Menntamál - 01.06.1950, Blaðsíða 64
126
MENNTAMÁL
ræktunarmannsins. Sjálfsagt hefur oft reynt á þolinmæði
Kristjáns á þessari 40 ára varðstöðu í kennslustofunni,
og kannske hefur hún stundum brugðizt, eins og hjá okk-
ur hinum, sem styttri starfsdag eigum þó að baki, en
drengskapur hans brást aldrei, því að hjartað var gott,
sem undir sló. Og Kristján hefur alltaf vaxið af verkum
sínum, bæði sem kennari og bóndi.
Kristján var fríður maður sýnum, hafði óvenjulega
fágaða og prúðmannlega framkomu. Hann var glaðlynd-
ur, söngelskur og eitthvað bjart og hlýtt var við fram-
komu hans alla. Hann var lengi í söngfélaginu Heklu og
fór með henni í Noregsförina frægu. Seinna starfaði hann
mörg ár í Karlakórnum Geysi. Þá tók hann um skeið all-
mikinn þátt í störfum Ungmennafélags Akureyrar og
Góðtemplarareglunnar. Hann stofnaði sjálfur Ungmenna-
félag heima í sveit sinni og var lengi formaður þess. Lengi
var hann í hreppsnefnd Glæsibæjarhrepps og stofnaði
Landþurkunarfélag Glæsibæjarhrepps árið 1942 og var
formaður þess. 1 stjórn Kaupfélags Eyfirðinga hefur
hann verið síðan árið 1928, var einn af aðalhvatamönn-
um að stofnun Mjólkursamlags Kaupfélags Eyfirðinga og
samvinnumaður var hann í húð og hár.
Þá var hann um langt skeið í stjórn Kennarafélags
Eyjafjarðar, og öllum þessum störfum hefur hann gegnt
af skyldurækni og þegnskap.
Börn þeirra hjóna eru: Gunnar, bóndi á Dagverðareyri,
Rannveig, stúdent og húsmæðrakennari, gift Peter Hall-
berg, lektor í Gautaborg, Kristín, efnafræðingur í Reykja-
vík, Eggert lögfræðingur og Guðrún gagnfræðingur, gift
í Reykjavík.
Síðla sumars 1944 féll Kristján af hestbaki og meidd-
ist svo alvarlega, að hann hefur aldrei gengið heill til
skógar síðan. Á síðastliðnum vetri fékk hann svo mænu-
veikina, sem dró mjög úr starfsorku hans. Ekki mátti
hann þó til þess hugsa að hætta að starfa. öll hans ?evi