Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1918, Page 42

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1918, Page 42
200 Alexander Kerensky. IIÐUNN bæði andlega og líkamlega. En ekki bar á öðru, en að honum tækist þetta, og stappaði bann svo stálinu í herinn á ferð þessari, að liann vann stórsigra hvern á fætur öðrum rétt á eflir. Hvar sem Kerensky kom á ferð þessari, hvort heldur í borgir eða bæi, í fylkingarbrjóst eða að baki herJínunni, var honum alstaðar tekið sem sverði og skildi, sem hinni »einu von« liins endur- borna Rússlands. Þessi fölleiti maður með liinu draumlynda augnaráði virtist liafa eitthvert það töframagn til að bera, er hreif jafnt liugi karla og kvenna. Ein einasta af þessum eldlegu ræðum bans, full af hjartnæmum hvatningarorðum, virtist nægja til þess að koma á bæði aga og fórnfýsi í liverri herdeildinni á fætur annari. Og nokkrum dögum eflir að hann var kominn heim úr ferð þessari, unnu Rússar sigrana miklu í Galicíu, • fyrstu sigra byltingahersins rússneska. Alt var þetta að þakka hinum siðterðilegu áhrifum af ræðum Kerensky’s, en varð jafnframl, eins og síðar kom í ljós, sorg- legur vottur þess, hversu lílt treystandi slíkum stundaráhrifum er til þess að varðveita agann í heilum þjóðarher um lengri tíma; því að siðan hafa Rússar, eins og kunnugt er, farið hverja hrakl'örina á fætur annari, enda nú farið að sækja í sama horf sljórnleysis og agaleysis.- Sé unt að saka Kerensky um nokkuð, þá væri það helzt það, að hann treysti of mjög á þessi sið- ferðilegu álirif sín til þess að sigrast á öllum þeim stjórnleysisanda og byltingar, sem verið hefir að verki þar í landi, síðan stjórnarbyltingin hófst. Vissu- lega voru hin persónulegu áhrif hans sjálfs svo mikil, að hann hafði ástæðu til að trúa þessu. Má sem dæmi þess nefna eill sannsögulegt atvik úr þessari ferð hans. Einhverju sinni, er Kerensky var staddur í fylk-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.