Morgunblaðið - 12.04.2007, Page 22

Morgunblaðið - 12.04.2007, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING 30 BRÉF og símskeyti sem banda- ríski rithöfundurinn Ernest Hem- ingway og þýska söng- og leikkonan Marlene Dietrich sendu hvort öðru hafa nú verið dregin fram í dagsljósið. Má úr þeim glögglega lesa að þau voru ást- fangin. Hem- ingway kallar Dietrich „dóttur“ og „litla Þjóðverj- ann“ sinn. Dietrich kallar hann „pabba“ eða „Papa“ en Hemingway gekk oft undir því gælunafni þegar hann bjó á Kúbu. Dóttir Dietrich, Maria Riva, veitti nýverið leyfi fyrir því að bréfin yrðu birt. Þau hafa verið í geymslu í Kennedy-bókasafninu í Boston í 15 ár, eða allt frá því Dietrich lést. Of heitt til að njóta ásta „Ósamrýmd ástríða“ kom í veg fyrir að þau gætu notið ásta, eins og Hemingway orðar það. Dietrich og Hemingway urðu ástfangin þegar þau hittust um borð í frönsku far- þegaskipi árið 1934. Í einu bréfa sinna til Dietrich seg- ist Hemingway elska hana, halda henni fast upp að sér og kyssa hana af áfergju. Í öðru bréfi frá þeim tíma er hann var að skrifa „Gamla manninn og hafið“, árið 1951, segir hann Dietrich að of heitt sé á Kúbu til að njóta ásta nema þá í vatni. Hann hafi hins veg- ar aldrei verið góður í því. Dietrich segir frá því í bréfi til Hemingway að hún hugsi um hann öllum stundum og hafi hengt upp mynd af honum í svefnherbergi sínu sem hún horfi á hjálparvana. Hemingway þjáðist af þunglyndi allt sitt líf og ræða þau Dietrich um það í bréfunum. Hemingway segir þau bæði eiga erfitt líf að baki. „Ég á ekki bara við stríð. Stríð eru spínat. Daglegt líf er það erfiðasta,“ skrifar Hemingway. Til stendur að gefa út bréf Hemingway og Dietrich á bók. Sendu ástarbréf Hemingway elskaði Dietrich Marlene Dietrich JÓEL Pálsson saxófónleikari mætir með hljómsveit sína í Jazzklúbbinn Múlann í kvöld. Leikin verður tónlist af nýj- ustu plötu Jóels,Varp. Hljómsveitina skipa: Jóel Pálsson saxófónn og kontra- bassaklarinett, Davíð Þór Jónsson Hammond-orgel og píanó, Hilmar Jensson raf- og kassagítar, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson kontra- og raf- bassi og Matthías Hemstock trommusett, slag- verk og trommuheili Tónleikar Múlans eru sem fyrr á DOMO bar, Þingholtsstræti 5, og hefjast kl. 21. Djass Jóel Pálsson á Múlanum Jóel Pálsson tónlistarmaður. Í KVÖLD, fimmtudaginn 12. apríl, munu Oddný Sigurðar- dóttir mezzósópransöngkona og Krystyna Cortes píanóleik- ari verða með ljóðatónleika í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju í Garðabæ. Þar flytja þær hinn þekkta og rómantíska ljóðaflokk Frauen-Liebe und Leben eftir Robert Schumann, en einnig sönglög eftir Sigvalda Kalda- lóns, Franz Schubert, Karl Ottó Runólfsson og Edvard Grieg. Tónleikarnir í Vídalínskirkju hefjast kl. 20 og er miðaverð 1.500 kr. Tónleikar Ljóðatónleikar í Vídalínskirkju Oddný Sigurðardóttir TÓNLEIKASKEMMTUNIN Kvöldið er okkar með söngkon- una vinsælu Helenu Eyjólfs- dóttur í fararbroddi verður í Sjallanum á Akureyri annað kvöld og aftur föstudags- kvöldið 20. apríl. Örfá sæti eru enn laus bæði kvöldin. Húsið verður opnað fyrir sýningargestum kl. 19.30. Eftir sýninguna kl. 23.30 verð- ur húsið opnað fyrir öllum, þá verður ball með hljómsveit hússins ásamt Helenu og Þorvaldi Halldórssyni. Þar kostar 800 kr. inn. Nú er um að gera fyrir norðanmenn að dusta rykið af dansskónum og rifja upp gamla takta. Tónleikar Kvöldið er okkar í Sjallanum Helena Eyjólfs- dóttir söngkona. MYNDLISTARMAÐURINN Hreinn Friðfinnsson verður með sýningu á verkum sínum í hinu virta Serpentine Gall- ery í Hyde Park í Lundúnum í júlí. Hreinn er nú í óða önn að velja verk á sýn- inguna hér á landi. Verkin munu spanna allan lista- mannsferil Hreins, samkvæmt upplýsingum frá i8 galleríi sem selur verk Hreins á Íslandi. Hugmyndalistin í öndvegi Hreinn á að baki langan og fjöl- breyttan feril, var einn stofnenda og meðlima SÚM-hreyfingarinnar og sýningarsalar hennar. Hreinn vann undir áhrifum hugmyndalistar á 8. áratugnum, skeytti saman ljós- myndir og texta meðal annars en hefur síðan unnið í fleiri miðla með blandaðri tækni. Myndlist Hreins hefur jafnan verið skilgreind sem ljóðræn hug- myndalist, eða „ljóðræn, innileg og heimspekileg könnunarferð um hverfula hversdagstilveru,“ að því er segir á vef Listasafns Íslands. Verk Hreins þykja ekki aðeins höfða til hins sjónræna heldur einn- ig örva hugmyndaflug áhorfenda og vísa til minninga. Serpentine er eitt af þekktari list- húsum Lundúna og hafa þar margir heimsþekktir myndlistarmenn hald- ið þar sýningar, meðal annars Dam- ien Hirst, Andy Warhol og Henry Moore. Auk þess eru þar haldin námskeið og fyrirlestrar um list. Listhúsið er í gömlum skála sem áður var notaður til tedrykkju og dregur nafn sitt af Serpentine- tjörninni. Sýnir í Serpentine Verk Hreins Friðfinnssonar í einu þekktasta sýningarhúsi Lundúna Morgunblaðið/Einar Falur Gamall SÚM-ari Eitt af verkum Hreins Friðfinnssonar, Blákoman. Í HNOTSKURN »Hreinn Friðfinnsson fæddist íDölum árið 1943. Hann býr og starfar í Amsterdam. »Hreinn var einn stofnendaSÚM-samtakanna árið 1965. Þau voru stofnuð til uppreisnar gegn þeirri myndlist sem ríkjandi var hér á landi á þeim tíma. »Serpentine listhúsið legguráherslu á nútíma- og sam- tímamyndlist. Hreinn Friðfinnsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.