Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1918, Side 24

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1918, Side 24
182 Gunnar Gunnarsson: (IÐUNK — og gjöfult — og nærgætið — vitandi alt í sak- leysi sínu, fyrirgeíandi alt. En þannig gat að eins hún brosað. Það var þetta bros, sem vakti elsku hans til hennar frá því er hann sá hana fyrsta sinni. Það bros hafði gert hana nálega að guðdómlegri veru í hans augum, — hans, er engan annan guð- dóm átti, dirfðist ekki að eiga neinn annan guð- dóm, með því að hann kveið því, að rýra með því gildi sálar sinnar. Það bros liafði liann tilbeðið af fúsu geði. Því að það var guðdómlegt — guðdóm- legt í sínu alskæra sakleysi, guðdómlegt í sinni fyr- irgefandi nærgætni. En hvað hún hafði auðgað líf hans — af því að hún var í svo eðlilegri samhljóð- an við all gott og fagurt í lííinu; af því að hún var sjálf góð og fögur. Og hún, sem álli þetta bros — hvernig gat hún dáið? .... Hvernig getur mann- leg vera, er geymir óendanleikann í sálu sinni, dáið? — Það var óskiljanlegt — óskiljanlegt....... Af hverju ertu að gráta, pabbi? Ég er ekki að gráta, drengur minn. En hvað lífið var þó miskunnarlaust.........Og hvað hún liefði brosað fallega og hlýlega, ef hún hefði heyrt þau orð. Brosað, svo að Ijómað hefði af andlitinu og augun talað ástarmáli, og et til vildi, hefði hún snortið hann þýðri hendi sinni, ofurhægt — og um leið, án þess að mæla orð, en þó fyllilega sannfærandi, komið honum í skilning um, að það væri bara lokleysa, er hann hefði farið með. Og hann mundi þegar hafa látið sér skiljast það — skiljast, án þess að verða fyrir auðmýkingu, að sér hefði skjátlast. — Og hann skildi það. — — Ja, skildi hann það nú í rauninni? Skildi hann, í ljósi endurminningarinnar um bros liennar, að liíið væri ekki miskunnarlaust? Iiann, sem stóð þarna uppi

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.