Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1918, Page 51

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1918, Page 51
IÐUNN] Heimsmyndin nýja. 209 1 þessum hlutum himingeimsins, þa& í för með sér, að allar efnabreytingar lífsfrjósins hælla því sem næst alveg, og þá einnig efnabreyting sú, sem hefir tortímingu frjómagnsins í för með sér. Um viðhald frjóinagnsins í venjulegu loftslagi var það oft fullyrt hér áður, að hveitikorn, sem legið úefðu í egypzkum gröfum um þúsundir ára, gælu enn farið að spíra. En nú hafa nánari athuganir sýnt, að skýrslur Arabanna um, hvar hveitikorn þessi fundust, voru mjög svo varhugaverðar. Franskur Uæðimaður, Baudoin, hefir einnig skýrt frá því, að fundist hafi í rómverskum gröfum, sem ekki hafi verið opnaðar i 1800 ár, sóttkveikjur, sem gátu auk- 'st og margfaldast. En ef til vill ber einnig að taka þessari tilkynningu ineð hæfilegri varúð. Og þó er það víst, að bæði frækorn af sumum æðri plöntum, svo og biðgrór sumra sóttkveikna, eins og t. d. niiltisbrands-sóttkveikjunnar, gela varðveitt frjómagn sitt um mörg — eitthvað um 20 — ár, eða með öðrum orðum um lengri tíma en þann, sem þær þyrftu til þess að berast til hinna fjarlægustu hnatta í sóllceríi voru. A leiðinni frá jörð vorri til annara hnatta inundi nú lífsfrjóið verða fyrir sterku sólskini svo sein mán- aðartíma; en nú hefir verið sýnt og sannað, að hinir tjólubláu geislar sólarljóssins drepa sóttkveikjur og Hfsfrjó þeirra á tiltölulega stuttuin tíma. En tilraun- nni, sem hafa verið gerðar með þetta, hefir jafnað- arlegast verið hagað þannig, að lífsfrjóin hafa verið höfð í raka eða vatni. En þetta samsvarar nú alls ekki þeim skilyrðum, sem lífsfrjóin verða fyrir, er þau berast hnatta í milli. Auk þessa hefir Roux s5'nt fram á það, að miltisbrandsfrjó, sem óðar drep- ast í sólarljósi, ef loftið leikur um þau, geta lialdið hfi, ef loftið kemst ekki að þeim. Og mörgum lífs- hjóum grandar sólarljósið lítið eða ekki neitt. Þetla Iðunn III. 14

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.