Vikan - 21.10.1993, Blaðsíða 36
UPPELDI
FORELDRA
HLUTVERK
ÞÝÐING: BENNÝ ^oreldrah'utverkíö er
, , ■■ krefjandi starf sem krefst
SIF ISLEIFSDOTTIR ■ tíma, þolinmæði, alúðar
og nærgætni, jafnvel fórna. Sé
starfinu sinnt af þeirri natni
sem það á skilið verður út-
koman eins góð og hún gat
orðið.
Hér fara á eftir nokkrar á-
bendingar til foreldra sem
vilja auka hæfni sína í þessu
starfi.
TREYSTIÐ ÞEIM
Sjö til átta ára gömul börn
skilja samband orsakar og af-
leiðingar. í kringum þann aldur
er æskilegt að foreldrar slaki
aðeins á taumnum og treysti
börnunum fyrir næsta húshorn,
leyfi þeim að takast á við á-
kveðin verkefni eða viðvik, svo
sem sendiferð út í búð. Ef
barnið leysir verkið af hendi
eins og fyrir það var lagt - eyð-
ir ekki afgangnum og kemur
beint heim - á það skilið hrós
og smám saman má treysta
því til stórvægilegri verka.
Ef barnið hins vegar bregst
traustinu verður að taka á því
af festu. Það verður að ræða
við barnið, hlusta á skýringu
þess - af hverju eyddi það af-
gangnum, af hverju kom það
ekki beint heim? - refsa því á
viðeigandi hátt. Seinna verður
að leyfa því að reyna aftur og
athuga hvort ekki gengur bet-
ur þá.
BYGGIÐ UPP
SJÁLFSTRAUST
Þau börn og unglingar sem
hafa ríkulegt sjálfstraust eru
ólíklegri en önnur tii að láta
undan félagaþrýstingi. Þrýst-
36 VIKAN 21.TBL. 1993