Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1918, Page 50

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1918, Page 50
208 Ágúst H. Bjarnason: | IÐUNN guli feber, hundaæðið, munn- og ldaufasýki naut- gripa og fleiri sjúkdómar á jurtum og dýrum sóll- kveikju-sjúkdómar, þótt enn hafi ekki tekist að íinna sóttkveikjurnar, að líkindum vegna þess, hversu litlar þær séu og því ekki sjáanlegar í smásjám. Nú hefir þó tekist að finna margar af þessum ósýnilegu smá- verum í úllra-smásjánni, og þar á meðal að öllum líkindum sóltkveikju klaufasýkinnar. Það er því mjög líklegt, að til séu svo smá lífsfrjó, að geisla- þrýstingur sólar geti borið þau um geiminn, þannig að þau geti kveikt líf á jarðstjörnum, sem geta boðið þeim hæfileg þróunarskilyrði. Við skulum nú reyna að gera okkur reikningslega grein lyrir, hvernig slílc- um lífsfrjóum mundi farnast, er fyrir geislaþrýsting sólarinnar bærust frá jörð vorri út í geiminn. Slikt lífsfrjó myndi fyrst fara yfir farhraut Marzstjörn- unnar, því næst yfir farbrautir smástirnanna og hinna fjarlægari reikistjarna, og er það loks færi fram lijá yztu reikisljörnunni, Neptúnusi, mundi það halda áfram út um ómælisgeiminn til annara sól- kerfa. Nú er ekki eríitt að reikna út tímann. sem fljótustu smálíkamirnir mundu þurfa til þessarar ferðar. Segi menn, að eðlisþyngd þeirra sé sama og eðlisþyngd vatnsins, en það mun láta mjög nærri, þá ná þeir Marzbrautinni eftir 20 dægur, Júpiter- brautinni eflir 80 dægur og Neptúnsbrautinni eftir 14 mánuði. En til næsta sólkeríisins, Alpha Cen- tauri, mundu þeir ekki komasl fyrri en eftir 9000 ár. Nú eru tímar þeir, sem lífsfrjóin þyrftu til þess að ná til hinna mismunandi jarðstjarna í sólkerfi voru ekki svo langir, að þau gætu ekki haldið frjómagni sínu. Miklu minni líkur eru aftur til þess, að þau gætu haldið frjómagni sínu um þær þúsundir ára, sem þau þyrftu til þess að komast frá einu sólkerf- inu til annars. En eins og sýnt skal síðar, hefir hinn mikli kuldi (eitlhvað um h- 220° C), sem ríkir

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.