði sjómaður sem blótaði oft svo mikið, breyttist í ljúfan afa sem skreið á gólfinu til að leika við barnabarnið. Oft voru þau búin að snúa öllu við í stofunni til að búa til hús til að skríða inn í og leika sér. Þolinmæði Hönnu ömmu var ótrúleg við dóttur mína því hún var líka alltaf sökuð um að hafa falið suðusúkkulaðið sem þau ætluðu að borða saman, en hún hló bara og hristi hausinn enda ýmsu vön með karlinum sínum. Hermann afi var nefnilega rosalegur nammigr- ís og Mackintosh og suðusúkkulaði var það besta og þetta fékk Bjarney fljótt að smakka. Ásamt hákarlinum sem hann gaf henni, sérstaklega ef hún fékk í magann. Já, Hermann var ótrúlegur maður, það var líka eitt- hvað svo hátíðlegt við hann og í kringum hann, sérstaklega þegar eitthvað stóð til. Hann hafði afskap- lega gaman að því að fara í veislur og á samkomur, sérstaklega sem tengd- ust ættingjum hans sem hann unni svo mikið og ekki lét hann sig vanta á skólaskemmtanir eða tónleika sem Bjarney Rún var þátttakandi í. Skiptu vegalengdir hann engu máli. Það var líka svo gaman að heim- sækja Hermann Björn og sérstak- lega í hans fögru Vík í Fljótunum þar sem að hans sögn var hvergi betra að vera. Og svei mér þá ef mér var ekki bara farið að líka vel þar, enda var maður nú búin að dvelja þar nokkrar stundirnar. Þó að leiðir okkar Haraldar hafi skilið þegar Bjarney Rún var 4 ára, var ég svo heppin að samskiptin við Hermann Björn og Hönnu voru allt- af mjög góð og það lýsir því kannski best hvaða manneskjur þau höfðu að geyma. Og þegar mig og fjölskyldu mína vantaði húsnæði í 2 mánuði sumarið 2005, buðu þau okkur að flytja inná heimili þeirra í Urðagili á Akureyri. Betra gat ekki komið fyrir mig meðan ég var að átta mig á nýju umhverfi og boð þeirra var einstakt. Mikið á ég eftir að sakna Her- manns Björns og samverustundanna með honum en ég er samt svo þakk- lát fyrir að hafa átt sérstaklega góð- ar stundir síðasta árið með honum og Hönnu, því Bjarney Rún vék ekki langt frá afa sínum í veikindum hans. Minningarnar um Hermann Björn munu fylgja okkur um alla tíð og styrkja okkur öll í söknuðinum um manninn sem var kletturinn í lífi svo margra. ,,Ekki fylgja stígnum þangað sem hann liggur. Farðu heldur leiðina sem enginn stígur liggur um og skildu eftir slóð“. Með þessum orðum, sem mér finnst hafa átt svo vel við Hermann Björn, kveð ég hann og votta stór- fjölskyldu hans samúð mína. Anna Birna Sæmundsdóttir. Ég sakna þín afi og mér þyk- ir leitt að þú sért dáinn. Pabbi saknar þín líka. Amma er núna bara ein í húsinu og hún þarf að gera margt fyrir þig. Ég get ekki séð þig leng- ur en get haft þig í hjartanu. Ég elska þig afi minn. Hermann Björn. HINSTA KVEÐJAPeggí hafa án vafa fagnað þér mjög vel enda mátti hver sem komst í návist við þig þakka fyrir þá stund, því það var alltaf svo gott að vera hjá þér. Uppáhaldsbænin mín hefur allt- af verið þessi og vil ég hafa hana með: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Presthólum) Skömmu áður en ég fór út kom ég til þín og sagði þér að ég hefði verið að skoða myndir úr afmæli mömmu þar sem þú leist út eins og sú drottning sem þú ert, í bláa satínkjólnum sem klæddi þig svo vel, enda blár okkar uppáhalds- litur. Þú varst ansi hógvær þrátt fyrir hrósið enda ekki kona sem stærir sig af hlutunum, þó svo að þú hafir afrekað það sem svo margur sæi sér ekki fært. Ég á virkilega eftir að sakna stunda okkur saman, og sagna þinna frá uppvaxtarárum þínum, en aldrei fékk ég nóg af að hlusta á þær enda varst þú svo góð sögu- manneskja að maður gleymdi sér. Þegar þú varst að lesa fyrir okkur barnabörnin skáldsögur gast þú alltaf gætt þær svo miklu lífi að við vorum sjálf orðin að persónum í sögunni. Ég get staðið stolt upp og sagt öllum hversu æðislega og góða ömmu ég átti og á enn í huga mínum og hjarta. Elsku amma mín, það versta sem ég veit er að geta ekki verið með fjölskyldu okkar og kvatt þig en þú veist samt að ég er búin að tala við þig á hverju kvöldi og biðja með þér og það ætla ég mér að gera það sem eftir er af minni ævi. Við áttum góða stund saman áð- ur en ég hélt utan sem ég mun varðveita ásamt öllum okkar stundum eins og demant í hjarta mínu. Mig langar að senda heim styrk með orðum sem hafa hjálpað mér mikið á þessum erfiðu tímum. Þó þung séu oft sporin á lífsins leið, og ljósið svo skelfing lítið, skaltu eiga þér von sem þinn vin í neyð, það virkar, en virðist skrýtið. Því vonin hún vinnur gegn myrkri og kvíða, og veitir þér styrk sinn, í stormi og byl. Sjá ljósið mun stækka, og þess skammt er að bíða, að sólskinið sjáir, ég veit það er til. (SHL) Ég sakna ykkar allra og vildi að ég gæti verið með ykkur. Elsku amma mín, líf mitt mun aldrei verða samt án þín, ég mun sakna þín alla mína daga og hlakka til að hitta þig aftur. Elsku amma mín, hvíldu í friði. Ég læt jákvæðni þína og góðmennsku verða mitt leiðarljós í lífi mínu. Takk fyrir allt. Þín dótturdóttir, Inga Kristín. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. Elsku amma Sallý, mikið á ég eftir að sakna þess að koma niður í Efstó því að það var ómissandi hluti af tilverunni, að setjast niður með þér og spjalla yfir kaffibolla og ræða skemmtileg málefni og gamlar minningar, en nú ertu komin til afa Gumma og ég efa það ekki að þar verður um margt að spjalla og rifja upp enda samein- aðar á ný tvær manneskjur gerðar úr gulli. Lokka safnið ljósgult er líkast humli á víði, hún Salvör litla sýnist mér systkinanna prýði. Hvíl þú í friði, elsku amma mín. Jakob Viðar Grétarsson.  Fleiri minningargreinar um Sal- vöru Jakobsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Snorri Arn- arson, og Soffía, Anna María, Jór- unn, Berta, Svana, Gummi og fjöl- skyldur. Englasteinar Helluhrauni 10 Sími 565 2566 - www.englasteinar.is Fallegir legsteinar á góðu verði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.