Vikan

Tölublað

Vikan - 09.01.1975, Blaðsíða 44

Vikan - 09.01.1975, Blaðsíða 44
lifað án þin!” Nú þræta þau um, hvort hafi umráðarétt yfir drauma- barninu, dótturinni Chiara. Dapurleg mynd frá síðustu ástardögunum. Stuttu eftir að þessi mynd var tekin, voru gleymd að fúllu og öllu orð Mastrioannis: ,,6g get ekki Þeim var ekki skapað nema skilja Ástarævintýri Catherine Deneuve, sem margir telja fegurstu konu heims, og Marcello Mastrioannis er lokið. Catherine hélt sig hafa fundið þann eina rétta, þar sem Mastrioanni var, en hún gætti ekki tungu sinnar við frumsýningu á kvikmynd, sem hann lék i. Og ást þeirra stóðst ekki svigurmæli leikkon- unnar. Astarævintýri Marcellos Mastrioannis eru fleiri en tölu verður á komiö. Sennilega hefur hann ekki hugmynd um,- hvað orðið tryggð merkir. Að minnsta kosti litur ekki út fyrir það. Hann á auðvelt með að elska tvær kon- ur samtimis — eiginkonu sina og astmey, hver svo sem hún er í það og það sinnið. Flora, kona Marcellos, hefur yfirleitt látiö ástarævintýri manns sfns sér i léttu rúmi liggja. Hún veit, að yfirleítt hrifst hann af stúlkunum, sem hann leikur á möti i kvikmyndum, og þegar kvikmyndatökunni lýkur, gleym- irhann þeim og kemur til hennar aftur. En tvisvar sinnum hefur henni þótt ástandið iskyggilegt. 1 hið fyrra sinnið, þegar bandariska ieikkonan Faye Dunaway lék á móti Marcello árið 1968 og hún varð vinkona hans þrjú næstu ár- in En þegar Dunway litla vildi fá Mastrioanni til að kvænast sér, neitaði hann. Þá hefði hann orðið að skilja við Floru, og það gat hann ekki hugsað sér. Og Faye Dunaway, sem var að leita sér að eiginmanni, komst að raun um, að Mastrioanni væri ekki sá rétti. Hún lét hann sigla sinn sjó og gift- ist nokkru seinna landa sinum. En Marcello var ekki lengi að finna næstu draumadis. Nú var það engin önnur en Catherine Deneuve. „Hún er fullkomin kona,” sagði hann stuttu eftir að þau fóru að vinna saman að kvik- mynd, „ástriðufull og greind, við- kvæm og alltaf leyndardómsfull. Þannig vil ég hafa konur.” Þegar Catherine kynntist Mastrioanni, hafði hún viðburða- rikt ástarævintýri að baki. Hún bjó lengi með Roger Vadim, sem uppgötvaði hana, og með honum eignaðist hún son. Seinna var hún skamma hrið gift enska ljós- myndaranum Bailey og þar á eft- ir hafði hún allnáin kynni af franska leikstjórnanum Francois Truffaut. Ast Catherine dró Marcello út úr húsi sinu i Róm I leiguibúö i Paris. Ári seinna ól Catherine honum dóttur. Þau gáfu henni nafnið Chiara, „hin bjarta”. Hamingjan virtist fullkomin. En svo dundu ósköpin 'yfir. Catherine litillækkaöi Marcello opinberlega viö frumsýningu á myndinni Atið mikla, sem hann lék i. Hún sagði hlutverk hans vera viðbjóðslegt og alla myndina eitt „svinari”. Marcello brást reiður við og flaug til New York. Þegar hann kom aftur til Evrópu, var hans fyrsta verk að leita til lögfræðings og fá hjá hon- um ráðleggingar um, hvernig hann gæti fengið umráðarétt yfir dóttur sinni, þó að hann sliti sam- bandinu við Catherine, Catherine komst strax að ráðabrugginu og sagði blátt áfram: „Hann fær aldrei barnið mitt. Ekki nema hann kvænist mér.” Þetta var nýr tónn i leikkon- unni. Til þessa hafði hún sagt: „Ég er ekki svo vitlaus, að ég giftist feðrum barna minna!” En Marcello hafnaði enn skilnaði. Og þar með var ástasambandi þeirra Catherine lokið. Siðustu mánuðina sina saman bjuggu þau i lítilii tveggja her- bergja ibúð i Róm, én þaðan flýtti Catherine sér nú og hélt aftur til Parisar. Hún leitaöi haíds og trausts hjá vinum sinum og þeir hjálpuðu henni yfir mestu sorg- ina. Siðan hellti hún sér út i vinnu og hefur nær lokið við að leika i þrerriur kvikmyndum hverri af annarri. En Marcello sneri aftur heim til konunnar sinnar i húsinu við Via Áppia, og hann hefur Chara litlu hjá sér, þrátt fyrir stófyröi Deneuve. Hann hefur fengið barninu lifvörð, þvi aö hótaö hef- ur verið að ræna þvi. Marcello jafnaði sig furöu fljótt á endalok- um ástarinnar á .Catherine, enda fór hann fljótt að leika á móti Sophiu Loren og fleiri fögrum konum. 44 VIKAN 2. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.