Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1918, Page 63

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1918, Page 63
IÐUNN1 Lííið cr dásamlegl. 221 skugga um, hvort sníglarnir opni ekki lokið við og við til að anda að sér loi'ti, hafa þær tilraunir verið gerðar, að láta þá liggja í olíu eða kvikasilfri, sem hvorttveggja útilokar loftið algerlega. En þrátt fyrir það lifna dýrin við á sínum tíma. Enn fremur helir l’eynst óhætt að frysta þá i langan tíma í 120° frosti, °g þó lifnuðu þeir við aflur eftir hæga og varlega þiðnun. Svipaðar tilraunir liafa verið gerðar með froska og fiska. Reyndar þola þeir ekki annað eins grimdarfrost og sníglarnir, en óhætt er, að þeir gadd- írjósi svo, að öll líffæri verði helfreðin og hörð sem klaki.1) Hvernig vikur nú þessu við? Hvernig geta gadd- h'osnir fiskar lifnað við og orðið spriklandi fjörugir a ný? það sýnist í rauninni litlu trúlegra en það, sem kveðið var um, þegar Stokkseyrardraugurinn var á ferðinni hérna um árið: »Svo mikill var Satans lcraftur, að saltaðir gengu þorskar aftur.« En sleppum öllu gamni. Fyrir'vorum sjónum eru þessar gaddfrosnu verur allar alveg dauðar. Hjá þeim er engin lífsmörk að finna, og með vorum beztu sjónaukum og öðrum áhöldum verðum við ekki vör við nein lífsmörk; þau sjást að eins þá fyrst, þegar tilraunir eru gerðar til að lífga þær. Þá kemst alt á ið og skrið, og það er eingöngu þess Vegna, sem náttúrufræðingar halda því fram, að hér se að eins um dauðadá, en ekki dauða að ræða. Pe>1' segja, lífið er ekki farið, það liggur niðri, eða er falið (latent) eins og eldur er falinn á hlóðum. En liér segja þeir í rauninni meira, en þeir geta staðið Vlð; því hvar er eldurinn? Þeir finna hann ekki. Með orðatiltækinu falið lí f meina lídræðingar, að lílshræringar frymisins séu i rauninni ekki hæltar, h Sjá I.ivct oci dcls I.ove eflir próf. Weiss. Kbh. 1912.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.