Andvari

Volume

Andvari - 01.06.1959, Page 23

Andvari - 01.06.1959, Page 23
andvari BIBLÍAN, KIRKJAN OG VÍSINDIN 21 nema þá helzt vorri samtíð, á tímum byltinga og gagnbyltinga og trúarbragða- styrjalda. Brúnó er píslarvottur, en það er allt um það næsta bæpið að telja hann meðal píslarvotta vísindanna. Hann var ekki dæmdur af lífi fyrir fylgi sitt við kenningu Kopernikusar. Hann var ekki heldur dæmdur fyrir að halda því fram, að rúmið, geimurinn, sé án takmarka. Enda var kennifaðir hans í því efni rómversk-kaþólskur kardínáli og mikill kirkjuhöfðingi, Kúsanus (Niku- lás frá Kues), sem fæddist 200 árum fyrir dauða Brúnós. Rit Kúsanuss, De docta ignorantia, hafði úrslitaáhrif á heimsmynd Brúnós. Kúsanus hélt því fram, að alheimurinn sé óendanleg kúla, eins og ýmsir nútímamenn liafa látið sér detta í hug. Þó að því fari fjarri, að þessir málavextir mæli bót þeim glæp, sem aftaka Brúnós var, þá er ekki sanngjarnt að þeir liggi í þagnargildi, svo mjög sem afturganga þessa manns og dómara hans liefur verið mögnuð á hendur kirkjunni öldum saman. Það þarf heldur ekki að liggja í þagnargildi, að Kopernikus, hinn mikli stjamfræðingur, sem leiddi rök að því, að jörð snúist um sólu, var prestur, og að Kepler, sem á heiðurinn af því að hafa sannað þessa kenningu til hlítar, var guðfræðingur og einlægur, evangelískur trú- maður. Það hefur verið bent á það með góðum rökum, að hinn eiginlegi renessance-maður, hinn glaði heimsmaður, sem hafnaði guðstrúnni og vildi leita allrar fullnægju í þessum heimi og hinu jarðneska lífi, lagði ekki öðrum meira, nema síður væri, í bú vísindanna á því leysingar- og gróskuskeiði, sem nefnt er renessance- eða endurvakningartími og talið upphaf nýju aldar og endalok miðalda. Þetta er í rauninni ekkert undarlegt og engin tilviljun. Sá, sem veit og játar með Biblíunni, að „himnarnir segja frá Guðs dýrð og fest- ingin kunngjörir verkin hans handa“ og hvert náttúrlegt fyrirbæri í tíma og rúmi vitnar um hans speki, tign og mátt, er opnari fyrir undri náttúrunnar en hinn, sem trúir því ekki, að gátur hennar séu settar saman af neinu æðra viti. VI. Hitt er að sjálfsögðu söguleg staðreynd, sem engum tjóar í móti að mæla og enginn andmælir, að Biblíunni hefur verið beitt í umræðum um náttúrufræðileg viðfangsefni á þann veg, að hvorugu var til ábata, trúnni eða vísindunum. Og það gerist einatt enn, að Biblían sé kvödd til vitnis um slík efni, ófyrirsynju. Ekkert er tíðara en að vitnað sé t. d. í sköpunarsögur 1. Mósebókar á þann veg, að gefið sé í skyn, að þar liggi fyrir sú náttúmfræði í öllum grundvallaratriðum, sem kristnum mönnum sé eðlilegast eða skylt að aðhyllast. I alþýðlegunr ritum og erindunr um skoðanir nútímavísinda á upp- runa mannsins í náttúrufræðilegum skilningi, eða um þróunarkenninguna, er
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.